mótmælin á austurvelli

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby thisman » Thu 22. Jan 2009 20:32

jeppakall wrote:
bebecar wrote:Það verður að nást sátt um uppbyggingarstarfið og þá verður að boða til þjóðstjórnar eða neyðarstjórnar (Davíð virðist hafa haft rétt fyrir sér í október!). Kosningar gætu svo farið fram í sumar eða haust, vorið líklega of snemmt. En á meðan fólk talar um ofbeldi og byltingu þá má stjórnin ekki fara frá.
Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá kosningar í vor, VG í forsæti ríkisstjórnarsamstarfsins og svo álíka mótmæli næsta sumar vegna þess að ekkert hefur gerst eða ástandið versnað... á þá VG líka að fara frá þegar fólk fer fram með ofbeldi?


"EF" VG fengi stjórnartaumana þá myndi ég halda að þeir settu nú aðeins gáfaðara fólk en dýralækna í ráðherrastörf! Þeir eru ekki eins og Sjálfstæðisflokkurinn sem setur klíkuskap ávallt í fyrsta sæti þegar kemur að því að ráða í störf! Við erum með urmul af fólki sem er býr yfir mikilli þekkingu á þessum sviðum og það þarf að fá svoleiðis fólk til að stjórna þessu landi...ekki fleirri dýralækna í fjármálaráðuneytið!

Það er náttúrlega arfavitlaust að segja að dýralækna skorti gáfur, dæmir sig bara sjálft. En þú telur semsagt að ef VG kæmist til valda að þeir myndu ekki setja formanninn sinn í stórt ráðuneyti? Hann er jarðfræðingur og ég sé alls ekki stigsmuninn á því gagnvart pólitík og að vera dýralæknir. Einnig geri ég fastlega ráð fyrir því að varaformaðurinn fengi nú eitthvað veigamikið hlutverk og hún er með háskólagráðu í íslenskum bókmenntum.

Þar með er ekki sjálfgefið að þau séu óhæf að sinna ráðherrastöðum en mér finnst það skrambi hæpið að segja að VG búi yfir hæfari einstaklingum þegar kemur að menntun.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

.

Postby Wolf » Thu 22. Jan 2009 22:28

Menn eru að tala um að FME hafi gert uppá bak og þar þurfi að taka rækilega til, sem er alveg rétt... og tala á sama tíma um að þeir ætli frekar að kjósa samfylkunguna.... á hvers höndum er eignlega FME? er það ekki......ssssssssssssssss
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008
Wolf
Getawaybílstjóri
 
Posts: 764
Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53

Postby dabbiso0 » Fri 23. Jan 2009 04:18

Hvað er síðan næsta skref sem er eitthvað vit í varðandi framtíð okkar ástkæra lands?

Mótmæli hitt mótmæli þetta.


Er ekki einnig kominn tími á það að leggja niður, eða takmarka vægi úrelts verkfæris eins og stýrivaxta, það er margbúið að sanna sig að það hefur verulega takmörkuð áhrif á efnahaginn. Þeir sem réðu genginu voru þeir sem gátu það, s.s þeir sem gátu yfirboðið gjaldeyrinn áður en hann náði til landsins. Himinháir stýrivextir eins og þeir eru núna, algerlega drepa niður viðskiptalíf eins og það leggur sig innanlands, og allt gengur á hraða snigils.
dabbiso0
Getawaybílstjóri
 
Posts: 584
Joined: Thu 25. Dec 2008 09:22

Postby siggir » Fri 23. Jan 2009 07:27

KristoferK wrote:Þessi 4-5 þúsund manns þurfa að komast yfir þetta stórmennskubrjálæði sitt og átta sig á því að þeir eru ekki fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Menn eru stöðugt að varpa sömu setningunni fram; "Á meðan Ríkisstjórnin hlustar ekki, þá versna mótmælin bara;" Hvenær ætla þessir hálvitar að átta sig á því að Ríkisstjórnin er alveg að hlusta, hún bara fer ekki endilega eftir skoðunun rétt um 2% þjóðarinnar. Hvenær ætla þessir steinaldarmenn að skilja að þjóðin "hefur ekki talað eitt né neitt" í þessum villimannsaðgerðum?


Hérna hefurðu þetta svart á hvítu. 2% hvað? :roll:

http://www.mbl.is/mm/frettir/forsida/2009/01/23/meirihlutinn_stydur_motmaelin/
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Postby Jónas » Fri 23. Jan 2009 08:19

siggir wrote:
KristoferK wrote:Þessi 4-5 þúsund manns þurfa að komast yfir þetta stórmennskubrjálæði sitt og átta sig á því að þeir eru ekki fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Menn eru stöðugt að varpa sömu setningunni fram; "Á meðan Ríkisstjórnin hlustar ekki, þá versna mótmælin bara;" Hvenær ætla þessir hálvitar að átta sig á því að Ríkisstjórnin er alveg að hlusta, hún bara fer ekki endilega eftir skoðunun rétt um 2% þjóðarinnar. Hvenær ætla þessir steinaldarmenn að skilja að þjóðin "hefur ekki talað eitt né neitt" í þessum villimannsaðgerðum?


Hérna hefurðu þetta svart á hvítu. 2% hvað? :roll:

http://www.mbl.is/mm/frettir/forsida/2009/01/23/meirihlutinn_stydur_motmaelin/


Hvað var úrtakið stórt?

Hvert var svarhlutfallið?

Það er hægt að misnota svona kannanir endalaust í beggja hag.

Svona kannanir segja ekki jack shit.
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby Angelic0- » Fri 23. Jan 2009 09:58

Ég rakst á IceDev þarna...

Ætlaði að taka massa burnout fyrir hann, en ákvað svo að vera mellow og vona að hann myndi ekki fatta að ég sveik lit í gærkvöldi..
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby gunnar » Fri 23. Jan 2009 12:31

Eitthvað stort i gangi nuna?

Geir i pontu..
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby gunnar » Fri 23. Jan 2009 12:35

Wow, þetta var nu ekki það sem maður bjost við.

Maður vonar nu bara að karlinn jafni sig af þessu.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Fri 23. Jan 2009 12:52

loksins virkaði að mótmæla á íslandi :)

höldum áfram og fáum nýja stjórn þangað til kosið verður
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Jónas » Fri 23. Jan 2009 12:56

Hræðilegur dagur í sögu Íslands.

Vonandi nær Geir sér á fullu og kemur aftur í stjórnmál.

Mikill missir.
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby gstuning » Fri 23. Jan 2009 12:59

Hvernig væri að fá betri úskýringu á að ÞETTA sé versti dagur í sögu ísland.

Ertu kannski að meina að hlutirnir batni héðan af :)
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby arnibjorn » Fri 23. Jan 2009 13:00

gstuning wrote:Hvernig væri að fá betri úskýringu á að ÞETTA sé versti dagur í sögu ísland.

Ertu kannski að meina að hlutirnir batni héðan af :)


:hmm:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Einarsss » Fri 23. Jan 2009 13:00

arnibjorn wrote:
gstuning wrote:Hvernig væri að fá betri úskýringu á að ÞETTA sé versti dagur í sögu ísland.

Ertu kannski að meina að hlutirnir batni héðan af :)


:hmm:


lesa ofar
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby bebecar » Fri 23. Jan 2009 13:04

einarsss wrote:loksins virkaði að mótmæla á íslandi :)

höldum áfram og fáum nýja stjórn þangað til kosið verður


Nýja stjórn frá því núna og fram í maí???? :shock:

Það er bilun að mínu mati :!:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby arnibjorn » Fri 23. Jan 2009 13:07

einarsss wrote:
arnibjorn wrote:
gstuning wrote:Hvernig væri að fá betri úskýringu á að ÞETTA sé versti dagur í sögu ísland.

Ertu kannski að meina að hlutirnir batni héðan af :)


:hmm:


lesa ofar


Hvar??

Sé hvergi talað um að þetta sé versti dagur í sögu íslands :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 65 guests