bebecar wrote:
Þetta er ansi vandmeðfarið.
Mótmæli sem slík hef ég ekkert við að athuga en það er tvennt þarna sem bara má ekki gerast. Alþingi er friðheilagt og það er ekki af ástæðulausu. Það er stjórnarskrár brot að ráðast á Alþingi og hindra störfs þingsins.
Stjórnarskráin er samansafn af algjörum grundvallar reglum sem ekki má ráðskast með og þeir sem að telja sig geta gert það tala ekki í mínu nafni. Það að koma einhverjum frá með ofbeldi mun bara leysa núverandi stjórnvöld af með öðrum enn fastsetnari. Það eru mörg dæmi um það.
Þetta er algjörlega ónauðsynlegt framferði. Það situr á þingi voldugur þingmeirihluti. Það er miklu nær að krefjast þess að samstarfinu verði slitið með því að láta samfylkingu eða sjálfsstæðisflokk heyra það, t.d. í gegnum starfið þar (baklandið) heldur en að fara fram með ofbeldi gegn þinginu.
Í öðru lagi finnst mér ömurlegt að sjá gengið svona að lögreglunni, þeir eru grýttir þarna stanslaust allan daginn fyrir að sinna vinnunni sinni. Ég held að fólk þurfi almennt að reyna setja sig í þeirra spor, svívirtir, skyrpt á þá, grýttir og standandi andspænis fjölda fólks sem er afar reitt.
Það sem ofbeldi af þessu tagi stuðlar að er bara failed state...
Áfram með mótmælin þangað til menn og konur axla sína ábyrgð, en virða stjórnarskránna og láta lögguna í friði.
Sammála Bebe,
Það eru til löglegar leiðir til að þrýsta á stjórnvöld.
Ég held að það sé orðið nokkuð ljóst að þessi ríkisstjórn lifir ekki af, réttilega. Við þurfum að standa að því að kjósa hér nýja stjórn með ábyrgum hætti. Nú eru margir vanhæfir í stjórn, en ég hef ekki áhuga á að vera þvingaður í að kjósa fólk sem ég hef ekki hugmynd um hvað stendur fyrir eða hvað hefur gert fram að þessu. Kosningar munu taka tíma og það þarf að standa að þeim með réttum hætti. Ef ekki, þá eins og Bebe bendir á, er mjög auðvelt að kjósa yfir sig fólk sem telur ofbeldi leysa vandamál þjóðarinnar.
En varðandi mómælin. Hvað heldur fólk að gerist þegar það kastar grjóti í lögregluna og brýtur lög? Lögreglan er að vinna vinnuna sína, sem er að halda upp lögum og reglu í landinu. Það þýðir ekkert að brjóta lögin og væla svo á eftir yfir afleiðingunum.
Ég hef miklar áhyggjur af framtíð Íslendinga til skamms tíma. Það lítur allt út fyrir að heimurinn sé að fara inn í verstu heimskreppu sem sést hefur í hátt í 80 ár og það eru mjög erfiðir tímar framundan fyrir alla. Það stefnir í að Írland sé að fara á hausinn og menn þar jafnvel að tala um að ganga úr evrópusambandinu, Spánn og Grikkland eru í stórkostlegum vandræðum (ríkið downgradað) og allt stefnir í 20-25% atvinnuleysi þar. Pundið búið að veikjast um næstum 50% á örskömmum tíma. Þetta eru aldagamlar þjóðir í vestur evrópu. Ástandið er mjög alvarlegt og verður ekki leyst í ár eða á næsta ári, þetta mun taka tíma og það er mikilvægt að byrja að undirbúa sig undir það sem fyrst.