jeppakall wrote:
KristoferK wrote:
Ég, eins og svo margir, er ósáttur með stöðuna í þjóðfélagi okkar í dag en það segir sig að sjálfsögðu sjálft að í þessum aðgerðum eru engar lausnir.
Jæja herra lögga, og hvaða lausn telur þú líklegri til árángurs en þessar í gær? Það er búið að reyna löglegu leiðina og ekkert breytist! Taktu hausinn útúr afturendanum á þér og reyndu að ímynda þér hvernig er að missa allt sem þú átt bara af því að nokkrir kallar ákváðu að fara á fyllerí!
jonthor wrote:
Sammála Bebe,
Það eru til löglegar leiðir til að þrýsta á stjórnvöld.
Ég held að það sé orðið nokkuð ljóst að þessi ríkisstjórn lifir ekki af, réttilega. Við þurfum að standa að því að kjósa hér nýja stjórn með ábyrgum hætti. Nú eru margir vanhæfir í stjórn, en ég hef ekki áhuga á að vera þvingaður í að kjósa fólk sem ég hef ekki hugmynd um hvað stendur fyrir eða hvað hefur gert fram að þessu. Kosningar munu taka tíma og það þarf að standa að þeim með réttum hætti. Ef ekki, þá eins og Bebe bendir á, er mjög auðvelt að kjósa yfir sig fólk sem telur ofbeldi leysa vandamál þjóðarinnar.
En varðandi mómælin. Hvað heldur fólk að gerist þegar það kastar grjóti í lögregluna og brýtur lög? Lögreglan er að vinna vinnuna sína, sem er að halda upp lögum og reglu í landinu. Það þýðir ekkert að brjóta lögin og væla svo á eftir yfir afleiðingunum.
Ég hef miklar áhyggjur af framtíð Íslendinga til skamms tíma. Það lítur allt út fyrir að heimurinn sé að fara inn í verstu heimskreppu sem sést hefur í hátt í 80 ár og það eru mjög erfiðir tímar framundan fyrir alla. Það stefnir í að Írland sé að fara á hausinn og menn þar jafnvel að tala um að ganga úr evrópusambandinu, Spánn og Grikkland eru í stórkostlegum vandræðum (ríkið downgradað) og allt stefnir í 20-25% atvinnuleysi þar. Pundið búið að veikjast um næstum 50% á örskömmum tíma. Þetta eru aldagamlar þjóðir í vestur evrópu. Ástandið er mjög alvarlegt og verður ekki leyst í ár eða á næsta ári, þetta mun taka tíma og það er mikilvægt að byrja að undirbúa sig undir það sem fyrst.
Ertu að reyna að segja að við komum bara sæmilega útúr þessu? Ekki vera heimskur! Hvaða löglegu aðgerðir ert þú að tala um sem þrýstir á stjórnvöld? Senda tölvupóst eða? Fólkið þarna á Austurvelli á ekki rassgat allt Sjálfstæðisflokknum að þakka sem þú greinilega dýrkar!
Það er akkúrat svona heift sem kemur í veg fyrir það að eitthvað þokist í rétta átt. Það er fullt af góðu fólki í sjálfsstæðisflokknum og öðrum flokkum. Það eru þrír megin flokkar sem hafa spilað í útrásinni og það eru sjálfstæðisflokkurinn, framsókn og samfylking sem allir bera mikla ábyrgð og tómt mál að tala um að reyna að rétta ábyrgðina áfram.
En þú ættir að hugsa þig aðeins um áður en þú þjófkennir ALLT fólkið í því sem var stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Kjósendur flokksins hafa yfirleitt alltaf verið fólk úr öllum stigum þjóðfélagsins og á öllum aldri, ömmur, afar, verkamenn, sjómenn, bankamenn o.s.frv.
Það sem er verið að glíma við hér er bara græðgi og almennt siðrof sem nær út fyrir alla flokkadrætti.
Það sem Jón Þór var einfaldlega að benda á er að það er að skella á heimskreppa. Ástandið er svart víðar en bara á Íslandi og það á líka eftir að hafa áhrif á Ísland. Hvað gerist t.d. með falli dollars, punds og yensins?