Sko, það sem náttúrulega þarf að gera er að breyta lögum um alþingi þannig að sjálfstæði þess sé tryggt. Sparka ráðherrum út og helst breyta kosninga lögum þannig að kjósendur velji þingmenn af lista þess flokks sem það kýs. Svo verður að græja hlutina þannig að þingið geti kallað til sérfræðinga til að fá upplýsingar og álit um hin ýmsu mál sem fyrir þingið koma, þannig geta þingmenn tekið upplýstar ákvarðanir og myndað sér skoðanir útfrá réttum upplýsingum í stað þess að elta flokkinn. Eflaust má bæta einhverju við þessa upptalningu, en þegar rétt skilirði hafa skapast og búið er að kjósa gott fólk á þing þá trúi ég ekki öðru en að það taki réttar ákvarðanir fyrir þjóðina. Allavega er það gáfulegra en að ætla að eyða tímanum í að ræða um sölu áfengis í matvöruverslunum!!
Varðandi hræðslu manna með að VG komist til valda þá held ég að flestir landsmenn geri sér grein fyrir því að það væri skaðræði að hleypa þeim að, hef ekki heyrt neinn tala um að kjósa þá.

