pes1 wrote:
Turbo- wrote:
hvað er það sem er að klikka i þessum 120 bil ?
erum með einn svona a heimilinu 2004 model og hann hefur ekkert bilað, hef ekki heyrt um neina 120 bila sem bila mikið
Bremsurnar í þessum bílum eru ónýtar, bremsudælur að framan festast, diskar að framan og aftan víbra, vatnsdælurnar leka endalaust(sennilega SLL vökvinn) , ískur í viftureimum, stíflaðir spíssar í díselbílnum, afturdriflæsingarmótorar festast í bílum sem ekki eru með VSC sem er einungis bensín v6. Vacuum mótorpúðar sem bila sem gera það að verkum að það kemur víbringur inn í bíl. Lekir framdemparar, hæðarskynjarar í bílum sem eru á loftpúðum að aftan, en þetta eru bara smáatriði

Pabbi á 120 VX, keypti hann nýjan í febrúar 2003.
Bíllinn var settur á 35" ári seinna.
Bíllinn er í dag keyrður 150.000km!
Það sem hefur klikkað í þessum bíl á þessum 6 árum og 150.000km er:
Bremsur! Samt aldrei orðið var við neitt, engan titring eða neitt, en í þjónustuskoðunum hefur komið í ljós að stimplar hafa verið fastir og skipt hefur verið um dælur og diska. (ábyrgð)
AC: að sögn toyota manna fór rofi í AC dælunni og þurfti að skipta um hana complett! (rúmur 100k ef ég man rétt)
Hæðarskynjarar f. loftpúðafjöðrun að aftan (ábyrgð)
Svissbotn! Á 6 árum og 150.000km hefur bíllinn einu sinni neitað að fara í gang! (30-40k)
Annað: bíllinn ÉTUR framljósaperur!!!! Ég gafst upp og setti Xenon í hann, en Xenonið gafst bara upp líka

Ég er hins vegar hættur við að gefast upp og er búinn að kaupa annað Xenon kit í hann
Anyways...
Bíllinn hefur alla tíð verið þjónustaður af Toyota á réttum tíma og hefur óvæntur viðhaldskostnaður á bílnum verið um 150.000 ÍSK á 6 árum og 150.000km og mér finnst það bara hlægilegt!!!
Varðandi RR: Hann bilar bara meira á meðan þú ert að gera við hann!!!
_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,