Hvern á að kjósa?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Hvern á að kjósa?

Poll ended at Sat 25. Apr 2009 09:35

xB - Framsókn
9
6%
xD - Sjálfstæðisflokkur
37
25%
xF - Frjálslyndir
3
2%
xP - Lýðræðishreyfingin
4
3%
xO - Borgarahreyfingin
18
12%
xS - Samfylkingin
21
14%
xV - Vinstri grænir
6
4%
Skila auðu
23
16%
Óákveðinn
26
18%
 
Total votes : 147

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Giz » Wed 22. Apr 2009 07:17

bebecar wrote:Við erum að tala um tvær hliðar á sama peningnum, alþjóðatengslahliðina og EU hliðina hinsvegar.

Dæmið með Grænland skiptir engu máli - var meira nefnt til gamans en auðvitað er það rétt að Grænland hefur ekki fullveldi og ég held að engin velkist nú í vafa um það.

Með fullveldi þá veit ég ekki hvað þú ert að vísa í? Ertu að vísa í að ríki í EU afsali ekki fullveldi? Eða ertu að agnúast út í það að ég setti sjálfstæði/fullveldi innan skástriksins? Það var bara vegna þess að ég mér finnst hvorutveggja vera þess virði að berjast fyrir því (ekki vegna þess að ég sé að blanda því saman!!!). Ísland var auðvitað fullveldi áður en það varð sjálfsætt og er það hamrað rækilega inn í hausin á manni í grunnskóla.

Þannig að þú hlýtur að vera að vísa í fullveldið - það er í það minnsta deilt um það hvort að ríki afsali sér ekki "hluta fullveldis" (sem í sjálfu sér er furðulegt orðalag því hvað er fullt ef það er bara að hluta?) við inngöngu í EU.

Gísli, þú ættir að vita betur en halda svo að ég fari að rugla þessu saman.

Ég er ekki neinn sérfræðingur í EU og veit að þú ert mér miklu framar þar - fínt að fá ábendingar með það (eins og með Grænland, sem þó var ekki meginpunkturinn).

En með Tyrkina þá fékk ég það nú bara beint í æð í viðtali við Murat Belge (Tyrkneskur mannréttindafrömuður) og Irene Khan (forstöðukona Amnesty í Tyrklandi) að það yrði allt vitlaust (á meðal stuðningsmanna EU) í Tyrklandi ef það kæmi ekki einhver hreyfing á þeirra mál eða aðrir teknir fram yfir þá. Skiptir þá litlu hvort Ísland er á undan eða eitthvað annað land (þeir virtust þó ekki láta króatíu skipta sig máli hvað þetta varðar). Það skiptir ekki heldur hvort það er réttmætt einu sinni því þeir geta, eins og Íslendingar, líka brugðist við á röngum forsendum.

Það má vel vera að það sé overstatement að tyrkir vilji ólmir komast inn - en þeir eru búnir að reyna ansi lengi "officially recognised as a candidate for full membership on 12 December 1999".

En ég vil síður en svo skylmast við þig í EU fræðum, því það er miklu nær að þú sjáir um þá hlið því á þeim bænum leita ég til þín.

EN með IR hliðina þá hef ég nú ýmislegt til málanna að leggja en þar eins og annarsstaðar eru margar fylkingar og margar skoðanir á því sem í fyrstu virðist vera fremur einfalt (einsog þrætan um fullveldi og EU).


Veit Ingvar minn, var bara aðeins að kynda þig í þessu, alltaf gaman. Enginn að skylmast, en áhugaverðir tímar framundan.

G
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bebecar » Wed 22. Apr 2009 07:26

fart wrote:Ísland og EU?

Ísland er eins og Jeppi fastur uppi á jökli. Annaðhvort að hringja í björgunarsveitina (EU) og láta kippa í eða bíða þangað til að jökullinn bráðnar.

hvort viljið þið?


Jökullinn á eftir að bráðna á meðan við bíðum eftir björgunarsveitinni :lol:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Hvern á að kjósa?

Postby fart » Wed 22. Apr 2009 09:52

Það má vel vera að jökullinn bráni, en í millitíðinni á eftir að vera kalt lengi og við jafnvel að frjósa í hel, svo einhverjum árums einna bráðnar utan af þessu eins og gömlum WW2 flugvélum.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Alpina » Wed 22. Apr 2009 09:54

Vvvoóóó

krónuþráðurinn fór út í algera vitleysu,,

ekki draga kosningaumræðurnar inn á sleipa svellið líka :|
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Hvern á að kjósa?

Postby fart » Wed 22. Apr 2009 09:56

Alpina wrote:Vvvoóóó

krónuþráðurinn fór út í algera vitleysu,,

ekki draga kosningaumræðurnar inn á sleipa svellið líka :|


Kostningarnar snúast um EU eða ekki EU hvort sem þér líður betur eða verr með það :P
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Giz » Wed 22. Apr 2009 10:03

fart wrote:
Alpina wrote:Vvvoóóó

krónuþráðurinn fór út í algera vitleysu,,

ekki draga kosningaumræðurnar inn á sleipa svellið líka :|


Kostningarnar snúast um EU eða ekki EU hvort sem þér líður betur eða verr með það :P


Hehe, vissulega. Ég er hættur 8)
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Zed III » Wed 22. Apr 2009 10:07

Án þess að vera að taka of mikla afstöðu með eða á móti ESB, er ekki það sem verður að gera fyrst og fremst að ná tökum á fjármálunum hér heima ? Ef fjármagnsreksturinn (rekstur hins opinbera, fyrirtæki og heimili) hér heima kemst ekki í lag skiptir engu hvaða mynt við höfum eða hvort við séum í þessu bandalagi.

Hvort sem krónan er verðlaus eða ekki út í hinum stóra heimi er hún það viðmið sem við erum með hér heima og virkar því ágætlega fyrir okkur á innanlandsmarkaði. Það má reyndar líka benda á það að þó krónan sé hrikalega illa skráð í augnablikinu þá er vöruskiptajöfnuðurinn rétt að slefa yfir núllið, það er því ólíklegt að við sjáum sterkari krónu fyrr en við förum að framleiða meira, hvort sem er til útflutnings eða að draga úr innflutningi.

Því miður hefur umræðan í pólitíkinni ekki snúist um þessi mál sem gerir þessar kosningar þannig að líklega verður met í auðum seðlum.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Alpina » Wed 22. Apr 2009 10:44

Hvað þykist þið amatörarnir sem eruð áhorfendur í stjórnmálum vita um ESB/EU aðild eða ekki ,,,,,,,

hreint ótrúleg bíræfni að menn láti frá sér allskonar staðhæfingum um kosti og galla ... osfrv


þetta er svo flókið mál og hefur aldrei verið kynnt almenningi ,, til hliðsjónar af hvað þetta snýst um virkilega,,

án vafa eru margir kostir ,, og margir ókostir,,

fullt af fólki sem ropar hátt um gjaldtöku evru ,, og er með það markmið að leiðarljósi ,,,,,,,, næstum eingöngu

Ísland er svo lítið brot af íbúafjölda meginlandsins að það er enginn akkur fyrir ESB að taka Ísland inn nema samtökin HAGNIST á því..

þar gæti komið til .......... GNÆGÐ vatns ,,, möguleikar á ódýrri raforku + umhverfisvæn
og síðast en ekki síst ............


GJÖFUL FISKIMIÐ


ég hef ekki hundsvit á þessu,, og get ekkert dæmt með eða á móti en blöskrar að sjá alla þessa besserwissa hérna sem eru búsettir á meginlandinu .. eða hafa verið þar ,, og hinir sem mega ekki heyra minnst á aðild sökum þess að sjálfstæði Íslands ,,,,, blabla afturhaldskreddur

hvað vitiði svona meira en þeir sem eru búnir að kynna sér þetta töluvert betur á vegum Alþingis og eða stjórnarráðanna og hafa enn ekki komist að niðurstöðu sem hægt er að kynna þjóðinni og með rökum sínum skírskota til kosti og eða ókosti,,,,, þetta þarf að birta í opinberum fjölmiðlum svart á hvítu ,, útskýra hvað við fáum og hvað við þurfum að gefa á móti


áður en gengið er til atkvæða greiðslu
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Hvern á að kjósa?

Postby fart » Wed 22. Apr 2009 10:59

Persónulega er ég ekki að taka afstöðu til þess hvort að það sé gott fyrir langtímahagsmuni að ísland gangi EU, en mér finnst ólíklegt að Ísland eigi séns á að rífa sig út úr núverandi ástandi með ónýtan gjaldmiðil án hjálpar frá stærri aðila. Menn bara virðast ekki fatta það að þú getur ekki fúnkerað í alþjóðasamfélagi ef enginn vill taka við gjaldmiðlinum þínum og þannig er staðan í dag, það vill ENGINN taka við krónum nema Íslendingar, neikvætt en bara svo satt. Við þurfum leið út úr Krónunni, við þurfum vernd og sterkara bakland. Allt gott og blessað með það að vilja vera sjálfstæður, en við erum nú einu sinni í alþjóðasamfélagi og getum því ekki gert það sem við viljum, og yfirleitt bara gert það sem aðrir vilja (eða leyfa okkur sökum fjárhagserfiðleika).

S.s. ég myndi frekar vilja skoða EU framtíðina heldur en algjöra óvissu um framtíðina eins og sumir vilja, þ.e. þeir sem segja að Ísland geti þetta alveg sjálfir. Skoðið það aðeins hverjir það eru sem eru mest á móti EU, af hverju ætli það sé, mér finnst t.d. líklegt að það sé vegna eiginhagsmuna en ekki þjóðhagsmuna.

Ég bý í EU núna og hef gert í 3 ár, og veit lítið sem ekkert um innra regluverk EU en íslendingar búa nú þegar við 2/3 til 3/4 af því nú þegar. Mér finnst alveg sjálfsagt að menn fari í aðildarviðræður. Það er enginn að segja að maður sé skuldbundinn til að kaupa bílinn þó maður hafi tekið prufuhring, og skoðað þjónustubókina.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Alpina » Wed 22. Apr 2009 11:03

Mikið sammála því að ræða þetta almennilega og skoða þá kosti//ókosti sem eru til hagsbóta og eða verða ekki umflúnir ef aðild yrði samþykkt


eeeeeeeeen þetta þarf að kynna almenningi ,, ekki einhverjir stjórnmálagrýlur sem hrópa slagorð um aðild og almenningur veit ekkert hvað þetta snýst virkilega um
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Hvern á að kjósa?

Postby fart » Wed 22. Apr 2009 11:07

Alpina wrote:Mikið sammála því að ræða þetta almennilega og skoða þá kosti//ókosti sem eru til hagsbóta og eða verða ekki umflúnir ef aðild yrði samþykkt


eeeeeeeeen þetta þarf að kynna almenningi ,, ekki einhverjir stjórnmálagrýlur sem hrópa slagorð um aðild og almenningur veit ekkert hvað þetta snýst virkilega um


Algerlega, og klippa öfgamennina báðum megin aðildar út úr umræðunni á meðan. Það glymur hæst í tómum tunnum.

Edit: Það sem ég skil ekki er af hverju ALLIR vilja ekki fara í aðildarviðræður og þá sérstaklega þeir sem eru á móti. Ef þetta er eins slæmt og þeir segja væri það besti rökstuðningur sem þeir gætu fengið fyrir málstað sínum. Í dag veit í raun enginn neitt og allir eru að spekúlera. Tveir hópar sitja við lokaðan kassa, annar segir hann fullan af nammi en hinn segir hann tóman, af hvejru þá ekki bara að opna hann og sjá hvað er í honum. ÉG skil ekki hræðsluna við aðildarviðræður.
Last edited by fart on Wed 22. Apr 2009 11:16, edited 1 time in total.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Einarsss » Wed 22. Apr 2009 11:13

ég skil ekki hvað allir eru hræddir við aðildarviðræður ... ef okkur lýst ekki á það sem er í boði þá er hægt að bakka útúr öllu. Fáranlegt að fólk sé á móti þessu
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bimmer » Wed 22. Apr 2009 11:15

Alpina wrote:Mikið sammála því að ræða þetta almennilega og skoða þá kosti//ókosti sem eru til hagsbóta og eða verða ekki umflúnir ef aðild yrði samþykkt


Það er svosem búið að ræða þetta en málið er að það fæst ekki á hreint
hvað við fáum og hvað við þurfum að gefa eftir fyrr en farið er í viðræður.

Þannig að eins og ég sé þetta þarf framgangsmátinn að vera svona:

1. Sækja um aðild & semja
2. Kynna samninginn fyrir okkur
3. Kjósa um hann
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Thrullerinn » Wed 22. Apr 2009 11:20

Jónas wrote:
grettir wrote:
Jónas wrote:... Og fjármagnsskattur REFSAR þeim sem hafa verið skynsamir undanfarin ár og SPARAÐ.

Það er súrt að borga skatta, en tekjur eru bara tekjur, hvort sem þær heita launatekjur eða fjármagnstekjur.


Ef fjármagnsskattur fer í 40% þá minnkar sparnaðarhneigð mikið.

Hvað gerist þá? Hvernig eiga bankarnir að lána pening?

Bankarnir þurfa að taka við innlánum til að veita útlán


Er ekki verið að tala um 14% ekki 40%
Það má alveg hækka fjármagnstekjuskattinn slatta, ávöxtunin er gríðarleg og nánast enginn skattur tekinn eða skitin 10%.
Auðvitað situr fólk þá á peningunum sínum, þeir eru í raun það eina sem hækkar í verði vegna hárra vaxta.

Krónan er dauð.. yfir og út.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Giz » Wed 22. Apr 2009 12:06

ég hef ekki hundsvit á þessu,, og get ekkert dæmt með eða á móti en blöskrar að sjá alla þessa besserwissa hérna sem eru búsettir á meginlandinu .. eða hafa verið þar ,, og hinir sem mega ekki heyra minnst á aðild sökum þess að sjálfstæði Íslands ,,,,, blabla afturhaldskreddur


Ef þessu er sem dæmi beint til mín meðal annarra, má ég til með að benda á að ég hef unnið fyrir, með og í kring um öll þessi batterí. Þ.m.t. EU. Hef einnig verið í kring um allann þennann stofnanageira á nokkrum stöðum í orðið ansi mörg ár, bæði innan stofnana, sem og innann diplómasíunnar.

Ekki að ég sé alvitur á neinn hátt, en er reyndar auk þess Evrópufræðingur. Sem segir svo sem ekki neitt heldur.

Núna er ég alveg hættur...

G
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 65 guests