bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 19:41

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 56 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4  Next
Author Message
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 11:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
pes1 wrote:
Land Cruiser 100 er ekki á loftpúðafjöðrun og hefur aldrei verið, þessir bílar eru stillanlegri vökvafjöðrun einungis



OK þetta vissi ég ekki.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 11:28 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 03. Dec 2008 15:27
Posts: 45
Location: Reykjavík
Þegar þú kaupir Toyotu þá ertu að kaupa bíl sem er yfirleitt dýrari en sambærilegir bílar, en þú heldur líka endursöluverðinu ofar en aðrar sambærilegar tegundir þegar þú ætlar að selja. Hinn almenni borgari sem ekki hugsar svo mikið um vélarstærð og aksturseiginleika velur Toyotu oft fram yfir aðrar tegundir vegna þess að það er alveg á hreinu og ég held að enginn mótmæli því að þjónustudeildin hjá Toyota skarar framúr í samanburði við hin umboðin.

Toyota er með ömurlegt úrval af vélarstærðum í flestum tegundum. Fólk er ekki að kaupa þessar dollur af því að þær eru svo skemmtilegar í akstri heldur útaf þjónustunni sem fylgir þessu ásamt því að það er ekkert vesen ef það þarf að claima í þessa bíla.

Bilanatíðni hefur hingað til ekki verið stórvægileg þó svo hún sé að aukast umtalsvert hjá þeim.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 11:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Vinur minn á Yaris og við lendum oft í skuggalega svipuðum 'bilunum'. Á endanum er hann að borga margfalt meira en ég í kostnað (varahlutir með eða án vinnu á verkstæði). Ég hef verið að borga 25.000 kr með vinnu og hann 75.000 krónur með vinnu, fyrir akkúrat sama hlut. Þetta var bara eitt dæmi.

Svo kallar fólk viðhaldið á BMW dýrt? :hmm:

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 11:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég hef bæði brúkað LC100 sem og RR sport, og mitt mat er það að maður sem er að leyta af LC, verður aldrei sáttur við RR, þar sem RR bíllinn er bara ekki bíll af sama sauðhúsi,

LC100 bílarnir eru gífurlega solid og góðir bílar, 6m er alltof mikið,
RR sport eru skemmtilegir og allt það. en það er eins gott að þig virkilega langi í hann m.a bilanatíðina á þessu, hún er ofboðsleg,

ég tæki aldrei RR sport sjálfur, tæki stóra RR framyfir hann anyday, miklu skemmtilegri bíll, miklu betri innréting,jafn mikil bilanatíðni.

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 12:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Posts: 9115
Location: Breiðholt, Reykjavík
pes1 wrote:
Þegar þú kaupir Toyotu þá ertu að kaupa bíl sem er yfirleitt dýrari en sambærilegir bílar, en þú heldur líka endursöluverðinu ofar en aðrar sambærilegar tegundir þegar þú ætlar að selja. Hinn almenni borgari sem ekki hugsar svo mikið um vélarstærð og aksturseiginleika velur Toyotu oft fram yfir aðrar tegundir vegna þess að það er alveg á hreinu og ég held að enginn mótmæli því að þjónustudeildin hjá Toyota skarar framúr í samanburði við hin umboðin.

Toyota er með ömurlegt úrval af vélarstærðum í flestum tegundum. Fólk er ekki að kaupa þessar dollur af því að þær eru svo skemmtilegar í akstri heldur útaf þjónustunni sem fylgir þessu ásamt því að það er ekkert vesen ef það þarf að claima í þessa bíla.

Bilanatíðni hefur hingað til ekki verið stórvægileg þó svo hún sé að aukast umtalsvert hjá þeim.


Bilanatíðnin er svona lág útaf því að það er liggur við allt í ábyrgð. En það er að breytast núna.


SteiniDJ wrote:
Vinur minn á Yaris og við lendum oft í skuggalega svipuðum 'bilunum'. Á endanum er hann að borga margfalt meira en ég í kostnað (varahlutir með eða án vinnu á verkstæði). Ég hef verið að borga 25.000 kr með vinnu og hann 75.000 krónur með vinnu, fyrir akkúrat sama hlut. Þetta var bara eitt dæmi.

Svo kallar fólk viðhaldið á BMW dýrt? :hmm:




Og já, toyota varahlutir og vinna eru EKKI ÓDYRIR.

_________________
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 14:02 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 03. Dec 2008 15:27
Posts: 45
Location: Reykjavík
Það kom skipun frá Toyota í Japan um mitt ár 2007 um að það ætti ekki að claima nema að kúnninn skrifaði undir plagg og hverju hann væri að kvarta yfir, claimið hefur ekki minnkað neitt þrátt fyrir það, það er bara farið í kringum þessar pælingar,

ég veit ekki hvaða heimildir menn hafa fyrir því að ábyrgðin hjá Toyota sé að minnka eitthvað.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 17:13 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 01. Apr 2008 21:40
Posts: 521
Miðað við reynslu mína af toyota og hún er nokkur þá myndi ég taka Cruiserinn. hef ekki keyrt RR en maður hefur bara heyrt um mikið af leiðinlegum bilunum og það er dýrt að gera við þá, og RR hefur aldrei getað hannað rafkerfi í bíla.

_________________
Sævar M

Stoltur meðlimur í TURBO-CREW

Toyota Avensis 2004
Jeep Willys 383 torfærutæki
KFX450R heavy modded 8)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 17:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
X5 anyday

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 17:56 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 18. Mar 2006 17:17
Posts: 898
Alpina wrote:
X5 anyday

x5 er bara svo allt annnar flokkur en t.d 100 cruiser, og times fjöðrunin í 100 cruiser er ein mesta snilld ever

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 18:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
það er ekki hægt að bera saman land cruizer og bmw x5, gætir alveg eins borið saman E60 og lc120, gerólíkir bílar, X5-inn er einhver minnst jeppa ættaði luxury-suv-inn á markaðinum, og er í raunini ekkert nema nokkuð hár bmw lúxusbíll, ég hef keyrt svona bíl í snjóog hálku innanbæjar og þar stendur hann sig vel, en þar með er jeppasamanburðinum líka lokið.

RR kemur hinsvegar á óvart, og er miklu meiri jeppi heldur en margir af þessum lúxusbílum, RR sport er meirasegja bygður á grind, reyndar er grindin felld inn í gólfið , (sem er hönnun sem ford kom með í explorer) RR bílarnir hafa samt þann galla að vigta á við gott fjölbýlishús, og það er ekki beint kostur í snjó.

LC100 er hinsvegar bara allt önnur ella heldur en þessir bílar, meðan bílar eins og GL,RR og fr eru í raunini lúxusbílar sem hafa þann kost að kalla ekki alveg allt ömmu sína annað en malbikið, og X5/ML og flr lúxusbílar sem sitja ekki heima í fýlu þótt það sé spáð snjókomu, þá er LC100/200 frekar raunverulegur "jeppi" sem að býður samt uppá töluverðan lúxus líka, þrátt fyrir að vera jeppi.

ég er búinn að vera töluvert á LC 90/120/100 og aðeins minna en samt þónokkuð á 200, og mér finnst þetta allt saman alveg brilliant bílar í það sem þeir eru ætlaðir, það er svo hinsvgegar staðreynd að þrátt fyrir að vera mjög góðir, eru þeir líka mjög ofmetnir, og verðlagningin á 200 bílnum er gjörsamlega útúr kortinu. og í raun á 100 bílnum líka.

en óháð því hvað öðrum finnst,tölum og staðreyndum og öllu því, þá langar mig mest í RR vogue, ég fór í slíkum bíl út á land síðast í gær, og það er fyrir mig allavega svo mörg stig sem þeir hala inn á. að mér finnst alveg meiga kosta dáldið að reka þá, útlitið er klassískt, innrétingin er ennþá einhver sú smekklegasta. og mér persónulega(aftur) finnst svo líka bara alveg asnalega gott að keyra þá, maður stur þvílíkt rétt og hátt. með risa húdd fyrir framan sig, ride-ið er 7línu alike, og lúxusinn og handbragð og efnisval í kringum mann alveg til fyrirmyndar, LC200 t.d fellur ofboðslega á akkurat þeim atriðum sem RR vinnur sér inn points,

það er töluvert af LC í stórfjölskylduni, eins og hjá öllum eflaust, og það verður nú að segjast eins og er að þeir bila nú bara ekkert lítið, frekar en aðrar toyotur síðasta áratuginn, þá finnst mért sérstaklega vera vesen á 120 bílunum. einn frændi minn orðaði það svo að hann væri aldrei í lagi, en hann fengi alltaf annan í staðin meðan han væri í viðgerð þannig að það slippi, nú er sá sami bíll hinsvegar að detta úr ábyrgð, og eflaust breytist aðeins í honum hljóðið þá.
en þótt toyoturnar séu farnar að bila meira en áður, þá eiga þær nú töluvert í land áður en þær geta farið að keppa við ultra pro bilanakónga eins og RR og evrópsku merkin. það er nú þannig að japanskur bíll sem er ekki altaf í lagi. er yfirleitt talin mánudags eintak, meðan þýskur bíll sem er ekki með stanslaust vesen, er talin hafa verið mjög sanngjarn í rekstri.

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 20:16 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 18. Mar 2006 17:17
Posts: 898
hvað er það sem er að klikka i þessum 120 bil ?
erum með einn svona a heimilinu 2004 model og hann hefur ekkert bilað, hef ekki heyrt um neina 120 bila sem bila mikið

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 20:26 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 03. Dec 2008 15:27
Posts: 45
Location: Reykjavík
Turbo- wrote:
hvað er það sem er að klikka i þessum 120 bil ?
erum með einn svona a heimilinu 2004 model og hann hefur ekkert bilað, hef ekki heyrt um neina 120 bila sem bila mikið


Bremsurnar í þessum bílum eru ónýtar, bremsudælur að framan festast, diskar að framan og aftan víbra, vatnsdælurnar leka endalaust(sennilega SLL vökvinn) , ískur í viftureimum, stíflaðir spíssar í díselbílnum, afturdriflæsingarmótorar festast í bílum sem ekki eru með VSC sem er einungis bensín v6. Vacuum mótorpúðar sem bila sem gera það að verkum að það kemur víbringur inn í bíl. Lekir framdemparar, hæðarskynjarar í bílum sem eru á loftpúðum að aftan, en þetta eru bara smáatriði :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 02. Apr 2009 23:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Posts: 3733
Location: 108
pes1 wrote:
Turbo- wrote:
hvað er það sem er að klikka i þessum 120 bil ?
erum með einn svona a heimilinu 2004 model og hann hefur ekkert bilað, hef ekki heyrt um neina 120 bila sem bila mikið


Bremsurnar í þessum bílum eru ónýtar, bremsudælur að framan festast, diskar að framan og aftan víbra, vatnsdælurnar leka endalaust(sennilega SLL vökvinn) , ískur í viftureimum, stíflaðir spíssar í díselbílnum, afturdriflæsingarmótorar festast í bílum sem ekki eru með VSC sem er einungis bensín v6. Vacuum mótorpúðar sem bila sem gera það að verkum að það kemur víbringur inn í bíl. Lekir framdemparar, hæðarskynjarar í bílum sem eru á loftpúðum að aftan, en þetta eru bara smáatriði :lol:


Pabbi á 120 VX, keypti hann nýjan í febrúar 2003.
Bíllinn var settur á 35" ári seinna.
Bíllinn er í dag keyrður 150.000km!

Það sem hefur klikkað í þessum bíl á þessum 6 árum og 150.000km er:

Bremsur! Samt aldrei orðið var við neitt, engan titring eða neitt, en í þjónustuskoðunum hefur komið í ljós að stimplar hafa verið fastir og skipt hefur verið um dælur og diska. (ábyrgð)

AC: að sögn toyota manna fór rofi í AC dælunni og þurfti að skipta um hana complett! (rúmur 100k ef ég man rétt)

Hæðarskynjarar f. loftpúðafjöðrun að aftan (ábyrgð)

Svissbotn! Á 6 árum og 150.000km hefur bíllinn einu sinni neitað að fara í gang! (30-40k)

Annað: bíllinn ÉTUR framljósaperur!!!! Ég gafst upp og setti Xenon í hann, en Xenonið gafst bara upp líka :lol: Ég er hins vegar hættur við að gefast upp og er búinn að kaupa annað Xenon kit í hann :lol:

Anyways...
Bíllinn hefur alla tíð verið þjónustaður af Toyota á réttum tíma og hefur óvæntur viðhaldskostnaður á bílnum verið um 150.000 ÍSK á 6 árum og 150.000km og mér finnst það bara hlægilegt!!!

Varðandi RR: Hann bilar bara meira á meðan þú ert að gera við hann!!!

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Apr 2009 06:29 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Hvernig er það eiginlega, með alla þessa RR á landinu og það virðist engin hafa tjáð sig um hvernig raunverulegt viðhald hefur verið á þessu?

Það er augljóst að Toyota umboðið vinnur mest á góðri þjónustu. Brimborg hefur verið að reyna að ná til sín sölu t.d. með því að setja meiri fókus á góða sölu.

Nú virðist Land Rover þjónustan hjá B&L vera með því besta sem býðst fyrir kaupendur þessa bíla og þeir hafa kannski grætt nokkuð á því (Land Rover eru annálaðir fyrir lélega þjónustu t.d. í Bandaríkjunum og reyndar miklu víðar).

En nú komum við að einu. Ef það er hægt að fá sömu árgerð af RR á 3-4 milljónir á meðan LC bíllinn kostar 6, má þá ekki kaupa áreiðanlega Toyotu á milljón og hafa svo milljón til að mæta "óvæntum" viðgerðum :lol:

Eitt til viðbótar, það hefur verið vanalegt hjá Land Rover að laga bílana til EFTIR að þeir eru komnir á markað. Það þýðir að það geta verið allavega gallar í bílunum fyrstu árin sem eru svo lagaðir af umboðunum og í ábyrgð. Þetta var svona með RR P38 sem er kynslóðin á undan þeim nýjasta og flestir þeir bílar eru í dag til friðs og þykja bara nokkuð góður þrátt fyrir að hafa verið bilanakóngar sem nýir. Kannski má segja það sama með nýja bílinn en það er kannski ekki allra að taka áhættuna á því - en samkvæmt þessu þá gæti þokkalega ekinn bíll verið betri kostur en nýlegur lítið ekinn bíll.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 03. Apr 2009 08:29 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 03. Aug 2008 03:00
Posts: 174
Location: Horsens,Danmörk
Ég hef keyrt 100 cruser og það fer vel um mann í þessum bílum en ef hann er á loftpúðafjöðrun þá er hann ROSALEGA laus og rásandi á veginum hef líka keyrt RR sport og finnst mér það nú ekki bíll fyrir allan þann pening sem hann kostar en ég mæli bara með x5 4,4 eða ml 63 amg


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 56 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group