Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby gunnar » Thu 26. Feb 2009 17:10

Ég var að taka saman eyðsluna aðeins í ferðinni hjá mér

Við vorum á ferðinni frá ca 8 um morguninn til 6. Ég tankaði áður en ég fór í ferðina.

Við keyrðum 150 km slétt í ferðinni og ég fór með 27 lítra allan daginn.

Þetta eru einhverjir 18-19 lítra eyðsla og mest megnis í botnkeyrslu.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby bebecar » Fri 27. Feb 2009 19:13

Hvernig var eyðslan á stóra trukknum :D
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby Aron Andrew » Fri 27. Feb 2009 19:33

bebecar wrote:Hvernig var eyðslan á stóra trukknum :D


Á fyrsta eða þriðja tank? :lol:
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby bebecar » Fri 27. Feb 2009 20:15

Aron Andrew wrote:
bebecar wrote:Hvernig var eyðslan á stóra trukknum :D


Á fyrsta eða þriðja tank? :lol:


Nákvæmlega :lol:

Það væri kannski ekki úr vegi að heyra meira um fjallabíla pælingar hjá ykkur - ég hef ekki sjálfur hugleitt svona fjallaferðir en það er eiginlega ekki hægt að líta fram hjá þessu ef maður er á annað borð að hugleiða jeppa finnst mér. Ég hef auðvitað farið í nokkuð margar ferðir og léttu bílarnir koma alltaf jafn mikið á óvart. Gamlir Hilux, súkkur og svona...

Persónulega, þá væri ég dálítið veikur fyrir vel breyttum Wrangler 8) Þeir eru bara engir til sölu!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby Kristjan PGT » Fri 27. Feb 2009 20:19

mér finnst einmitt þessi risa jeppamenning vera bara hálfgert bull.

Bílar vel yfir 3 tonnið oftast með 1-2 farþega...whyyy?
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby íbbi_ » Fri 27. Feb 2009 21:07

ég elska þessa risatrukka, enda aldrei verið hrifinn af litlum bílum. þótt þar séu nú undantekningar

er þetta ekki vitlaus árgerð af köntum á þessum expedition? finnst þetta einhvernveginn vera eins og 08+ kantar á -05 bíl
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby gunnar » Fri 27. Feb 2009 21:08

Ég hef ekki þorað að spyrja eigandann af Stóra Ford um eyðsluna.. Hún er sjálfsagt ekki til umræðu :lol:

Varðandi val á jeppum, þá held ég að ég sé með ágætis ferðabíl í höndunum í augnarblikinu. Hann hentar fyrir mig eins og stendur en auðvitað er þetta engin framtíðar fjárfesting. Það eru auðvitað kostir og gallar við alla bíla, það er bara spurningin að hverju maður er að leita að.

Mig persónulega dreymir alla vega blauta drauma um Wrangler og 4 hurða Rubicon á 38"/44". Draumaferðabíllinn er hins vegar alltaf Landcruiser 80. Búið að langa í þannig græju ansi lengi. Svo eru bílar sem maður gæti alltaf hugsað þér að eiga:

Toyota Fjórhlaupari með 3l dísel á 38" með röri að framan.
Gamli Patrol með Lt1 eða öðru amerísku í húddinu
Suzuki Grand Vitara V6 2500cc - 38" breyttur með Hilux hásingum. (Raunhæfasti kosturinn í dag að mínu mati)

Shit hvað grasið er alltaf grænna útum allt maður. :drool: :mrgreen: :oops: :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby íbbi_ » Fri 27. Feb 2009 22:03

vá hvað ég skil ekki hvað fólk sér við þessa wrangler jeppa, ég var með 4dyra 2008 rubicon í sumar og þetta er einhver sá ömurlegasti bíll sem ég hef nokkurntíman komist í kynni við, það var ekki einn plús við hann, hræðilegt að keyra hann, mökkljótur, einhver sá al geldasti mótor sem ég hef kynst og svo framvegis og framvegis, einn af fáum bílum sem hefur toppað hann i.m.o í hreinum viðbjóði var annar wrangler sem ég var mikið með í höndunum.. 2004 sahara e-h, þvílík flök

mig hefur lengi langað í 4runner boddý á rörum með almennilega vél, held að það væri skemmtilegt combo,
væri til í LC90/patrol með ls1
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby gunnar » Fri 27. Feb 2009 22:18

Þetta er bara svona svipað eins og mörgum finnst E30 heillandi bílar... :lol:

Wrangler er bara hráir og töff bílar. Veit ekki af hverju þeir heilla mig.

En svona sem ferðabíl þá myndi ég tvímælalaust frekar taka 4Runner/Patrol(v8)/Land Cruiser...
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby bebecar » Sat 28. Feb 2009 11:38

Wrangler með stærri vélinni er nú ágætlega sprækur, þeir eru mjög nettir og auðveldir þegar maður er að manúvera þá einhversstaðar á erfiðum slóðum, þeir eru verulega töff og nokkuð duglegir þegar slóðinn verður erfiður og síðast en ekki síst er hægt að taka toppinn af þeim sem er bara svalt á góðum sumardegi. Nóg af plúsum...

En þetta eru náttúrulega ekki einhverjir lúxus bæjarsnattarar - þetta eru hálfgerðir traktorar að keyra þetta.

Mínusarnir eru kannski helst að það er ekkert farangurspláss í þeim og þeir eru óttalegir traktorar eins og áður er sagt með fremur lélegu "build quality".
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby SævarM » Sat 28. Feb 2009 19:57

Ég er búin að eiga í þessari röð,
Suzuki sidekick á 35" fínn þegar þú átt ekki pening og langar samt að komast eitthvað
Toyota hilux 38" bensín, fer hlutina svosem bara hægt og rólega og maður þarf auðvitað að liggja, því gólfið er svo ofarlega.
Jeep Willys 74 CJ5 38" 360 AMC og plasthús rosalega gaman að spæna upp brekkur og skafla en alveg rosalega leiðinlegt að ferðast langar vegalengdir í honum, Langar samt aftur í svoleiðis tæki
Land cruiser 80 39.5" ;Mjög góður ferðabíll og fer vel með mann nóg pláss og gott afl í snjónum.

Ég myndi hiklaust fá mér stærri bíl ef maður hefði tök á því en það kemur bara seinna, ekki það að litlu bílarnir séu ekki góðir heldur upp á ferðirnar að gera, Þegar maður er kominn með mikinn búnað fyrir lengri ferðir er skottið t.d í súkkunni ekki mjög rúmgott. En ég er líka alltaf með allt sem mér dettur í hug með mér.

Ég væri mjög spentur t.d fyrir 4d wrangler finnst þeir rosalega svalir og þeir komu held ég með hemi mótornum 425 hö
Sævar M

Stoltur meðlimur í TURBO-CREW

Toyota Avensis 2004
Jeep Willys 383 torfærutæki
KFX450R heavy modded 8)
User avatar
SævarM
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Tue 01. Apr 2008 21:40

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby bebecar » Sun 01. Mar 2009 11:19

Svo eru einhverjir þriggja dyra Wrangler bílar til með lengra hjólhafi - það gæti kannski gert þá að aðeins mýkri ferðabílum...

Persónulega - ef maður er að hugsa um þægindinn þá gæti ég trúað að Range Rover á loftpúðum sé málið - það er víst einn með slíkann í breytingu á 44" ef ég man rétt.

LC 80 er samt svona all time favourite hjá mjög mörgum og það er ekki af ástæðulausu.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby íbbi_ » Sun 01. Mar 2009 11:38

þrátt fyrir að ég sé RR fan, þá lýst mér nú ekki á hugmyndina um svoleðis bíl á stórum dekkjum, gífurlega þungir,flóknir,og bilanagjarnir og bilanagjarnir og bilanagjarnir og bilanagjarnir, og maður fær svo ekkert endilega pláss í stíl við þyngdina, (RR vegur 200kg minna en 2500 heavy duty ram) og svo eru þeir líka mjög bilanagjarnir, :santa:

conceptið um einn tdv8 með two tone leðri að horfa á imbann og trekka kaffi einhverstaðar uppá öræfum um miðjan vetur er samt ekki slæm :mrgreen:

það er einn w12 tuareq hérna á landinu, sem var sendur hingað í breytingu, það verkefni hefur víst orðið alveg ógurlega kostnaðasamt, og eftir því sem mér skyldist svo ógurlega mikið vesen á allan hátt, að ekki var með því mælt, ég held að bíllinn sé ekki ennþá kominn á stór hjól, og ég frétti fyrst af þessu eflaust 05/06

já ég ég svona 4dyra rubicon á stórum blöðrum nokkuð oft, hann lúkkar mjög vel, en ég bara fæ illt í magann við tilhugsunina um þessa bíla,
það fyndna er reyndar að sahara bíllinn sem ég var með í höndunum var stuttur óbreyttur með 4.0l amc jálkinum góða, og hann var mun mátlausari en ég bjóst við, annars eru þetta jú költ bílar eins og LR defender og G wagen,

LC80 skal ég trúa að séu góðir, þetta er náttúrulega hannað m.a til að duga sameinuðu þjóðunum við mjög extreme aðstæður, stór og rúmgóður líka,
LC100 hef ég heyrt að sé ekki góður á stór dekk? heyrði það þannig að gallinn væri sá að þeir væru náttúrlega of þungir fyrir 38", en ekki sterkbygðari en það að þeir væru svo að grindarbrotna og flr leiðindarvandamál þegar þeir eru komnir á 44"

eftir að hafa verið töluvert á og í LC200 skal ég svo trúa að það sé meira en að segja þaðað breyta svoleðis bíl, tæknin í honum er orðin á kaliberi við þýsku bílana nánast.

LC120 heyri ég heldur ekki góðar sögur af, vonlaus drifbúnaður að framan og jú kostnaðasamir í breytingu. LC120 á 38"+ hel-lúkkar samt,


annars eru einir bílar sem ég hef verið mjög hrifinn af, og það eru gömlu grand cherokee-arnir, þeir eru með flottar vélar, léttir m.a við flest í dag, og að mér skylst mjög duglegir ef þeir eru vel breyttir,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby bebecar » Sun 01. Mar 2009 12:19

Ég er að sjálfsögðu að tala um Classic RR eða P38 - ekki nýjustu sófana :wink:

Image

Þessir eru rétt um tvö tonn reyndar....
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Ferð í Flateyjardal með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbnum

Postby Thrullerinn » Sat 07. Mar 2009 23:52

Það er ekkert sem toppar þennan bíl, þó svo að það sé hræðilegt að aka þessu þá er þetta einfaldlega það flottasta á hálendinu!
Image
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests