bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 06:11

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 31 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 15:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
hver er skrifaður fyrir þessu,

ef það er eitthvað að marka þetta og sænskir þingmenn með grasið í skónum við tölvuna að refresha þá skal ég henda maili, ég jú að sjálfsögðu styð það sem þarna er sagt.

en hvaða trygging er fyrir þessu? hvaða sannanir eru fyrir því að þetta sé satt?

að reyna verja aðgerðir stjórnvalda og yfirvalda er einfaldlega furðulegt, það er verið að kalla mann hálfvita fyrir að vera ósáttur við ástandið, sný ég því beinustu leið til baka

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 16:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
I smell bs..

Fyrir þá sem eru að trúa þessu þá á ég helling af typpastækkunarpillum til sölu.

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 16:33 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Fólk sem kallar annað fólk hálfvita fyrir að mótmæla spillingunni og vanhæfninni hefur einfaldlega ekki efni á því.

Það eru ennþá einhverjir sem trúa því að hér hafi allt verið í góðu nema við vorum bara svo óheppin að lenda í alheimskreppu.
Staðreyndin er sú að þetta er fyrst og fremst heimatilbúinn vandi eins og margir erlendir sérfræðingar hafa bent á og þessi bóla hefði sprungið óháð heimskreppunni eða ekki.
Mæli t.d. með að menn horfi á þetta viðtal.

Það má jafnvel færa fyrir því rök að Íslendingar séu heppnir að lenda í heimskreppu því hefði heimskreppan ekki sprengt bóluna núna hefði það kannski gerst eftir 1-2 ár og fallið yrði því enn meira. Ef IceSave hefði verið starfrækt í 2 ár í viðbót, vill einhver hugsa þá hugsun til enda?

Þeir sem bera ábyrgð á þessu hruni eru fyrst og fremst stjórnvöld og vanhæfir bankamenn og þetta fólk er ekki rétta fólkið til að leiða okkur úr vandanum, það er alveg á hreinu.
Það skilur enginn útlendingur að ekki EINN einasti maður hafi axlað ábyrgð vegna þessa hruns. Erlendir aðilar bara botna ekki í þessu.

Ég var á fyrirlestri sem William Buiter hélt (maðurinn í viðtalinu sem ég setti tengil á hér að ofan) og þar talaði hann einmitt um það að þyrfti að fá nýja stjórn og nýjan seðlabankastjóra því það er ekki nokkur útlendingur sem treystir núverandi stjórnvöldum.
Trúverðugleikinn er enginn.

Annars er það alveg týpískt fyrir ástandið hér að lögreglan er að eyða tíma og peningum í að fara á vinnustaði mótmælenda og yfirheyra þá á meðan að menn sem stela milljörðum ganga lausir.
Menn eins og Ólafur Ólafs og fleiri væru allir komnir í járn og í yfirheyrslur í siðuðum löndum.

Fólk sem ennþá getur varið þessa spillingu og þessa vanhæfni í stjórnkerfinu hlýtur annaðhvort að vera meðspilendur í spillingunni eða einfaldlega ekki með fullri meðvitund.

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 16:58 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Zyklus wrote:

Bara svo það sé á hreinu hvoru megin ég er þá vil ég að menn segi af sér (Árni, Björgvin,Seðlabankastjórn og FME t.d) og þeir sem bera ábyrgð á hruninu dregnir til ábyrgðar. Það er ótrúlegt að ekki sé látið reyna á þau lög sem til eru í landinu, t.d. eins og um landráð eins og ég minntist á þræðinum hérna löngu áður en hrunið loksins kom.

Þá er ég líka sammála því að þessi heimskreppa er ekki eitthvað sem firrir stjórnvöld ábyrgð - einfaldlega sýnir hún að samskonar ósjálfbæri vöxturinn hefur verið stundaður víðar... reyndar mjög víða.

Mér finnst hinsvegar ekki vera hægt að krefjast því einhverjir aðrir leiði endurreisnar starfið fyrr en vitað er hverjir þessir einhverjir eru og hvað þeir hafa fram að færa - annað er lýðskrum.

Það er alveg pottþétt að traust erlendis á seðlabankanum er minna en ekkert þessa dagana og verður það ekki endurreist fyrr en fagmenn sitja þar við stjórn og skynsamleg verðbólgumarkmið verða tekin upp.

Þá er líka pottþétt að ríkisstjórnin nýtur ekki mikis trausts erlendis en þar er þó lykilatriði að traust sé á stjórnskipaninni sjálfir því án þess er ekki hægt að sækja fé til uppbyggingarstarfsins. Að boða til kosninga fljótlega væri lang eðlilegast og kosningarnar þurfa að vera fyrr ef ekki er tekið á glæpamönnunum sem komu okkur í þessi vandræði.

En auðvitað á fólk að mótmæla ef það getur (án ofbeldis) og láta að sér kveða í pólitík svo hægt sé að snúa af þeirri braut sem við erum á núna.

Svo að lokum. Það borgar sig að mála ekki hlutina bara svarta og hvíta (ef þú ert ekki með okkur þá ertu á móti okkur) því slíkt ber þess ekki vitni að verið sé að krefjast umbóta og betri líffskilyrða. Slíkt ber fyrst og fremst vott um ákveðna retórík sem miðar að því að búa til sökudólga og draga línur. Það má því spara stóru orðin, eða í það minnsta velja þau vandlega.

Maður er nú búin að fylgjast með þessu öllu úr fjarlægð í næstum fimm ár og alltaf hefur maður verið gáttaður á því hvað fólk, venjulegt fólk, barst mikið á og hvað þá fólk sem hafði einhverja "pappíra" á milli handanna.
Rosalega margir kóuðu hinsvegar og voru bara kátir með þetta og skyldu ekki varúðarorðin sem komu úr öllum áttum.

Nú er það auðvitað ekki fólkið sem setti landið á hausinn, enda þeirra neysluskuldir bara brotabrot af skuldum útrásarinnar (sem er auðvitað það sem raunverulega setti okkur á hausinn) en ef fólk hefði kannski verið örlítið gangrýnna síðustu árin þá væri þessi uppbygging auðveldari því mentalítetið fyrir uppbygginguna væri þá trúverðugara.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 17:10 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Bara svo það sé á hreinu þá var þessu ekki beint að þér bebecar. :)
Þessu var meira beint að þeim sem enn verja núverandi ráðamenn og skammast út í friðsama mótmælendur og hvorugt á við þig.

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 17:54 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Zyklus wrote:
Bara svo það sé á hreinu þá var þessu ekki beint að þér bebecar. :)
Þessu var meira beint að þeim sem enn verja núverandi ráðamenn og skammast út í friðsama mótmælendur og hvorugt á við þig.

Ég hélt það líka sko að svo væri ekki :wink: En maður þarf stundum að útskýra sína afstöðu samt svo þetta fari nú ekkert á milli mála.

En annars, voru einhverjir búnir að sjá þetta?

http://lydveldisbyltingin.is/index.php?title=Fors%C3%AD%C3%B0a

Þó mér sé illa við byltingar nafngiftina, þá sýnist mér þetta eiga möguleika svo framarlega sem ekki koma einhverjir skítaplebbar að þessu. Ég held einmitt það gæti verið mjög farsælt að styrkja löggjafarvaldið á kostnað framkvæmdavaldsins, og náttúrulega taka kosningalöggjöfina í gegn um leið. Þetta er besta leiðin til að losa þingmenn úr greipum flokkana fyrst að
þeir fara ekki eftir stjórnarskránni hvort eð er...

Quote:
48. gr. Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 18:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
1),, Ef þið sem haldið að lausnin sé uppreisn og þessháttar,,

bola öllum þingmönnum frá .... reka þennann ,,,,,

HVER er hin eiginlega lausn, það veit enginn

mér finnst menn hafa komið með áhugaverða punkta,,

eins og staðan er að mínu mati þá er ekki lausnin að fá fólk inn í þingið
á ögurstundu ,, með enga reynslu og ætla sér að stjórna landinu eins og þraut-reyndur skipper á miðunum,,

2) Ljóst er að gríðarleg spilling hefur átt sér stað í fjármálakerfinu

vonandi kemur sanngjarn dómur á þá aðila er brugðust viljandi,,

Athuga verður að í þjóðfélagi sem telur jafn fáa íbúa og á Íslandi ,, þá verða vensla tengls óumflýjandi,,

ég er ekkert að bakka upp einn eða neinn ,,,,,,, en geta skal þess að þið kusuð þetta fólk til starfa .. þeas stjórnmálamennina ,,

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 19:23 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Posts: 981
Location: Ásbrú
Og yfirmaðurinn minn réð mig til starfa.
Hann myndi samt ekki hika við að reka mig fyrir einhver afglöp og klúður

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 23:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Þetta eru allavega þeir sem dreifðu þessu upphaflega: http://nyirtimar.com/about/

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 09:37 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Alpina wrote:
1),, Ef þið sem haldið að lausnin sé uppreisn og þessháttar,,

bola öllum þingmönnum frá .... reka þennann ,,,,,

HVER er hin eiginlega lausn, það veit enginn

mér finnst menn hafa komið með áhugaverða punkta,,

eins og staðan er að mínu mati þá er ekki lausnin að fá fólk inn í þingið
á ögurstundu ,, með enga reynslu og ætla sér að stjórna landinu eins og þraut-reyndur skipper á miðunum,,

2) Ljóst er að gríðarleg spilling hefur átt sér stað í fjármálakerfinu

vonandi kemur sanngjarn dómur á þá aðila er brugðust viljandi,,

Athuga verður að í þjóðfélagi sem telur jafn fáa íbúa og á Íslandi ,, þá verða vensla tengls óumflýjandi,,

ég er ekkert að bakka upp einn eða neinn ,,,,,,, en geta skal þess að þið kusuð þetta fólk til starfa .. þeas stjórnmálamennina ,,

Ég skil alveg hvað þú ert að fara og er að vissu leiti sammála. Ég myndi t.d. telja farsælast að málum sé komið í farveg fyrir kosningar af núverandi stjórnvöldum. En það sem er verið að glíma við er einskonar jafna sem saman stendur af því að menn séu dregnir til ábyrgðar (afsagnir, uppsagnir og varðhald á meðan mál eru rannsökuð) og hinsvegar kosningum.... eftir því sem það eru minni líkur á að einhver sé dregin til ábyrgðar eru meiri líkur á kosningum.

Ég hef fram að þessu haft minnstar áhyggjur af því að meirihlutinn muni ekki bera ábyrgð því hann ber pólitíska ábyrgð - einmitt vegna þess að við kusum þau til starfa. Það kemur því alveg pottþétt að því að við getum sýnt skoðun okkar með atkvæðinu. Annað gildir um FME, Seðlabanka, Bankastjóra og fleiri sem ekki bera pólitíska ábyrgð, þá þarf að LÁTA SÆTA ábyrgð.

En auðvitað, í öllum löndunum í kringum okkur væru þeir ráðherrar sem bera ábyrgð á geirunum tengdum hruninu búnir að segja af sér. Þetta er sennilega eitt það ljóstasta í íslenskri pólitík að engin virðist hafa siðferðisþrek til þess að gera það.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 23:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Þetta virðist eitthvað hafa virkað, þannig að svona "netræflar" eru ekki alveg gagnlausir.

Quote:
Svör eru nú að berast úr öllum áttum, það berast svör frá Noregi og Danmörku, eins Svíþjóð. RÚV vill núna fylgja okkur eftir og fjalla um skriflegu mótmælin í Kastljósinu, menn eru að taka heldur betur við sér.

Björg Eva blaðamaður, var boðuð til Noregs í hvelli, í viðtalsþátt
á morgun í norska ríkissjónvarpinu. Þar sem hún verður spurð út í skriflegu mótmælin sem þykja víst einstakt afrek og marka mikil tímamót í þessari baráttu, segir hún. Hún vill meina að þau hafi gert útslagið og að norðurlöndin og heimurinn hafi loksins áttað sig á alvöunni hérna og vaknað til vitundar um ástandið hérna sem er skelfilegra en þeim hefði nokkurn tíma geta grunað.

Íris Erlingsdóttir skrifar um Ísland á forsíðu Huffington Post í Bandaríkjunum, hana er að finna hér á facebook og hún biður alla þá sem vilja tjá sig eða hafa eittvað að segja henni að hafa samband, hún þiggur einnig ljósmyndir ef einhverjir geta hjálpað henni með það.

Svíar eru enn og aftur búnir að fresta afgreiðslu tillögunnar um IMF lánið,
frá 23 til 29. janúar vegna viðræðna við hin norðurlöndin.

Höldum ótrauð áfram, skrifum og skirfum, því fleiri því betra!

Flísbyltingin heldur áfram klukkan 11:00 á morgun við Alþingi.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 09:45 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38
Posts: 1035
Alpina wrote:
1),, Ef þið sem haldið að lausnin sé uppreisn og þessháttar,,

bola öllum þingmönnum frá .... reka þennann ,,,,,

HVER er hin eiginlega lausn, það veit enginn

mér finnst menn hafa komið með áhugaverða punkta,,

eins og staðan er að mínu mati þá er ekki lausnin að fá fólk inn í þingið
á ögurstundu ,, með enga reynslu og ætla sér að stjórna landinu eins og þraut-reyndur skipper á miðunum,,

2) Ljóst er að gríðarleg spilling hefur átt sér stað í fjármálakerfinu

vonandi kemur sanngjarn dómur á þá aðila er brugðust viljandi,,

Athuga verður að í þjóðfélagi sem telur jafn fáa íbúa og á Íslandi ,, þá verða vensla tengls óumflýjandi,,

ég er ekkert að bakka upp einn eða neinn ,,,,,,, en geta skal þess að þið kusuð þetta fólk til starfa .. þeas stjórnmálamennina ,,

ég held að þetta sé bara mál fyrir interpol... það er bara verið að ræna landið hérna hægri vinstri.. þetta er ekkert öðruvisi en mafian... (fjölskylda)

haha og það besta er ... að maður var svo grandarlaus að maður öfundaði þessa gaura fyrir að vera svona "peningagáfaðir" þegar þeir voru bara að ræna alla hérna hahahaha shhæssinnn

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 19:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Astijons wrote:

ég held að þetta sé bara mál fyrir interpol... það er bara verið að ræna landið hérna hægri vinstri.. þetta er ekkert öðruvisi en mafian... (fjölskylda)

haha og það besta er ... að maður var svo grandarlaus að maður öfundaði þessa gaura fyrir að vera svona "peningagáfaðir" þegar þeir voru bara að ræna alla hérna hahahaha shhæssinnn

Ágætt innlegg,,,,, held að bankafólk og aðilar tengdir þeim ,, hafi hreinlega tæmt alla sjóði með klækjum,,,,,,,, svo stóð fólk á öndinni yfir hrókeringum þessara undramanna,,,,,,

ekkert hissa á því að Ríkis-stjórnirnar og þingmenn séu álíka gáttaðir :shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 20:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
Alpina wrote:
1),, Ef þið sem haldið að lausnin sé uppreisn og þessháttar,,

bola öllum þingmönnum frá .... reka þennann ,,,,,

HVER er hin eiginlega lausn, það veit enginn

mér finnst menn hafa komið með áhugaverða punkta,,

eins og staðan er að mínu mati þá er ekki lausnin að fá fólk inn í þingið
á ögurstundu ,, með enga reynslu og ætla sér að stjórna landinu eins og þraut-reyndur skipper á miðunum,,

2) Ljóst er að gríðarleg spilling hefur átt sér stað í fjármálakerfinu

vonandi kemur sanngjarn dómur á þá aðila er brugðust viljandi,,

Athuga verður að í þjóðfélagi sem telur jafn fáa íbúa og á Íslandi ,, þá verða vensla tengls óumflýjandi,,

ég er ekkert að bakka upp einn eða neinn ,,,,,,, en geta skal þess að þið kusuð þetta fólk til starfa .. þeas stjórnmálamennina ,,

Ég get þó fríað mig af því. Því ég kaus EKKI núverandi ríkisstjórn.

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 21:27 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
úhh!! úhh!!

ég!! ég!!

Ég kaus sjálfstæðisflokkinn og mun gera það aftur!

Eins og sást í Kastljósi í kvöld hefur Steingrímur og pakkið hans í VG engin svör.

Eina sem kom uppúr honum var dúndrandi niðurgangur.

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 31 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group