jeppakall wrote:
bebecar wrote:
Það verður að nást sátt um uppbyggingarstarfið og þá verður að boða til þjóðstjórnar eða neyðarstjórnar (Davíð virðist hafa haft rétt fyrir sér í október!). Kosningar gætu svo farið fram í sumar eða haust, vorið líklega of snemmt. En á meðan fólk talar um ofbeldi og byltingu þá má stjórnin ekki fara frá.
Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá kosningar í vor, VG í forsæti ríkisstjórnarsamstarfsins og svo álíka mótmæli næsta sumar vegna þess að ekkert hefur gerst eða ástandið versnað... á þá VG líka að fara frá þegar fólk fer fram með ofbeldi?
"EF" VG fengi stjórnartaumana þá myndi ég halda að þeir settu nú aðeins gáfaðara fólk en dýralækna í ráðherrastörf! Þeir eru ekki eins og Sjálfstæðisflokkurinn sem setur klíkuskap ávallt í fyrsta sæti þegar kemur að því að ráða í störf! Við erum með urmul af fólki sem er býr yfir mikilli þekkingu á þessum sviðum og það þarf að fá svoleiðis fólk til að stjórna þessu landi...ekki fleirri dýralækna í fjármálaráðuneytið!
Það er náttúrlega arfavitlaust að segja að dýralækna skorti gáfur, dæmir sig bara sjálft. En þú telur semsagt að ef VG kæmist til valda að þeir myndu ekki setja formanninn sinn í stórt ráðuneyti? Hann er jarðfræðingur og ég sé alls ekki stigsmuninn á því gagnvart pólitík og að vera dýralæknir. Einnig geri ég fastlega ráð fyrir því að varaformaðurinn fengi nú eitthvað veigamikið hlutverk og hún er með háskólagráðu í íslenskum bókmenntum.
Þar með er ekki sjálfgefið að þau séu óhæf að sinna ráðherrastöðum en mér finnst það skrambi hæpið að segja að VG búi yfir hæfari einstaklingum þegar kemur að menntun.