joik307 wrote:
gstuning wrote:
Þú augljóslega hefur enga hugmynd afhverju menn nota littlar vélar.
Það heitir eldsneytis sparnaður og er eitthvað sem er erfitt að velta sér uppúr þegar eldsneyti kostar
litil vél er ekki endilega sama og eldsneytis sparnaður það er mikið meira sem ræður til um það heldur en bara vélin ein og saman.
Ef það skipti svo miklu máli, hvað er þá verið að setja 5 litra v10 motor í m5. Þessi motor eyðir 20 plús.
$1.88 gallonið í USA
og í þýskalandi kostar gallon af 95okt bensíni 4.37evrur ($3.4)
80% dýrari.
Mig grunar að verkamaður í þýskalandi sé með 80% hærri laun en verkamaður í USA (Veit samt ekki alveg bara ágiskun gæti verið minni munur)
Þá skiptir máli hvernig þú notar hvern dropa af bensíni.
Ef verð á bensíni væri svipað í USA og Euro þá væri soldið annarbragur á.
Ef það væru engin mengunarlög og bensín í evrópu væri eins ódýrt og í USA þá væri ALLT önnur plön í gangi í evrópu.
V10 vélin hefur betri nýtni heldur enn V8 vél af sömu stærð, þess vegna notar BMW fleiri stimpla út frá mekanískri minnkun á viðnáms tapi.
Hemi hedd(2v) og Pentroof(4v) hedd hafa svipaða bruna nýtni ég skal játa það(75%).
Enn til að framleiða hvert hestafl þarf 2v meira pláss til að koma loftinu niður að jafnaði þ.e hámarksafl.
Það sem gerir 4v hedd og tengdar vélar betri er lengdin á powerbandinu, sérstaklega með ventlakerfum. Það sem BMW hefur eytt tímanum sínum í síðan 1990 þegar í samvinnu með Rolls Royce að þeir bjuggu til
Single vanos kerfið sem kom fyrst í McLaren F1 og svo S50B30 , og svo einfalt kerfi í M50. Svo hafa þeir þróað double vanos og powerbandið á BMW vél á sér engann líkann hvað togið er gott yfir allt bandið hjá neinum vélarframleiðanda. Auðvitað er hægt að kaupa vél sem hefur meira afl og stærra togband enn sú vél er án efa stærri.
Það sem BMW hefur þá núna í þróunarpokanum er með betri vélum í heimi. Nú er hið minnsta mál að fylgja í turbo pakkann eins og allir aðrir eru að gera til að minnka eyðslu við cruise enn auka afl við gjöf. Þetta sést á 335i bílnum í original útfærslu.
Sést þarna stock útfærslan 432nm í 3000rpm úr 3lítra vél.
Sem skilar svo 303hö.
Það eru svona pælingar og hugsunarháttur sem á eftir að skila BMW
fleiri betri vélum, Ef allt fer í hart geta þeir og aðrir með svipaðar pælingar ALLTAF stækkað vélarnar. Enn þeir sem hafa alltaf haft bara stórar vélar þurfa enn að þróa vélarnar til að í fyrsta lagi ná tæknilega séð sambærileika.
Allir vélarframleiðendur allstaðar þurfa að minnka vélar til að viðhalda mengunar reglum sem er verið að setja og fara í gagnið 2012.
Allir eru að færa sig á turbo til að meðaltalið af mengun sé minni, enn menn missa ekki sénsinn á aflinu sem menn geta ekki misst
minni vél framleidd árið 2009 eyðir alltaf minna enn stærri vél framleidd árið 2009.
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
