Enginn að tala um hippa eða mótmælendur. Þetta snýst um allt annað og meira en það. Langt frá því að vera bara ádeila eingöngu á umhverfisspjöll, hvaða áhrif þetta hafði á efnahaginn er mjög stór partur af myndinni.
Get ekki séð betur en svo að margir hafi einfaldlega beðið eftir þessu fyrir austan til að húsnæðisverð hækkaði og það gæti hypjað sig í burtu, frænka mín þar meðtalin...
Bjargaði Austurlandi? Hvað lengi? Hvað var lagt undir? Hvaða áhrif hafði þetta á samfélagið?
KristoferK wrote:
KristoferK wrote:
Ótrúlegt hvað fólk nennir að væla yfir þessari "náttúru"... Hversu margir fóru uppá Kárahnjúka áður en að þeir fóru að virkja? 5-6 á ári? Hippar eru ekki kúl. Mótmælendur ekki heldur.
Losið ykkur við þessa skurðgrafa hræðslu og nýtum þessar auðlindir okkar. Við þurfum nú held ég á því að halda í dag.
Verður að afsaka en það að finnast ekki e-ð kúl eru vandræðalega léleg rök og sömuleiðis að stimpla alla sem eru ekki til í að gleypa við nákvæmlega öllu sem stjórnmálamenn mata ofan í mann hippa eða mótmælendur þykir mér frekar þröngsýnt, en engu að síður virðist ganga illa að finna betri rök á móti þeim sem setja spurningarmerki við svona mál.
Og hvað svo þegar það er búið, virkja bara næsta, og síðan næsta, þetta verður einn vítahringur með svona hugsun. Við höfum það fínt og höfðum það mjög fínt fyrir þetta og brjálæðið sem fylgdi í kjölfarið, hversu stóran part sem þetta hafði á ástandið sem við stöndum í núna en það bendir ýmislegt til að þetta hafi ekki hjálpað til... og þá er ég að tala um allt landið
og það að allir landsmenn hafi ekki farið á svæðið er engin ástæði fyrir því að láta það hverfa, hefur einnig mikil áhrif á allt svæði fyrir neðan virkjun, niður til strandar og út í sjó. Allar evrópuþjóðir voru á móti þessu þegar þetta kom til tals á fundi hjá þeim m.a. þar sem þetta var svæði á lista yfir mikilvæg votlendi á heimsvísu, nema einn maður sem var fulltrúi íslands á fundinum þar sem þetta mál var rætt, eina sem hann sagði var að þetta væri efnahgaslega nauðsynlegt fyrir ísland, sem þetta var ekki.
og þetta er langt frá því að vera bara hippar og mótmælendur, hugsa að það sé alveg það síðasta sem þú myndir hugsa ef þú sæir/þekktir mig
