Zyklus wrote:
Fólk sem kallar annað fólk hálfvita fyrir að mótmæla spillingunni og vanhæfninni hefur einfaldlega ekki efni á því.
Það eru ennþá einhverjir sem trúa því að hér hafi allt verið í góðu nema við vorum bara svo óheppin að lenda í alheimskreppu.
Staðreyndin er sú að þetta er fyrst og fremst heimatilbúinn vandi eins og margir erlendir sérfræðingar hafa bent á og þessi bóla hefði sprungið óháð heimskreppunni eða ekki.
Mæli t.d. með að menn horfi á
þetta viðtal.
Það má jafnvel færa fyrir því rök að Íslendingar séu heppnir að lenda í heimskreppu því hefði heimskreppan ekki sprengt bóluna núna hefði það kannski gerst eftir 1-2 ár og fallið yrði því enn meira. Ef IceSave hefði verið starfrækt í 2 ár í viðbót, vill einhver hugsa þá hugsun til enda?
Þeir sem bera ábyrgð á þessu hruni eru fyrst og fremst stjórnvöld og vanhæfir bankamenn og þetta fólk er ekki rétta fólkið til að leiða okkur úr vandanum, það er alveg á hreinu.
Það skilur enginn útlendingur að ekki EINN einasti maður hafi axlað ábyrgð vegna þessa hruns. Erlendir aðilar bara botna ekki í þessu.
Ég var á fyrirlestri sem William Buiter hélt (maðurinn í viðtalinu sem ég setti tengil á hér að ofan) og þar talaði hann einmitt um það að þyrfti að fá nýja stjórn og nýjan seðlabankastjóra því það er ekki nokkur útlendingur sem treystir núverandi stjórnvöldum.
Trúverðugleikinn er enginn.
Annars er það alveg týpískt fyrir ástandið hér að lögreglan er að eyða tíma og peningum í að fara á vinnustaði mótmælenda og yfirheyra þá á meðan að menn sem stela milljörðum ganga lausir.
Menn eins og Ólafur Ólafs og fleiri væru allir komnir í járn og í yfirheyrslur í siðuðum löndum.
Fólk sem ennþá getur varið þessa spillingu og þessa vanhæfni í stjórnkerfinu hlýtur annaðhvort að vera meðspilendur í spillingunni eða einfaldlega ekki með fullri meðvitund.
Bara svo það sé á hreinu hvoru megin ég er þá vil ég að menn segi af sér (Árni, Björgvin,Seðlabankastjórn og FME t.d) og þeir sem bera ábyrgð á hruninu dregnir til ábyrgðar. Það er ótrúlegt að ekki sé látið reyna á þau lög sem til eru í landinu, t.d. eins og um landráð eins og ég minntist á þræðinum hérna löngu áður en hrunið loksins kom.
Þá er ég líka sammála því að þessi heimskreppa er ekki eitthvað sem firrir stjórnvöld ábyrgð - einfaldlega sýnir hún að samskonar ósjálfbæri vöxturinn hefur verið stundaður víðar... reyndar mjög víða.
Mér finnst hinsvegar ekki vera hægt að krefjast því einhverjir aðrir leiði endurreisnar starfið fyrr en vitað er hverjir þessir einhverjir eru og hvað þeir hafa fram að færa - annað er lýðskrum.
Það er alveg pottþétt að traust erlendis á seðlabankanum er minna en ekkert þessa dagana og verður það ekki endurreist fyrr en fagmenn sitja þar við stjórn og skynsamleg verðbólgumarkmið verða tekin upp.
Þá er líka pottþétt að ríkisstjórnin nýtur ekki mikis trausts erlendis en þar er þó lykilatriði að traust sé á stjórnskipaninni sjálfir því án þess er ekki hægt að sækja fé til uppbyggingarstarfsins. Að boða til kosninga fljótlega væri lang eðlilegast og kosningarnar þurfa að vera fyrr ef ekki er tekið á glæpamönnunum sem komu okkur í þessi vandræði.
En auðvitað á fólk að mótmæla ef það getur (án ofbeldis) og láta að sér kveða í pólitík svo hægt sé að snúa af þeirri braut sem við erum á núna.
Svo að lokum. Það borgar sig að mála ekki hlutina bara svarta og hvíta (ef þú ert ekki með okkur þá ertu á móti okkur) því slíkt ber þess ekki vitni að verið sé að krefjast umbóta og betri líffskilyrða. Slíkt ber fyrst og fremst vott um ákveðna retórík sem miðar að því að búa til sökudólga og draga línur. Það má því spara stóru orðin, eða í það minnsta velja þau vandlega.
Maður er nú búin að fylgjast með þessu öllu úr fjarlægð í næstum fimm ár og alltaf hefur maður verið gáttaður á því hvað fólk, venjulegt fólk, barst mikið á og hvað þá fólk sem hafði einhverja "pappíra" á milli handanna.
Rosalega margir kóuðu hinsvegar og voru bara kátir með þetta og skyldu ekki varúðarorðin sem komu úr öllum áttum.
Nú er það auðvitað ekki fólkið sem setti landið á hausinn, enda þeirra neysluskuldir bara brotabrot af skuldum útrásarinnar (sem er auðvitað það sem raunverulega setti okkur á hausinn) en ef fólk hefði kannski verið örlítið gangrýnna síðustu árin þá væri þessi uppbygging auðveldari því mentalítetið fyrir uppbygginguna væri þá trúverðugara.