1. Tekur hurðaspjaldið, tekur motorinn úr sambandi svo þú getir tekið úr lás by hand, þarf ekki að brjóta neitt, bara vera flinkur. Been there done that. Fyrsta sem ég þurfti að gera þegar ég fékk minn.
2. Realoem getur svarað þessu betur en ég.
3. Ástæða þess að hurðin læsist ekki er líklega sambandsleysi í motornum eða hann einfaldlega orðinn lélegur og fer mögulega sömu leið og sá sem er deadlocked.
4. Sérstakir pinnar ef ég man rétt, tvö göt sitthvoru megin. Hægt að redda sér með nöglum, skrúfjárnum og ég veit ekki hvað og hvað. Ef þú hefur ekki tólin í þetta þá geturðu alltaf skrúfað frontinn af mælaborðinu og gert þetta þeim megin frá. Fáar skrúfur og ekkert mál. Taka sér bara tíma og vera þolinmóður.
5. Frjókornasíur? Hvað er það

Eldri bílarnir voru ekki með slíkum búnaði margir hverjir, þekki ekki þá nýrri. Er svo gamall í mér.
6. Upplýsta gírhnúann myndi ég tengja í ljósið sem lýsir upp hazard takkann eða sígarettukveikjarann. Jafnvel stoltið sviss straum hjá spilaranum. Bara passa að það sé eitthvað sem deyr þegar þú svissar af bílnum, jafnvel finna út hvar rúðutakkarnir fá sitt ljós, því það slöknar þegar þú læsir bílnum... Bara kúl

Náttúrlega búið að svara þessu öllu, en mér finnst þetta fun

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tækiFord Bronco '66
Bara station bílar, enginn BMW.