Ég skil mjög vel að fólk vilji skila auðu eða kjósa eitthvað alveg nýtt (það getur varla verið verra nefnilega!)
Ég skil jafnframt mjög vel að fólk skuli ekki kjósa D núna, flokkurinn á það virkilega skilið að fá skell!
Ég get hinsvegar MEÐ ENGU MÓTI skilið hvernig einhverjum dettur í hug að kjósa Samfylkingu eftir það sem hér hefur gerst. Sá flokkur ber RÍKA ábyrgð á hruninu, rétt eins og sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn, t.d. í gegnum viðskiptaráðuneyti og ekki gleyma UTANRÍKISRÁÐUNEYTI þar sem ákveðið var að lúffa fyrir Icesave þrýstingi til að ýta Íslandi nær ESB (gegn loforði um stuðning frá Icesave löndunum í staðinn) og þá eru ótalin tögl og haldir flokksins á Bessastöðum (fjölmiðlafrumvarpið - sem er líkleg ástæða þess að gagnrýni skorti á hvað var að gerast, vegna blóðtöku þeirra miðla sem áður höfðu tíma og peninga til að kafa í hlutina) og verndarvængur flokksins yfir útrásarvíkingum síðastliðin 5 ár í það minnsta.
Nú er ég ekki sérlega hrifin af ESB (skrifræði og lýðræðishalli eru einkennismerkin) þó ég telji að við getum alveg haft það ágætt þar innanborðs líka - en svona aðgerðir eru bara svakalega grófar, að skuldsetja land og þjóð til að hafa möguleika á að ná einu af stefnumálum flokksins!
Vinstri grænir eru þokkalega saklausir af þessu hruni öllu saman - það verður að segjast eins og er, EN vinstri grænir eru hinsvegar sekir um að ýta undir óeirðir og mótmæli gegn lýðræðislega kosinni ríkisstjórn í landinu, nokkuð sem er svo ótrúlega ólýðræðislegt og bananalegt að fólk verður virkilega að velta því fyrir sér hvort það sé hreinlega siðferðilega rétt að veita þeim atkvæði. Hefðu VG látið það eiga sig að blanda sér í búsáhaldabyltinguna þá væru þeir með nokkuð hreinan skjöld fyrir kosningar.
Það er rétt að D hefur heldur betur blásið út báknið en þeim hefur þó tekist að auka frelsi og það er kannski helst það sem maður óttast að fari forgörðum því það má 100% stóla á forsjárhyggjuna hjá SJS.
Það er því fátt um fína drætti, held svei mér að borgarahreyfingin sé skynsamlegasti kosturinn eins og staðan er. Meira að segja skil ég fólk sem kýs Ástþór

- erfiðast finnst mér samt að skilja að einhver vilji kjósa Samfylkinguna eftir það sem á undan er gengið. Það getur varla verið út af öðru en Jóhönnu og ESB (annað eins hefur nú svosem gerst með D þegar fólk kaus D út af Davíð eingöngu) en aðstæður eru þannig nú að það finnst manni hreinlega ekki rétt, að verðlauna einhvern sem klárlega ber ábyrgð líka á þessu hruni.