bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 14:39

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 115, 116, 117, 118, 119, 120, 121 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 20:29 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Alpina wrote:
Jónas wrote:
Alpina wrote:
hvað segið þið um þetta .........


Alltaf gott að gefa upp heimildir.


Uuuufff

:oops: :oops: :oops: :oops:


Þetta var flott innlegg og ekki farið með neitt fleipur þarna þegar staða annarra landa er skoðuð. Þetta er auðvitað það sem hefur verið hamrað á að það er hrun allsstaðar.

Það breytir því samt ekki að ekki var hlustað á viðvörunarbjöllurnar og þó einhverjir aðrir hafi heldur ekki gert það þá er það engin afsökun. FME hefur líka haft fjölda mála til rannsókna og ekkert komið út úr þeim. Það getur að miklu leiti stafað af lögræðingaher bankanna sem jarðaði FME á hverjum fundi sem komið var á. En FME klappaði þeim líka á bakið og proppaði bönkunum upp sem fínustu fjármálastofnunum, vitandi að þeir voru það ekki.

Reyndar vissi ég þetta ekki með fiskistofu en það er kannski lýsandi fyrir undirmönnun FME að hafa ekki haft í það minnsta jafn marga starfsmenn.

Bottom line er hinsvegar, að hér varð kerfishrun, einmitt vegna krosseignatengsla og þess að allir virðast hafa notað sama módelið af þremur stóru bönkunum (carry trade og allt það). Það er þetta kerfishrun sem gerir það svo alvarlegt að ekki hafi verið gripið inn í og það er það sem menn þurfa að axla ábyrgð á í það minnsta.

Það má svo vel vera að við verðum relatíft minna í skítnum eftir ár eða tvö þegar hin hagkerfin taka gríðarlega skelli með tilheyrandi veikingu á gjaldmiðlum þeirra.

Maður sér t.d. ekki hvernig Danmörk ætlar að takast á við þetta - varla geta þeir aukið skatta meira í skattpíndasta landi í heimi? Það er ekkert hægt að gera nema skera niður almannaþjónustu og sætta sig við mikið atvinnuleysi.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: xb
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 21:26 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Mon 10. Jul 2006 00:22
Posts: 26
varðandi sigmund framsóknarforingja, þá held ég að hann sé sonur gunnlaugs fyrrverandi þingmanns sem hætti á miðju kjörtímabili fyrir nokkrum árum með kögun í vasanum sem forstjóri og stóreigandi (þokkalega spillt).
annars staðar sá ég að kona sigmunds sé dóttir páls fyrrum toyota eiganda sem byggði sitt fyrirtæki upp af heiðarleika en maður spyr sig samt ef rétt er að sigmundur og frú hafi greitt á annað hundrað miljónir í fjármagnstekjuskatt í fyrra er hann þá á sama plani og almenningur eða toga ávöxtunar kröfur auðsins meira í hann. bara mín spekulasjón


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: xb
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 21:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
hjá wrote:
varðandi sigmund framsóknarforingja, þá held ég að hann sé sonur gunnlaugs fyrrverandi þingmanns sem hætti á miðju kjörtímabili fyrir nokkrum árum með kögun í vasanum sem forstjóri og stóreigandi (þokkalega spillt).
annars staðar sá ég að kona sigmunds sé dóttir páls fyrrum toyota eiganda sem byggði sitt fyrirtæki upp af heiðarleika en maður spyr sig samt ef rétt er að sigmundur og frú hafi greitt á annað hundrað miljónir í fjármagnstekjuskatt í fyrra er hann þá á sama plani og almenningur eða toga ávöxtunar kröfur auðsins meira í hann. bara mín spekulasjón


Einmitt,,,,,,,,

Gunnlaugur Sigmundsson er einn af þessum HEITU frömmörum

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 22:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Þetta með mönnun á Fiskistofu vs FME er frekar mikil einföldun þar sem t.d. eftirlitsmenn fiskistofu þurfa að fara um allt land að fylgjast með bátum, skipum og hafnarvigtum ásamt því að fara út til veiða með fiskiskipum. Þetta er mannfrekt og krefst starfsmanna útum allt land.

Aftur á móti athyglisverður pistill. Menn verða að horfa á málin frá meira en einu sjónarhorni til að mynda sér trausta afstöðu, það er a.m.k. mín skoðun

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 07:56 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Svezel wrote:
Þetta með mönnun á Fiskistofu vs FME er frekar mikil einföldun þar sem t.d. eftirlitsmenn fiskistofu þurfa að fara um allt land að fylgjast með bátum, skipum og hafnarvigtum ásamt því að fara út til veiða með fiskiskipum. Þetta er mannfrekt og krefst starfsmanna útum allt land.

Aftur á móti athyglisverður pistill. Menn verða að horfa á málin frá meira en einu sjónarhorni til að mynda sér trausta afstöðu, það er a.m.k. mín skoðun


Engin að segja að fiskistofa sé undirmönnuð held ég - mikilvægt að ganga vel um auðlindirnar. En þetta sýnir bara hvað FME var í erfiðri stöðu að glíma við bankakerfi sem skuldaði margfalda landsframleiðslu.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 25. Jan 2009 11:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Og það byrjar.

http://visir.is/article/20090125/FRETTIR01/33513550/-1

Nú er enginn tími samt til að allir séu hæst ánægðir því að það hefur aldrei verið mikilvægara uppá hverjir koma í staðinn :shock:

Mér sýnist Framsókn og VG iða í skinninu yfir að komast mögulega til valda í þessu fári sem núna mun vera næstu mánuði. Myndi segja að það virðist þeim mikilvægar að komast til valda heldur enn raunverulega vera með það á hreinu hvað þarf að gera til að "laga" hlutina.

Ég get ekki treyst svoleiðis áhuga.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 25. Jan 2009 11:56 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
gstuning wrote:
Og það byrjar.

http://visir.is/article/20090125/FRETTIR01/33513550/-1

Nú er enginn tími samt til að allir séu hæst ánægðir því að það hefur aldrei verið mikilvægara uppá hverjir koma í staðinn :shock:

Mér sýnist Framsókn og VG iða í skinninu yfir að komast mögulega til valda í þessu fári sem núna mun vera næstu mánuði. Myndi segja að það virðist þeim mikilvægar að komast til valda heldur enn raunverulega vera með það á hreinu hvað þarf að gera til að "laga" hlutina.

Ég get ekki treyst svoleiðis áhuga.

:clap:
Kominn tími til.
Vonandi fylgja hinir á eftir

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 25. Jan 2009 12:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Ekki mikil eftirsjá af Björgvin því hann virtist alltaf út á þekju
málefnalega séð - vissi aldrei neitt og hafði aldrei heyrt neitt um
neitt. Virðist hins vegar vera ágætasti náungi og kemur vel fyrir.

Nú er bara að sjá hvað þarf til að karlinn í svörtuloftum víki ásamt
sínum tindátum.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 25. Jan 2009 12:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
bimmer wrote:
Ekki mikil eftirsjá af Björgvin því hann virtist alltaf út á þekju
málefnalega séð - vissi aldrei neitt og hafði aldrei heyrt neitt um
neitt. Virðist hins vegar vera ágætasti náungi og kemur vel fyrir.

Nú er bara að sjá hvað þarf til að karlinn í svörtuloftum víki ásamt
sínum tindátum.


Hann segir alla vega ekki af ser... Það er a hreinu..

:x

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 25. Jan 2009 13:04 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Þetta er hégómi og sýndarmennska,, alger veruleika firring
að segja af sér og halda að viðkomandi sé að gera rétt,,,,,,,,

það er grátbroslegt að segja af sér NÚNA í ljósi aðstæðna,,

vægast sagt snautleg framkoma í garð þjóðarinnar,,

átti að gera þetta fyrir löngu en ekki þegar allar sperrur eru fúnar og risið riðar til falls

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 25. Jan 2009 14:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Popp og kók 8)

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 25. Jan 2009 23:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Well þetta er bílaspjall...

Er búinn að taka smá status á 997 porkunum sem eru til sölu og svo
virðist sem flestir séu á leið úr landi.

Ísl. verðlagningin er sambærileg mobile... sem sagt það kostar tvöfalt meira
að koma svona bíl(sem og öðrum) til landsins seinna meir ef gengið helst
sambærilegt.

Skal viðurkenna að það er smá eftirsjá að horfa á eftir þessu öllu saman
úr landi.. :(

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 26. Jan 2009 10:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Jæja, vísir heldur því fram að samstarfi hafi verið slitið og Steingrímur J. Sigfússon verði fjármálaráðherra. Sá maður er svo langt frá því að vera samkvæmur sjálfum sér ef það gengur eftir. Hann er sá sem hefur mest drullað yfir þá staðreynt að við skulum vera með dýralækni í fjármálaráðherrastöðu o.s.frv.. Sjálfur er Steingrímur jarðfræðingur og uppeldisfræðingur.

Ætla rétt að vona að þetta sé ekki rétt.. Annars er hann búinn að drulla all hressilega upp á bak.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 26. Jan 2009 11:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
það er 1 sigur í höfn, en spilið er ekki búið, það sem ég er hræddastur um núna er að VG og þessi nýja yfirgengilega-vafasama framsóknar hreyfing fái þetta upp í hendurnar,

sáuð þið kastljósið Þegar geir spurði steingrím hvað hann ætlaði að gera við lánið? ég hef ekki séð mann blikka augunum hraðar..

ég vill fá þjóðstjórn, ég efast um að svo fari, en ´æeg trúi því að það sé réttast,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 26. Jan 2009 13:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Jæja þa er stjornarsamstarfinu lokið og liklegast er að mynduð verður þjoðstjorn fram að kosningum :shock:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 115, 116, 117, 118, 119, 120, 121 ... 246  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 27 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group