mótmælin á austurvelli

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby gunnar » Thu 22. Jan 2009 12:02

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/0 ... ef=fphelst

Þetta er klárlega dæmi um þær öfgar sem svona mótmæli geta borið með sér. Fólk er að persónugera laganna verði og ég vona svo sannarlega að menn sjái nú að sér með þetta.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Stanky » Thu 22. Jan 2009 12:05

gunnar wrote:http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/22/nafnbirtingin_grafalvarlegt_mal/?ref=fphelst

Þetta er klárlega dæmi um þær öfgar sem svona mótmæli geta borið með sér. Fólk er að persónugera laganna verði og ég vona svo sannarlega að menn sjái nú að sér með þetta.

Að mínu mati verður fólk að passa sig á því að
persónugera mótmæli ekki og ekki heldur lögreglumennirnir.

Trúðverðugleiki stráksins með myndavélina er
verri en lögreglumannsins, en ef þetta er satt
sem strákurinn er að segja, þá er það grafalvarlegt mál.

Mótmæli virka ekkert ef maður er að fara niðrí bæ
að mótmæla Palla Löggumanni. Ef fólk vill mótmæla
lögreglunni, þá geta þeir bara staðið fyrir utan lögreglustöðina.
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Astijons » Thu 22. Jan 2009 12:10

er þetta bara ekki einsog Bush sagði... annað hvort ertu með okkur eða á móti ? :P
Astijons
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1035
Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38

Postby íbbi_ » Thu 22. Jan 2009 12:49

KristoferK wrote:http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/22/taragasi_beitt_a_austurvelli/

Hlaut að koma að því að táragasi yrði beitt. Einn lögreglumaður alvarlega slasaður eftir að einhver óþokki henti í hann gangstéttarhellu... Hvenær ætlar fólk að átta sig á því að þetta hefur gengið alltof langt?

Þessi mótmæli eru svoleiðis búin að snúast upp í andstöðu sína að það hálfa væri nóg. Þetta fólk heimtar "réttlæti" og grýtir svo múrsteinum í lögreguþjóna? Hvaða fullþroska einstaklingur mótmælir í nafni "réttlætis" og leyfir sér svo að beita ofbeldi eftir hentisemi. Eða eru þetta kannski skilaboð "þjóðarinnar;" Ofbeldi er hið nýja réttlæti?

Þessi 4-5 þúsund manns þurfa að komast yfir þetta stórmennskubrjálæði sitt og átta sig á því að þeir eru ekki fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Menn eru stöðugt að varpa sömu setningunni fram; "Á meðan Ríkisstjórnin hlustar ekki, þá versna mótmælin bara;" Hvenær ætla þessir hálvitar að átta sig á því að Ríkisstjórnin er alveg að hlusta, hún bara fer ekki endilega eftir skoðunun rétt um 2% þjóðarinnar. Hvenær ætla þessir steinaldarmenn að skilja að þjóðin "hefur ekki talað eitt né neitt" í þessum villimannsaðgerðum?

Ég hefði haldið að Íslendingar væri hafnir yfir svona fáránlegheit. Núna eru mann bara farnir að heimta byltingu.... BYLTINGU! Hvaða land er þetta eiginlega? Kúba fyrir 60 árum? Við lifum í lýðræðisríki og fólk vælir og heimtar byltingu... Þessar Che Guevara derhúfur voru kannski meira en bara tískubóla eftir allt saman.

Ég er algjörlega búinn að missa alla trú á þessu fólki. Þeirra trúverðugleiki er algjörlega núll í mínum augum og barátta þjóðarinnar gegn ábyrgðarmönnum krísunnar er að molna niður í vitleysu útaf þessum apagangi. Halda menn virkilega að svona aðgerðir ná fram árangri? Ef svona ofbeldi steypir ríkisstjórninni þá yrði Ísland ekkert meira en misheppnað ríki.

Ég get vel skilið að margur maðurinn hafi misst vinnuna, spariféð, húsið og jafnvel meira. Og ég vorkenni því fólk jafn mikið og næsti maður... En ekkert afsakar svona skæruliðsaðgerðir og þetta fólk er ekkert annað en glæpamenn. Þessa einstaklinga á að draga fyrir dóm. Ég ætla rétt að vona að sá sem kastaði gangstéttarhellunni í lögreglumann (og slasaði hann alvarlega fyrir vikið) verði dreginni til saka og honum refsað í samræmi við lög og reglur. Þau lög og þær reglur sem þetta þjóðfélag okkar og ríki var reist á.

Aðilar báðu meginn þurfa í hið minnsta að fara passa sig, bæði einstaka lögregluþjónar með mikilmennskubrjálæði ásamt einstaka mótmælendum sem hafa bara áhuga á að egna lögreglu og fara ekki eftir fyrirmælum áður en einhver hlýtur varanlegan miska í þessu öllu saman og þetta mál verður virkilega, virkilega dapurlegt og sorglegt.

svei mér þá ef þú ert ekii bara einhver sá raunveruleikafirtasti fáviti sem ég hef rekist á lengi, táknar það ekkert þegar 5-7þúsund manns mæta öskuill og krefjast afsagnar? ef þú færð út að svo sé, þá ert það þú sem ert ekki að fatta, ekki liðið

ég var til loka mótmælana fyrsta daginn, ég fór strax eftir vinnu í gær og sat svo fund samfylkingafélagsins, sem var reyndar misjafn. held að samfylkingafólk geri sér ekki almennilega grein fyrir því hversu mikið fólk er á móti þeim,

ég hef ekki kastað einum einasta hhlut, og það sama gildir um LANG flesta þarna,. þetta eru óharðnair skólakrakkar sem eru að mæta með egg og drasl þarna.

m.a við ástandið hefur lögregla staðið sig eins og hetja, og tekið á málunum á MJÖG þroskaðan hátt, þetta eru eflaust eitt mest extreme vinnuaðstaða sem nokkrum manni hefur verið stillt upp í hér á landi,

mótmælin hafa strax hrist verulega upp í hlutunum, á öðru kvöldi gaf samfylkingin eftir, þannig að þið sem segið að hávær eða róttæk mótmæli virki ekki, getið étið það ofan í ykkur aftur,

geir H gæti gert út um málið núna, hann gæti meirasegja setið áfram með réttu hugsa ég, EF hann myndi stokka upp, losa sig við davíð, ´stokka upp í fjármálaráðuneytinu, burt með viðskipta og fjármálaráðherra, og flr, ef hann myndi gera þetta, þá myndi ég kjósa hann, ég hef fulla trú á geir sjálfum, en meðan hann ætlar að sitja fastur, útskýra ekki neitt, stokka ekkert upp, og taka sjálfur persónulega höggið fyrir þá alla, þá vill ég hann og hans hafurtaks burt,

þessi ríkisstjórn hefur ekki minnsta umboð til áframhaldandi setu með óbreyttu, fólkið sme er að mótmæla er nefnilega fulltrúar þjóðarinnar, þeir sem eru því ekki sammála eru bara einfaldlega komnir í hitt liðið,

annars vill ég sjálfur þjóðstjórn, það er ekki einn hæfur flokkur þarna, eg eins og annars hérna fæ uppí kok við hugsunina um að velja aftur úr sama liðinu,
en ég er mjög hræddur um að vinstri grænir komi til með að fá landið afhent,

og eins og áður hvet ég sem flesta til að mæta,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Dóri- » Thu 22. Jan 2009 13:03

íbbi_ wrote:

:clap:
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby gunnar » Thu 22. Jan 2009 14:43

Mjög gott innlegg hja honum Ibba,

http://visir.is/article/20090122/FRETTIR01/264547796/-1

Mæli með að menn horfi a þetta aðeins.

Þetta finnst mer natturulega bara ut i hött, ungir vandræðagemlingar að heyja strið við laganna verði.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Thu 22. Jan 2009 15:32

gunnar wrote:Mjög gott innlegg hja honum Ibba,

http://visir.is/article/20090122/FRETTIR01/264547796/-1

Mæli með að menn horfi a þetta aðeins.

Þetta finnst mer natturulega bara ut i hött, ungir vandræðagemlingar að heyja strið við laganna verði.

alveg ömurlegt þegar það eru unglingar með svona læti og skemma fyrir. eini tilgangur flestra unglingana þarna er að bögga lögguna.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby bebecar » Thu 22. Jan 2009 15:43

einarsss wrote:
gunnar wrote:Mjög gott innlegg hja honum Ibba,

http://visir.is/article/20090122/FRETTIR01/264547796/-1

Mæli með að menn horfi a þetta aðeins.

Þetta finnst mer natturulega bara ut i hött, ungir vandræðagemlingar að heyja strið við laganna verði.

alveg ömurlegt þegar það eru unglingar með svona læti og skemma fyrir. eini tilgangur flestra unglingana þarna er að bögga lögguna.

Það verður að taka hart á þessu - ekki um annað að ræða.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Zed III » Thu 22. Jan 2009 15:56

Það er alveg sorglegt að fylgjast með fréttum þessa stundina.

Hvernig í fjandanum hjálpar það okkur að brjóta rúður í Dómkirkjunni ?

Ég segi út með dælubílinn og rafbyssurnar til að stöðva þessa ofbeldisseggi.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Postby Zyklus » Thu 22. Jan 2009 16:18

Þetta er náttúrulega komið út í algjört rugl þegar farið er að grýta lögreglumenn og skemma eignir, algjörlega óverjanlegt.

Ég veit það að langflestir sem hafa mætt á mótmælin hingað til hafa mótmælt friðsamlega og þannig á það að vera en nú er greinilegt að innan um mótmælendurna eru komnir hreinir glæpamenn sem verður að taka úr umferð.

Sorglegt að þetta sé komið í þennan farveg.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby Stanky » Thu 22. Jan 2009 16:19

bebecar wrote:
einarsss wrote:
gunnar wrote:Mjög gott innlegg hja honum Ibba,

http://visir.is/article/20090122/FRETTIR01/264547796/-1

Mæli með að menn horfi a þetta aðeins.

Þetta finnst mer natturulega bara ut i hött, ungir vandræðagemlingar að heyja strið við laganna verði.

alveg ömurlegt þegar það eru unglingar með svona læti og skemma fyrir. eini tilgangur flestra unglingana þarna er að bögga lögguna.

Það verður að taka hart á þessu - ekki um annað að ræða.

Afhveru er fólk farið að mótmæla löggunni en ekki ríkisstjórninni allt í einu? #-o :slap:
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby ValliFudd » Thu 22. Jan 2009 16:23

User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby maxel » Thu 22. Jan 2009 16:25

Sjáið nú hverjir hengu þarna framá á kvöld og voru að þessu.
Guttar að sparka á lögguna og like Bruce Willis.
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Postby bErio » Thu 22. Jan 2009 16:29

Damn hvað þetta er farið út í eitthvða rugl!
BMW E39 530D '03 ///M-Tech - Stations
BMW E39 540i '00 - Sedans

E39 k1ng
Sævar P.
User avatar
bErio
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3691
Joined: Mon 25. Sep 2006 09:39

Postby íbbi_ » Thu 22. Jan 2009 16:31

ég áhvað að fara snemma heim í gær, eða akkurat um það leyti sem hersingin hélt aftur niður eftir, enda setið 10tíma+ í skóla báða dagana og verið að sofa 2-3 tíma á nóttu, um það leyti sem ég fór þá tóku mótmælin á sig dáldið meira extreme mynd en áður, og fólk fór að grýta lögguna, sem er með öllu óafsakanlegt,

það sem vakti athygli mína samt er að þá tók hópur mótmælendana sig til og gerði skjaldborg utanum lögreglumennina, það var stórglæsilegt,

þeir sem vilja mótmæla, en ekki að hegða sér eins og óþroskaðir krakkar, geta mætt með eitthvað appelsínugult og haldið á eða budið við sig, og táknar það að viðkomandi vilji ekkert með ofbeldi eða öfgakennda háttsemi að hafa, heldur eingöngu mæta og mótmæla,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 24 guests