Alpina wrote:
Jónas wrote:
Alpina wrote:
hvað segið þið um þetta .........
Alltaf gott að gefa upp heimildir.
Uuuufff

Þetta var flott innlegg og ekki farið með neitt fleipur þarna þegar staða annarra landa er skoðuð. Þetta er auðvitað það sem hefur verið hamrað á að það er hrun allsstaðar.
Það breytir því samt ekki að ekki var hlustað á viðvörunarbjöllurnar og þó einhverjir aðrir hafi heldur ekki gert það þá er það engin afsökun. FME hefur líka haft fjölda mála til rannsókna og ekkert komið út úr þeim. Það getur að miklu leiti stafað af lögræðingaher bankanna sem jarðaði FME á hverjum fundi sem komið var á. En FME klappaði þeim líka á bakið og proppaði bönkunum upp sem fínustu fjármálastofnunum, vitandi að þeir voru það ekki.
Reyndar vissi ég þetta ekki með fiskistofu en það er kannski lýsandi fyrir undirmönnun FME að hafa ekki haft í það minnsta jafn marga starfsmenn.
Bottom line er hinsvegar, að hér varð kerfishrun, einmitt vegna krosseignatengsla og þess að allir virðast hafa notað sama módelið af þremur stóru bönkunum (carry trade og allt það). Það er þetta kerfishrun sem gerir það svo alvarlegt að ekki hafi verið gripið inn í og það er það sem menn þurfa að axla ábyrgð á í það minnsta.
Það má svo vel vera að við verðum relatíft minna í skítnum eftir ár eða tvö þegar hin hagkerfin taka gríðarlega skelli með tilheyrandi veikingu á gjaldmiðlum þeirra.
Maður sér t.d. ekki hvernig Danmörk ætlar að takast á við þetta - varla geta þeir aukið skatta meira í skattpíndasta landi í heimi? Það er ekkert hægt að gera nema skera niður almannaþjónustu og sætta sig við mikið atvinnuleysi.