bebecar wrote:Við erum að tala um tvær hliðar á sama peningnum, alþjóðatengslahliðina og EU hliðina hinsvegar.
Dæmið með Grænland skiptir engu máli - var meira nefnt til gamans en auðvitað er það rétt að Grænland hefur ekki fullveldi og ég held að engin velkist nú í vafa um það.
Með fullveldi þá veit ég ekki hvað þú ert að vísa í? Ertu að vísa í að ríki í EU afsali ekki fullveldi? Eða ertu að agnúast út í það að ég setti sjálfstæði/fullveldi innan skástriksins? Það var bara vegna þess að ég mér finnst hvorutveggja vera þess virði að berjast fyrir því (ekki vegna þess að ég sé að blanda því saman!!!). Ísland var auðvitað fullveldi áður en það varð sjálfsætt og er það hamrað rækilega inn í hausin á manni í grunnskóla.
Þannig að þú hlýtur að vera að vísa í fullveldið - það er í það minnsta deilt um það hvort að ríki afsali sér ekki "hluta fullveldis" (sem í sjálfu sér er furðulegt orðalag því hvað er fullt ef það er bara að hluta?) við inngöngu í EU.
Gísli, þú ættir að vita betur en halda svo að ég fari að rugla þessu saman.
Ég er ekki neinn sérfræðingur í EU og veit að þú ert mér miklu framar þar - fínt að fá ábendingar með það (eins og með Grænland, sem þó var ekki meginpunkturinn).
En með Tyrkina þá fékk ég það nú bara beint í æð í viðtali við Murat Belge (Tyrkneskur mannréttindafrömuður) og Irene Khan (forstöðukona Amnesty í Tyrklandi) að það yrði allt vitlaust (á meðal stuðningsmanna EU) í Tyrklandi ef það kæmi ekki einhver hreyfing á þeirra mál eða aðrir teknir fram yfir þá. Skiptir þá litlu hvort Ísland er á undan eða eitthvað annað land (þeir virtust þó ekki láta króatíu skipta sig máli hvað þetta varðar). Það skiptir ekki heldur hvort það er réttmætt einu sinni því þeir geta, eins og Íslendingar, líka brugðist við á röngum forsendum.
Það má vel vera að það sé overstatement að tyrkir vilji ólmir komast inn - en þeir eru búnir að reyna ansi lengi "officially recognised as a candidate for full membership on 12 December 1999".
En ég vil síður en svo skylmast við þig í EU fræðum, því það er miklu nær að þú sjáir um þá hlið því á þeim bænum leita ég til þín.
EN með IR hliðina þá hef ég nú ýmislegt til málanna að leggja en þar eins og annarsstaðar eru margar fylkingar og margar skoðanir á því sem í fyrstu virðist vera fremur einfalt (einsog þrætan um fullveldi og EU).
Veit Ingvar minn, var bara aðeins að kynda þig í þessu, alltaf gaman. Enginn að skylmast, en áhugaverðir tímar framundan.
G


