bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 14:19

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 220 posts ]  Go to page Previous  1 ... 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11 ... 15  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 01:19 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Mon 24. Sep 2007 00:33
Posts: 175
Location: Reykjavík
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/0 ... sturvelli/

Hlaut að koma að því að táragasi yrði beitt. Einn lögreglumaður alvarlega slasaður eftir að einhver óþokki henti í hann gangstéttarhellu... Hvenær ætlar fólk að átta sig á því að þetta hefur gengið alltof langt?

Þessi mótmæli eru svoleiðis búin að snúast upp í andstöðu sína að það hálfa væri nóg. Þetta fólk heimtar "réttlæti" og grýtir svo múrsteinum í lögreguþjóna? Hvaða fullþroska einstaklingur mótmælir í nafni "réttlætis" og leyfir sér svo að beita ofbeldi eftir hentisemi. Eða eru þetta kannski skilaboð "þjóðarinnar;" Ofbeldi er hið nýja réttlæti?

Þessi 4-5 þúsund manns þurfa að komast yfir þetta stórmennskubrjálæði sitt og átta sig á því að þeir eru ekki fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Menn eru stöðugt að varpa sömu setningunni fram; "Á meðan Ríkisstjórnin hlustar ekki, þá versna mótmælin bara;" Hvenær ætla þessir hálvitar að átta sig á því að Ríkisstjórnin er alveg að hlusta, hún bara fer ekki endilega eftir skoðunun rétt um 2% þjóðarinnar. Hvenær ætla þessir steinaldarmenn að skilja að þjóðin "hefur ekki talað eitt né neitt" í þessum villimannsaðgerðum?

Ég hefði haldið að Íslendingar væri hafnir yfir svona fáránlegheit. Núna eru mann bara farnir að heimta byltingu.... BYLTINGU! Hvaða land er þetta eiginlega? Kúba fyrir 60 árum? Við lifum í lýðræðisríki og fólk vælir og heimtar byltingu... Þessar Che Guevara derhúfur voru kannski meira en bara tískubóla eftir allt saman.

Ég er algjörlega búinn að missa alla trú á þessu fólki. Þeirra trúverðugleiki er algjörlega núll í mínum augum og barátta þjóðarinnar gegn ábyrgðarmönnum krísunnar er að molna niður í vitleysu útaf þessum apagangi. Halda menn virkilega að svona aðgerðir ná fram árangri? Ef svona ofbeldi steypir ríkisstjórninni þá yrði Ísland ekkert meira en misheppnað ríki.

Ég get vel skilið að margur maðurinn hafi misst vinnuna, spariféð, húsið og jafnvel meira. Og ég vorkenni því fólk jafn mikið og næsti maður... En ekkert afsakar svona skæruliðsaðgerðir og þetta fólk er ekkert annað en glæpamenn. Þessa einstaklinga á að draga fyrir dóm. Ég ætla rétt að vona að sá sem kastaði gangstéttarhellunni í lögreglumann (og slasaði hann alvarlega fyrir vikið) verði dreginni til saka og honum refsað í samræmi við lög og reglur. Þau lög og þær reglur sem þetta þjóðfélag okkar og ríki var reist á.

Aðilar báðu meginn þurfa í hið minnsta að fara passa sig, bæði einstaka lögregluþjónar með mikilmennskubrjálæði ásamt einstaka mótmælendum sem hafa bara áhuga á að egna lögreglu og fara ekki eftir fyrirmælum áður en einhver hlýtur varanlegan miska í þessu öllu saman og þetta mál verður virkilega, virkilega dapurlegt og sorglegt.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 01:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
maxel wrote:
Dóri- wrote:
Svo margir sem fatta bara ekki að löggan er að gera það sem henni er sagt að gera... Auðvitað eru til fífl inn á milli, það væri eitthvað skrítið ef að svo væri ekki.
Pabbi minn er lögga:king:


Lagaði þetta


:lol:

Annars vantar alveg inn í fréttina um táragasið (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/0 ... sturvelli/) hvort skeði á undan táragasið eða löggan slösuð.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 01:34 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Posts: 444
Location: RVK
Labbaðu aftur framhjá Austurvelli fyrir svona hálftíma síðan, þetta var komið útí ruglið :shock:
Fólk að láta grjót og glerflöskur rigna yfir lögregluhópinn, sumir alveg að tapa sér í múgæsingunni.
Ég spurði einhver gaur þarna hvað væri í gangi og hann svaraði: „Það er verið að hefna fyrir að löggan notaði táragas“.
Svo labba ég framhjá forngreftrarsvæðinu þarna við hliðiná og þar er hópur að tína saman grjóthnullungana til þess að bomba í löggurnar.
Þá einmitt skaut löggan öðru táragas hylki í hópinn sem dreifði honum ágætlega. Meira ógeðið að anda þessu táragasi að sér.

Ég fékk allavega á tilfinninguna í þennan stutta tíma sem ég var þarna að fólkið væri ekki að mótmæla ríkisstjórninni, heldur bara að einbeita sér að því að ráðast á lögregluna :roll:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 01:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
ég væri ekki til í að vera gæjinn sem gaf út skipunina að nota táragas, sýndist á öllu þegar ég var þarna um tólf leytið að megnið af liðinu væri á leið heim.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 02:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
Þarf maður að fara að taka gasgrímuna með sér

_________________
Suzuki Sidekick 33" 1977


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 02:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
KristoferK wrote:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/22/taragasi_beitt_a_austurvelli/

Hlaut að koma að því að táragasi yrði beitt. Einn lögreglumaður alvarlega slasaður eftir að einhver óþokki henti í hann gangstéttarhellu... Hvenær ætlar fólk að átta sig á því að þetta hefur gengið alltof langt?

Þessi mótmæli eru svoleiðis búin að snúast upp í andstöðu sína að það hálfa væri nóg. Þetta fólk heimtar "réttlæti" og grýtir svo múrsteinum í lögreguþjóna? Hvaða fullþroska einstaklingur mótmælir í nafni "réttlætis" og leyfir sér svo að beita ofbeldi eftir hentisemi. Eða eru þetta kannski skilaboð "þjóðarinnar;" Ofbeldi er hið nýja réttlæti?

Þessi 4-5 þúsund manns þurfa að komast yfir þetta stórmennskubrjálæði sitt og átta sig á því að þeir eru ekki fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Menn eru stöðugt að varpa sömu setningunni fram; "Á meðan Ríkisstjórnin hlustar ekki, þá versna mótmælin bara;" Hvenær ætla þessir hálvitar að átta sig á því að Ríkisstjórnin er alveg að hlusta, hún bara fer ekki endilega eftir skoðunun rétt um 2% þjóðarinnar. Hvenær ætla þessir steinaldarmenn að skilja að þjóðin "hefur ekki talað eitt né neitt" í þessum villimannsaðgerðum?

Ég hefði haldið að Íslendingar væri hafnir yfir svona fáránlegheit. Núna eru mann bara farnir að heimta byltingu.... BYLTINGU! Hvaða land er þetta eiginlega? Kúba fyrir 60 árum? Við lifum í lýðræðisríki og fólk vælir og heimtar byltingu... Þessar Che Guevara derhúfur voru kannski meira en bara tískubóla eftir allt saman.

Ég er algjörlega búinn að missa alla trú á þessu fólki. Þeirra trúverðugleiki er algjörlega núll í mínum augum og barátta þjóðarinnar gegn ábyrgðarmönnum krísunnar er að molna niður í vitleysu útaf þessum apagangi. Halda menn virkilega að svona aðgerðir ná fram árangri? Ef svona ofbeldi steypir ríkisstjórninni þá yrði Ísland ekkert meira en misheppnað ríki.

Ég get vel skilið að margur maðurinn hafi misst vinnuna, spariféð, húsið og jafnvel meira. Og ég vorkenni því fólk jafn mikið og næsti maður... En ekkert afsakar svona skæruliðsaðgerðir og þetta fólk er ekkert annað en glæpamenn. Þessa einstaklinga á að draga fyrir dóm. Ég ætla rétt að vona að sá sem kastaði gangstéttarhellunni í lögreglumann (og slasaði hann alvarlega fyrir vikið) verði dreginni til saka og honum refsað í samræmi við lög og reglur. Þau lög og þær reglur sem þetta þjóðfélag okkar og ríki var reist á.

Aðilar báðu meginn þurfa í hið minnsta að fara passa sig, bæði einstaka lögregluþjónar með mikilmennskubrjálæði ásamt einstaka mótmælendum sem hafa bara áhuga á að egna lögreglu og fara ekki eftir fyrirmælum áður en einhver hlýtur varanlegan miska í þessu öllu saman og þetta mál verður virkilega, virkilega dapurlegt og sorglegt.


Þú ert nú alveg kostulegur vinur. Hvernig getur þú sagt að þetta séu bara 4-5 þúsund manns sem vilja ríkisstjórnina burt? Afþví að það eru bara 4-5 þúsund manns sem sjá sér fært að mæta á virkum degi til að mótmæla?

99% þessa fólks er bara venjulegt fólk eins og fjölskyldan þín og fjölskyldan mín. Fólk sem er pakksatt af rugli og reynimakki ráðamanna, í bland við flokkahliðhollustu pólitíkusanna. Mótmælendurnir eru ekki glæpamenn né ribbaldar, þó svo að rotnu eplin leynist jú í öllum hornum þjóðfélagsins. Líka hjá lögreglunni sem ég horfði á lemja unga dömu með kylfu í lærlegginn áðan, svo fast að hún gat ekki gengið, heldur lá bara með ekka og emjaði úr sársauka. Og nei, hún var ekki vopnuð molotov kokteil né múrsteinum til þess að lumbra á lögreglunni... svona áður en þú ákveður að hún hafi verið í slagsmálagírnum.

Lögreglan á samt í heild sinni hrós skilið fyrir sín störf! Mæli samt með sterkari táragasi ef þeir vilja að fólk fari burt... þetta sem var notað í kvöld var algjört prump.

Ástæðan fyrir því að þetta hefur gengið svona langt er að ríkisstjórnin er rúin trausti, og þetta gengur eins langt og þarf til að þeir segi af sér. Eða varstu að meina að mótmælin séu gengin of langt til þess að ráðamenn þjóðarinnar geti ekki lengur horft undan og látið sem þau eigi sér ekki stað?

Eða viltu frekar að fólk nagl haldi bara kjafti og flýji land þess í stað?

Þú þarft ekki að vera sammála mér, en ekki heldur ætlast til þess að allir séu sammála þér.

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 03:30 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sat 13. Oct 2007 01:24
Posts: 323
Location: Árbær
þetta er bull :?

_________________
Range rover sport 22"
CLS 500 AMG


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 07:46 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Mótmælendur verða að hafa hemil á þeim sem eru þarna til að beita ofbeldi. Þessi málstaður verður að engu um leið og ofbeldi er beitt og bara við það eitt að hegða sér svona má ríkisstjórnin ekki fara frá. Engin lýðræðislega kosin ríkisstjórn má fara frá völdum undir kringumstæðum þar sem ofbeldi er beitt!!!

Þetta er ömurlega staða. Ég þekki fullt af góðu fólki sem mótmælir friðsamlega en því miður virðast forsvarsmenn þessa hóps ekki hafa manndóm í sér til að fordæma ofbeldið í eigin röðum. Það eina sem gerist er að fólk mun skipa sér í línurnar. Ef ofbeldi er beitt neyðist það fólk sem virðir stjórnarskrá, lög og reglur til að fylkja sér að baki ríkisstjórn sem það vill ekki hafa.

Maður veltir fyrir sér hvort það sé of seint að láta ráðherra segja af sér og skapa þannig frið um það starf sem þarf að vinna á næstu vikum.

Annars var augljóslega mun skynsamlegra að mótmæla fyrir utan hjá Samfylkingunni - þeir sprungu allavega á limminu á þeim fundi.

Eins súr og maður er út í Geir fyrir að hafa ekki sýnt í verki að menn yrðu látnir taka ábyrgð ástandinu þá fær hann prik fyrir að láta ekki undan ofbeldinu.

Svo vaknar maður hér og les um táragas og avarlega slasaða lögregluþjóna.
"Vont er þeirra ranglæti, en verra þeirra réttlæti" eins og segir í Íslandsklukkunni segi ég bara!

Það verður að nást sátt um uppbyggingarstarfið og þá verður að boða til þjóðstjórnar eða neyðarstjórnar (Davíð virðist hafa haft rétt fyrir sér í október!). Kosningar gætu svo farið fram í sumar eða haust, vorið líklega of snemmt. En á meðan fólk talar um ofbeldi og byltingu þá má stjórnin ekki fara frá.
Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá kosningar í vor, VG í forsæti ríkisstjórnarsamstarfsins og svo álíka mótmæli næsta sumar vegna þess að ekkert hefur gerst eða ástandið versnað... á þá VG líka að fara frá þegar fólk fer fram með ofbeldi?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 09:10 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
KristoferK wrote:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/22/taragasi_beitt_a_austurvelli/

Hlaut að koma að því að táragasi yrði beitt. Einn lögreglumaður alvarlega slasaður eftir að einhver óþokki henti í hann gangstéttarhellu... Hvenær ætlar fólk að átta sig á því að þetta hefur gengið alltof langt?

Þessi mótmæli eru svoleiðis búin að snúast upp í andstöðu sína að það hálfa væri nóg. Þetta fólk heimtar "réttlæti" og grýtir svo múrsteinum í lögreguþjóna? Hvaða fullþroska einstaklingur mótmælir í nafni "réttlætis" og leyfir sér svo að beita ofbeldi eftir hentisemi. Eða eru þetta kannski skilaboð "þjóðarinnar;" Ofbeldi er hið nýja réttlæti?

Þessi 4-5 þúsund manns þurfa að komast yfir þetta stórmennskubrjálæði sitt og átta sig á því að þeir eru ekki fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Menn eru stöðugt að varpa sömu setningunni fram; "Á meðan Ríkisstjórnin hlustar ekki, þá versna mótmælin bara;" Hvenær ætla þessir hálvitar að átta sig á því að Ríkisstjórnin er alveg að hlusta, hún bara fer ekki endilega eftir skoðunun rétt um 2% þjóðarinnar. Hvenær ætla þessir steinaldarmenn að skilja að þjóðin "hefur ekki talað eitt né neitt" í þessum villimannsaðgerðum?

Ég hefði haldið að Íslendingar væri hafnir yfir svona fáránlegheit. Núna eru mann bara farnir að heimta byltingu.... BYLTINGU! Hvaða land er þetta eiginlega? Kúba fyrir 60 árum? Við lifum í lýðræðisríki og fólk vælir og heimtar byltingu... Þessar Che Guevara derhúfur voru kannski meira en bara tískubóla eftir allt saman.

Ég er algjörlega búinn að missa alla trú á þessu fólki. Þeirra trúverðugleiki er algjörlega núll í mínum augum og barátta þjóðarinnar gegn ábyrgðarmönnum krísunnar er að molna niður í vitleysu útaf þessum apagangi. Halda menn virkilega að svona aðgerðir ná fram árangri? Ef svona ofbeldi steypir ríkisstjórninni þá yrði Ísland ekkert meira en misheppnað ríki.

Ég get vel skilið að margur maðurinn hafi misst vinnuna, spariféð, húsið og jafnvel meira. Og ég vorkenni því fólk jafn mikið og næsti maður... En ekkert afsakar svona skæruliðsaðgerðir og þetta fólk er ekkert annað en glæpamenn. Þessa einstaklinga á að draga fyrir dóm. Ég ætla rétt að vona að sá sem kastaði gangstéttarhellunni í lögreglumann (og slasaði hann alvarlega fyrir vikið) verði dreginni til saka og honum refsað í samræmi við lög og reglur. Þau lög og þær reglur sem þetta þjóðfélag okkar og ríki var reist á.

Aðilar báðu meginn þurfa í hið minnsta að fara passa sig, bæði einstaka lögregluþjónar með mikilmennskubrjálæði ásamt einstaka mótmælendum sem hafa bara áhuga á að egna lögreglu og fara ekki eftir fyrirmælum áður en einhver hlýtur varanlegan miska í þessu öllu saman og þetta mál verður virkilega, virkilega dapurlegt og sorglegt.

Ég ætla ekki að rökræða við þig þetta táragasmál og grjótkast, enda getum við allir verið sammála um að það er ekki góð stefna í þessum málum.

En ég verð að spyrja þig út í þetta sem er feitletrað. Hvað um þá sem bera ábyrgð á því að fólk missir sparifé, vinnuna og húsið? Eru það ekki skæruliðaaðgerðir? Eru hvítflibbaglæpir eitthvað merkilegri en aðrir glæpir?

Miðað við hvernig þú skrifar hér, þá geri ég ráð fyrir að þú hafir ekki tapað miklu. Kannski þvert á móti.

Ég get alveg sagt þér að ég hef alltaf kosið xD nema síðast, en þá svissaði ég yfir í Samfylkingu. Hefði kannski betur skilað auðu. En ég hef aldrei mætt á mótmæli vegna þess að ég hef ekki haft tíma - svo ég er ekki inn í þessum ~2% tölum sem þú nefnir ásamt ábyggilega mörgum öðrum.

En ég er algerlega á móti því að Sjálfstæðisflokkur fái meiri tíma til að sópa sínum skít undir teppi. Það þarf breytingar núna!

Og það er ekki eins og landið stöðvist ef alþingi leggur niður störf á meðan fagfólk úr atvinnulífinu finnst til að taka við.

_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 11:30 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Thu 13. Jul 2006 12:08
Posts: 292
bebecar wrote:
Það verður að nást sátt um uppbyggingarstarfið og þá verður að boða til þjóðstjórnar eða neyðarstjórnar (Davíð virðist hafa haft rétt fyrir sér í október!). Kosningar gætu svo farið fram í sumar eða haust, vorið líklega of snemmt. En á meðan fólk talar um ofbeldi og byltingu þá má stjórnin ekki fara frá.
Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá kosningar í vor, VG í forsæti ríkisstjórnarsamstarfsins og svo álíka mótmæli næsta sumar vegna þess að ekkert hefur gerst eða ástandið versnað... á þá VG líka að fara frá þegar fólk fer fram með ofbeldi?


"EF" VG fengi stjórnartaumana þá myndi ég halda að þeir settu nú aðeins gáfaðara fólk en dýralækna í ráðherrastörf! Þeir eru ekki eins og Sjálfstæðisflokkurinn sem setur klíkuskap ávallt í fyrsta sæti þegar kemur að því að ráða í störf! Við erum með urmul af fólki sem er býr yfir mikilli þekkingu á þessum sviðum og það þarf að fá svoleiðis fólk til að stjórna þessu landi...ekki fleirri dýralækna í fjármálaráðuneytið!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 11:35 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Það eina sem ég vill segja í bili er að ég er bara sorgmæddur yfir því að sjá það sem ég sé í sjónvarpi og netinu. Ég sé röð af lögreglumönnum með skildi og hjálma að verja þinghúsið. Mótmælendur öskra á þá, lemja í hjálmana þeirra, sletta á þá skyri, henda í þá grjóti, henda til þeirra flugeldum og ögra þeim klukkustundunum saman. Svo er farið að kveikja elda, hella á þá olíu og henda gangstéttarhellum á lögreglumennina.

Ég reyni að ímynda mér hvar mögulega væri hægt að finna land sem hefði annað eins umburðarlyndi hjá lögreglu og hér. Ég skil reiðina, vonleysið og að fólk krefjist breytinga burtséð frá minni skoðun. Ég verð ekki reiður þegar ég heyri að rúður séu brotnar í þinghúsinu og ýmislegt skemmt. Líka að það sé verið að valda alvarlegu raski á þingstörfum. En að persónugera þetta á lögreglumennina er bara viðbjóður. Ég dáist að því hvað þeir hafa staðið sig vel og haldið ró sinni þrátt fyrir að ansi margir hafi reynt allt hvað þeir geta til að kalla fram viðbrögð svo þeir geti klagað þá í fjölmiðla.

Þetta minnir mig á þegar ég var lítill og var stöðugt að stríða stóra bróðir mínum. Ögraði honum stöðugt þar til hann að lokum fékk nóg og gerði mér eitthvað, ég hljóp grenjandi til mömmu sem hundskammaði hann fyrir að vera að hrekkja litla saklausa bróðir sinn.

Vil að lokum skila þakklætiskveðjum til lögreglumanna hér á spjallinu og óska þeim góðs gengis í þessum vægast sagt hræðilega erfiðu starfsskilyrðum sem þeir eru í.

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 11:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
Þetta ofbeldi er ekki gott.
Ráðamenn ættu nú samt að hafa getað sagt sér að svona myndi þetta enda....það þarf ekki að flétta mörgum sögubókum til að sjá að svona atburðarrás er ekkert einsdæmi...og íslendingar eru ekkert frábrugðnir öðrum mönnum.

Íslenskt samfélag titrar

En aumingja blessaður lögreglumennirnir sem ekkert gerðu :?

örugglega ekki gaman að vera löggan sem stendur í fremstu víglínu með skjöld og hjálm og fær á sig skyr og egg og hugsar svo um bílinn sinn sem er yfirveðsettur um 2milljónir, lánið fryst og mun verða hærra þegar frystingartíminn er liðinn, svo húsnæðislánið sem er búið að hækka svívirðilega og er fryst og svo sú staðreynd að konan hans er búin að missa vinuna.......
svo tekur hann bara kylfuna...
....og lætur höggin dynja á mótmælendum svo þeir handleggsbrotna

ég sá í gær tvo mótmælendur með skilti og á skiltinu var mynd af ofurlöggunni sem lét ljósmyndarann heyra það og svo var myndunum "eytt" af TÆKNIdeild lögreglunnar.
þessir mótmælendur stóðu þarna í sakleysi sínu fyrir framan lögreglumennina
Upplýsingatæknin setur gríðarlega mikla pressu á störf lögreglunnar
lyftan er kannski eini staðurinn þar sem þeir hafa vinnufrið!!

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 11:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Mjög gott innlegg Bjarki. Það eru eflaust margar löggurnar sem vildu standa hinum megin við línuna... Þar eru eflaust margir í vanda eins og hinir almennu borgarar.

Maður spyr sig samt hvar þetta endar, mótmælendur virðast sífellt grípa til ofbeldisfyllri ráða og lögreglan svarar með meiri hörku (td, táragasi og núna hafa þeir gripið til þess ráðs að nota kylfur)

Maður vonar bara að það slasist enginn alvarlega við þetta. Menn geta hæglega slasað hvorn annan alvarlega með svona steypuhellum sem þeir létu rigna yfir lögregluna.

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 12:00 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Fengu allir bara nóg í gær?

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... _althingi/

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jan 2009 12:01 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Klárlega að handtaka fólkið sem er að fleygja steinum í fólk.

En skyr og egg eru mjög saklaus og finnst mér það
allt í lagi - en steinaköst að fólki (hvort sem það er
lögregla eða aðrir mótmælendur, ráðafólk eða einhver
annar) þar á lögreglan að grípa inní og taka þá aðila
frá og reyna róa þá niður með mannsæmandi aðferðum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 220 posts ]  Go to page Previous  1 ... 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11 ... 15  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group