Jæja.. nú er ég orðinn frekar þreyttur á þessum hægagangi í bílnum hjá mér..
Er búinn að láta lesa af honum, það er búið að skipta um skynjara og spíssa og hvaðeina..
Þannig er mál með vexti að bíllinn hjá mér, skiptir engu máli hvort hann er heitur eða kaldur.. ef maður kveikir á honum þá gengur hann einsog klukka, en um leið og maður er búinn að rev'a uppí 2000snúninga og aftur niður í hægagang (skiptir ekki máli hvort ég fer á ferð, eða geri þetta bara með hann í park, ekki á ferð) þá byrjar hann að ganga svona truntugangi, og vélin fer að titra alveg á fullu, en það skrítna er að ef ég drep á honum og kveiki aftur á honum.. þá er þessi gangur úr sögunni, þangaðtil ég gef honum aftur inn.. þá byrjar þetta aftur.
Segið mér nú elsku bmw hneturnar mínar.. hvað dettur ykkur í hug?
Ekki getur sveifarásinn verið orðinn skakkur eða eitthvað?
á reyndar eftir að kíkja á mótorpúðana en efast um að það sé málið.. gætu þeir verið lausir eða eitthvað þvíumlíkt og þar að leiðandi verið að valda þessu?
Já og svo er eitt enn, það kemur alltaf þessi svaðalega dísel stybba inní bílinn hjá mér, las einhversstaðar að það að skipta um frjókornasíu myndi líklegast laga þetta vandamál, nú veit ég voða lítið um hvað hún gerir.. en ekki gæti hún verið að valda einhverju svona??
Með von um skjót og góð svör.
Kv. Hannes
