bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 09:13

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 220 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 15  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 10:55 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
deCODE semur við Landsbanka

Ríkisbankinn Landsbankinn (eða NBI eins og hann heitir víst) hendir 1,4 milljörðum í gjaldþrota félag.
Til samanburðar er markaðsvirði félagsins 1,7 milljarðar króna.

Geir hefur talað um að „slá skjaldborg um heimilin“ en eitthvað fréttist nú lítið af því en ríkisbankarnar henda milljörðum í gjaldþrota félög...

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 11:03 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
jeppakall wrote:
KristoferK wrote:
Ég, eins og svo margir, er ósáttur með stöðuna í þjóðfélagi okkar í dag en það segir sig að sjálfsögðu sjálft að í þessum aðgerðum eru engar lausnir.

Jæja herra lögga, og hvaða lausn telur þú líklegri til árángurs en þessar í gær? Það er búið að reyna löglegu leiðina og ekkert breytist! Taktu hausinn útúr afturendanum á þér og reyndu að ímynda þér hvernig er að missa allt sem þú átt bara af því að nokkrir kallar ákváðu að fara á fyllerí!

jonthor wrote:

Sammála Bebe,

Það eru til löglegar leiðir til að þrýsta á stjórnvöld.

Ég held að það sé orðið nokkuð ljóst að þessi ríkisstjórn lifir ekki af, réttilega. Við þurfum að standa að því að kjósa hér nýja stjórn með ábyrgum hætti. Nú eru margir vanhæfir í stjórn, en ég hef ekki áhuga á að vera þvingaður í að kjósa fólk sem ég hef ekki hugmynd um hvað stendur fyrir eða hvað hefur gert fram að þessu. Kosningar munu taka tíma og það þarf að standa að þeim með réttum hætti. Ef ekki, þá eins og Bebe bendir á, er mjög auðvelt að kjósa yfir sig fólk sem telur ofbeldi leysa vandamál þjóðarinnar.

En varðandi mómælin. Hvað heldur fólk að gerist þegar það kastar grjóti í lögregluna og brýtur lög? Lögreglan er að vinna vinnuna sína, sem er að halda upp lögum og reglu í landinu. Það þýðir ekkert að brjóta lögin og væla svo á eftir yfir afleiðingunum.

Ég hef miklar áhyggjur af framtíð Íslendinga til skamms tíma. Það lítur allt út fyrir að heimurinn sé að fara inn í verstu heimskreppu sem sést hefur í hátt í 80 ár og það eru mjög erfiðir tímar framundan fyrir alla. Það stefnir í að Írland sé að fara á hausinn og menn þar jafnvel að tala um að ganga úr evrópusambandinu, Spánn og Grikkland eru í stórkostlegum vandræðum (ríkið downgradað) og allt stefnir í 20-25% atvinnuleysi þar. Pundið búið að veikjast um næstum 50% á örskömmum tíma. Þetta eru aldagamlar þjóðir í vestur evrópu. Ástandið er mjög alvarlegt og verður ekki leyst í ár eða á næsta ári, þetta mun taka tíma og það er mikilvægt að byrja að undirbúa sig undir það sem fyrst.

Ertu að reyna að segja að við komum bara sæmilega útúr þessu? Ekki vera heimskur! Hvaða löglegu aðgerðir ert þú að tala um sem þrýstir á stjórnvöld? Senda tölvupóst eða? Fólkið þarna á Austurvelli á ekki rassgat allt Sjálfstæðisflokknum að þakka sem þú greinilega dýrkar!

Það er akkúrat svona heift sem kemur í veg fyrir það að eitthvað þokist í rétta átt. Það er fullt af góðu fólki í sjálfsstæðisflokknum og öðrum flokkum. Það eru þrír megin flokkar sem hafa spilað í útrásinni og það eru sjálfstæðisflokkurinn, framsókn og samfylking sem allir bera mikla ábyrgð og tómt mál að tala um að reyna að rétta ábyrgðina áfram.

En þú ættir að hugsa þig aðeins um áður en þú þjófkennir ALLT fólkið í því sem var stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Kjósendur flokksins hafa yfirleitt alltaf verið fólk úr öllum stigum þjóðfélagsins og á öllum aldri, ömmur, afar, verkamenn, sjómenn, bankamenn o.s.frv.

Það sem er verið að glíma við hér er bara græðgi og almennt siðrof sem nær út fyrir alla flokkadrætti.

Það sem Jón Þór var einfaldlega að benda á er að það er að skella á heimskreppa. Ástandið er svart víðar en bara á Íslandi og það á líka eftir að hafa áhrif á Ísland. Hvað gerist t.d. með falli dollars, punds og yensins?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 11:07 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Zyklus wrote:
deCODE semur við Landsbanka

Ríkisbankinn Landsbankinn (eða NBI eins og hann heitir víst) hendir 1,4 milljörðum í gjaldþrota félag.
Til samanburðar er markaðsvirði félagsins 1,7 milljarðar króna.

Geir hefur talað um að „slá skjaldborg um heimilin“ en eitthvað fréttist nú lítið af því en ríkisbankarnar henda milljörðum í gjaldþrota félög...

Ég veit nú ekki alveg með þessa aðgerð... er svona beggja blands þar sem DeCode er nú með starfsemi að mestu leiti heima og einmitt starfsemi af því tagi sem talað er um að þurfi að ýta undir á næstu mánuðum (nýsköpun) og með gjaldeyristekjur (þegar það eru einhverjar tekjur þ.e.a.s.!!!).

Er eitthvað talað um hvað þetta eigi að duga lengi?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 11:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
jeppakall wrote:
KristoferK wrote:
Ég, eins og svo margir, er ósáttur með stöðuna í þjóðfélagi okkar í dag en það segir sig að sjálfsögðu sjálft að í þessum aðgerðum eru engar lausnir.

Jæja herra lögga, og hvaða lausn telur þú líklegri til árángurs en þessar í gær? Það er búið að reyna löglegu leiðina og ekkert breytist! Taktu hausinn útúr afturendanum á þér og reyndu að ímynda þér hvernig er að missa allt sem þú átt bara af því að nokkrir kallar ákváðu að fara á fyllerí!

jonthor wrote:

Sammála Bebe,

Það eru til löglegar leiðir til að þrýsta á stjórnvöld.

Ég held að það sé orðið nokkuð ljóst að þessi ríkisstjórn lifir ekki af, réttilega. Við þurfum að standa að því að kjósa hér nýja stjórn með ábyrgum hætti. Nú eru margir vanhæfir í stjórn, en ég hef ekki áhuga á að vera þvingaður í að kjósa fólk sem ég hef ekki hugmynd um hvað stendur fyrir eða hvað hefur gert fram að þessu. Kosningar munu taka tíma og það þarf að standa að þeim með réttum hætti. Ef ekki, þá eins og Bebe bendir á, er mjög auðvelt að kjósa yfir sig fólk sem telur ofbeldi leysa vandamál þjóðarinnar.

En varðandi mómælin. Hvað heldur fólk að gerist þegar það kastar grjóti í lögregluna og brýtur lög? Lögreglan er að vinna vinnuna sína, sem er að halda upp lögum og reglu í landinu. Það þýðir ekkert að brjóta lögin og væla svo á eftir yfir afleiðingunum.

Ég hef miklar áhyggjur af framtíð Íslendinga til skamms tíma. Það lítur allt út fyrir að heimurinn sé að fara inn í verstu heimskreppu sem sést hefur í hátt í 80 ár og það eru mjög erfiðir tímar framundan fyrir alla. Það stefnir í að Írland sé að fara á hausinn og menn þar jafnvel að tala um að ganga úr evrópusambandinu, Spánn og Grikkland eru í stórkostlegum vandræðum (ríkið downgradað) og allt stefnir í 20-25% atvinnuleysi þar. Pundið búið að veikjast um næstum 50% á örskömmum tíma. Þetta eru aldagamlar þjóðir í vestur evrópu. Ástandið er mjög alvarlegt og verður ekki leyst í ár eða á næsta ári, þetta mun taka tíma og það er mikilvægt að byrja að undirbúa sig undir það sem fyrst.

Ertu að reyna að segja að við komum bara sæmilega útúr þessu? Ekki vera heimskur! Hvaða löglegu aðgerðir ert þú að tala um sem þrýstir á stjórnvöld? Senda tölvupóst eða? Fólkið þarna á Austurvelli á ekki rassgat allt Sjálfstæðisflokknum að þakka sem þú greinilega dýrkar!

Þetta er nákvæmlega vandamálið. hér er einhver að tjá sig sem virðist, eins og einstaka mótmælandi, halda að ofbeldi og dónaskapur leysi vandamálið. Ertu búinn að hugsa eða velta því fyrir þér hvað gerist eftir kosningar? Ég held að flestir séu sammála um að þessi ríkisstjórn muni falla. Skiptir engu hvernig verður staðið að kosningum? Skiptir engu hverjir taka við? Vill fólk ekki kynna þér málefnin? Hvað viljum við að stjórnvöld sem taka við geri?

Í bræði þinni virðist vera að þú hafir ekki lesið það sem ég skrifaði. Ég var einmitt að benda á það að ástandið, bæði hér og erlendis, á eftir að versna til muna á næstunni og það er mikilvægt fyrir þjóðina að gera sér grein fyrir því. Ég vil að það fólk sem tekur á þeim vandamálum sem framundan eru, hafi skýrt umboð þjóðarinnar um hvernig á að taka á málinu og það tekur tíma að kynna slíka ákvörðun fyrir þjóðinni. Ef við skiptum hér um stjórn í flýti, grunar mig að sú stjórn muni hvorki gera margt vitrænt í stöðunni né endast lengi.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 11:34 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Nákvæmlega....

Þetta er nefnilega rétt að byrja.

Annars tekur vísindavefur Háskóla Íslands vel á þessu - þetta er í hnotskurn það sem málið snýst um með mótmælin:

Quote:
Svar
Flestir heimspekingar eru sammála um að í borgaralegri óhlýðni felist að (i) brotið er gegn lögum eða reglum, (ii) markmið lögbrotsins er ekki einstaklingsbundinn hagur eða sérhagsmunir tiltekins hóps heldur almannaheill, til dæmis réttlæti, (iii) lögbrotið er framið fyrir opnum tjöldum, (iv) athöfnin felur ekki í sér ofbeldi og (v) sá sem brýtur af sér tekur við refsingu sinni án nokkurra tilrauna til undanbragða.

Borgaraleg óhlýðni í þessum skilningi er pólitísk athöfn í tvennskonar skilningi. Annars vegar er hún ákveðin tegund af opinberum andmælum gegn ríkjandi valdi, og hins vegar liggur réttlætingin fyrir henni ævinlega í almennum skilningi á réttlæti í samfélaginu. Og þótt borgaraleg óhlýðni feli oft í sér réttmætt andóf, þá er hún einungis réttmæt ef aðrar leiðir eru ýmist útilokaðar eða hafa verið reyndar til þrautar.

En af hverju þarf borgaraleg óhlýðni endilega að forðast ofbeldi? Ástæðan er sú að markmiðið með borgaralegri óhlýðni er réttlæti og með því að forðast ofbeldi birtist krafan um réttlæti í sjálfri athöfninni. Með því að beita sjálfur ofbeldi myndi gerandinn viðurkenna réttmæti ofbeldis og þar með grafa undan eigin málstað.

http://www.visindavefur.is/svar.php?id=26593

Og afhverju ofbeldi má aldrei vera þáttur af aðgerðunum.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Last edited by bebecar on Wed 21. Jan 2009 11:37, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 11:37 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
bebecar wrote:
Zyklus wrote:
deCODE semur við Landsbanka

Ríkisbankinn Landsbankinn (eða NBI eins og hann heitir víst) hendir 1,4 milljörðum í gjaldþrota félag.
Til samanburðar er markaðsvirði félagsins 1,7 milljarðar króna.

Geir hefur talað um að „slá skjaldborg um heimilin“ en eitthvað fréttist nú lítið af því en ríkisbankarnar henda milljörðum í gjaldþrota félög...

Ég veit nú ekki alveg með þessa aðgerð... er svona beggja blands þar sem DeCode er nú með starfsemi að mestu leiti heima og einmitt starfsemi af því tagi sem talað er um að þurfi að ýta undir á næstu mánuðum (nýsköpun) og með gjaldeyristekjur (þegar það eru einhverjar tekjur þ.e.a.s.!!!).

Er eitthvað talað um hvað þetta eigi að duga lengi?

Í fréttinni er talað um þetta dugi deCode til að starfa fram á næsta fjórðung.

deCode hefur að ég best veit aldrei skilað hagnaði og er með neikvætt eigið fé upp á rúma 18 milljarða.

Þessum peningum væri alveg örugglega betur varið annars staðar.

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 12:08 

Já, ef þetta dugar ekki lengur þá lítur það ekki vel út...

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 12:23 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
Einn punktur varðandi þessar kröfur um kosningar, það virðist vera þannig að þeir sem eru hvað harðast á móti því að skipt verði um stjórn haldi það að núverandi flokkar fari bara í kosningabaráttu og við endum á því að kjósa VG yfir okkur.

Sem er auðvitað ekki það sem við viljum - allavega ekki flest okkar. Þó að VG megi eiga það að hafa hvergi komið nálægt hruninu og því hvernig komið er fyrir okkur, þá held ég að þeir séu ekki rétti kosturinn í stöðunni núna.

Punkturinn er sá að í byrjun hruns þá töluðu menn um að ekki mætti skipta um hest í miðri á, áhöfn í miðju fárviðri og allskyns orðaleiki sem meikuðu alveg sens á þeim tíma þegar allt var lamað. Nú eru liðnir rúmir tæplega 4 mánuðir og næstum 1 mánuður hefur farið í jólafrí og svona lítur dagskráin út á fyrsta þingfundi:
1. Óundirbúinn fyrirspurnatími.
2. Vátryggingastarfsemi (heildarlög, EES-reglur) 225. mál, lagafrumvarp viðskiptaráðherra. 1. umræða.
3. Greiðslur til líffæragjafa (heildarlög) 259. mál, lagafrumvarp félags- og tryggingamálaráðherra. 1. umræða.
4. Sala áfengis og tóbaks (sala léttvíns og bjórs) 37. mál, lagafrumvarp SKK. 1. umræða.
5. Olíugjald og kílómetragjald (endurgreiðsla gjalds) 40. mál, lagafrumvarp HöskÞ. 1. umræða.
6. Andstaða við eldflaugavarnakerfi í Austur-Evrópu 49. mál, þingsályktunartillaga
7. Tóbaksvarnir (reykherbergi á veitingastöðum) 57. mál, lagafrumvarp JM. 1. umræða.
8. Stjórnarskipunarlög (bráðabirgðalög, þingseta ráðherra) 58. mál, lagafrumvarp KHG. 1. umræða.
9. Prófessorsembætti á sviði byggðasafna og byggðafræða 59. mál, þingsályktunartillaga ÁJ. Fyrri umræða.
10. Skipafriðunarsjóður 60. mál, þingsályktunartillaga MS. Fyrri umræða.
11. Áhrif markaðsvæðingar á samfélagsþjónustu 66. mál, þingsályktunartillaga ÖJ. Fyrri umræða.
12. Umferðarlög (forgangsakreinar) 93. mál, lagafrumvarp

Það er morgunljóst að hesturinn er að drukkna í miðri á, áhöfnin er drukkin og alveg sama hvaða orðaleiki menn fara í, þá er niðurstaðan alltaf sú sama: það er ekkert plan í gangi, fólkið sem fer með völdin er ekki að höndla verkefnið.

Þess vegna þarf eftirfarandi atburðarás að fara í gang:
1) Finna þarf óháða erlenda og innlenda sérfræðinga til að koma að endurreisn hagkerfisins, klastra saman krónunni og koma almennri bankastarfsemi í gang svo fyrirtæki og almenningur geti haldið áfram rekstri heimila og atvinnu.
2) Skipa þjóðstjórn, valda af óháðum aðilum, sem hreinsar til í embættismannakerfinu til að vekja traust á stjórnsýslunni að nýju.
3) Það er alveg ljóst að við getum aldrei borgað skuldir bankanna. Fá þarf sérfræðinga í lögum og fjármálum til að koma eignum bankanna í verð og semja við kröfuhafa.

Fleiri hugmyndir?

_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 12:23 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 25. May 2005 22:09
Posts: 89
Það er alveg æðislegt hvað sumir ætla að þrjóskast við og fordæma það sem þarf að gerast :lol:

mótmæli þurfa að vera hávær, þau þurfa að vera truflandi, þau þurfa að vera á barmi þess ólöglega ef þau fara ekki bara vel yfir þau mörk, þau þurfa að vera þannig að fólk geti ekki litið fram hjá þeim, skíthælarnir og aumingjarnir sem inni sitja eiga að vera skíthrædd.

Það eina sem böggar mig varðandi þetta allt er hvað vinstri grænu vitleysingarnir eru mikið að misskilja þetta. Þetta er ekki gegn ríkisstjórninni einni heldur þingmönnum öllum.

Það sem gerist líklega er það að það verði boðið til kosninga fljótlega og fólk láti sér það nægja :roll: það er endalaust hægt að skipta um aumingja í stólum en á meðan kerfið er ekki rifið niður að grunni og byggt upp annað breytist ekkert.

_________________
Erkifífl með meiru

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 13:36 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sun 12. Aug 2007 21:22
Posts: 221
Location: Reykjavík beibí
Það er ansi hávær orðrómur núna í gangi um að stjórnin sé fallin. Hvað haldiði?

_________________
Skáeigandi e30
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 14:04 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Lilja wrote:
Það er ansi hávær orðrómur núna í gangi um að stjórnin sé fallin. Hvað haldiði?

Miðað við þetta:
http://omarr.blog.is/blog/omar/

hefurðu rétt fyrir þér.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 14:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
Lilja wrote:
Það er ansi hávær orðrómur núna í gangi um að stjórnin sé fallin. Hvað haldiði?

Ástæðan sem er gefin fyrir því að þingfundinum hafi verið frestað er allavega frekar léleg. Það eina sem mér dettur í hug er að það sé búið að rjúfa þingið og við fáum kosningar fyrr en við áttum von á.

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 14:28 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Aukafréttatími á Rúv núna kl. 14:30...

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 14:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
spennandi :o vonandi ekki sama bullið og venjulega sem maður fær að heyra ... fullt af orðum en samt voðalega lítið sagt

_________________
Fullt af CF sem rúllar

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 21. Jan 2009 16:22 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... ser_ognad/

Greyið bíllinn :(

Hann gerði ekki neitt af sér!!

_________________
Enginn bíll!

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 220 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 15  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 49 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group