bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 12:55

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 113, 114, 115, 116, 117, 118, 119 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 20:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Alpina wrote:
bimmer wrote:
Ástandið er gríðarlega alvarlegt og verður ekki heldur
leyst með því að ignora það og vona það besta.


Sammála þér með það..


en jákvæðni hjálpar frekar en neikvæðni,,,, eða hvað :roll:


Að sjálfsögðu.

En það sem ég var að segja er að raunsæi er ekki sama og neikvæðni.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 20:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bimmer wrote:
Alpina wrote:
bimmer wrote:
Ástandið er gríðarlega alvarlegt og verður ekki heldur
leyst með því að ignora það og vona það besta.


Sammála þér með það..


en jákvæðni hjálpar frekar en neikvæðni,,,, eða hvað :roll:


Að sjálfsögðu.

En það sem ég var að segja er að raunsæi er ekki sama og neikvæðni.


Ok .....

Ég nenni ekki að vera að velta mér upp úr þessu krepputali endalaust,,

Kreppa..... já t.d 1930 þegar fólk svaf í kartöflugeymslum og hreinlega svalt

ekkert slíkt er upp á teningnum í dag .. þeas að fólk svelti út í eitt

ÞAÐ er kreppa

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 21:14 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48
Posts: 827
Alpina wrote:
bimmer wrote:
Alpina wrote:
bimmer wrote:
Ástandið er gríðarlega alvarlegt og verður ekki heldur
leyst með því að ignora það og vona það besta.


Sammála þér með það..


en jákvæðni hjálpar frekar en neikvæðni,,,, eða hvað :roll:


Að sjálfsögðu.

En það sem ég var að segja er að raunsæi er ekki sama og neikvæðni.


Ok .....

Ég nenni ekki að vera að velta mér upp úr þessu krepputali endalaust,,

Kreppa..... já t.d 1930 þegar fólk svaf í kartöflugeymslum og hreinlega svalt

ekkert slíkt er upp á teningnum í dag .. þeas að fólk svelti út í eitt

ÞAÐ er kreppa



Finnst þér enn að stjórnvöldin séu kúl og ekkert athugavert í gangi?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 21:25 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Quote:
Considered a rare but extreme form of recession, a depression is characterized by abnormal increases in unemployment, restriction of credit, shrinking output and investment, numerous bankruptcies, reduced amounts of trade and commerce, as well as highly volatile relative currency value fluctuations, mostly devaluations. Price deflation or hyperinflation are also common elements of a depression.


Þetta er skilgreiningin á kreppu.

Það er kreppa.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 21:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Arnarf wrote:


Finnst þér enn að stjórnvöldin séu kúl og ekkert athugavert í gangi?


Hef ,,,,, ALDREI ,,,,, sagt að stjórnvöld rokki feitt,,

en fólk er reitt og skyndiákvarðanir og múgsefjun eru örugglega ekki rétta meðalið

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2009 22:10 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 25. May 2005 22:09
Posts: 89
Það er skárra að vera raunsær og svartsýnn því þá ertu undirbúinn fyrir skellina og góðu fréttirnar koma skemmtilega á óvart.



Að tala meira um hlutina breytir heldur engu og yfirvöld eiga voðalega auðvelt með að láta eins og þau sjái ekki friðsamt og löglegt jarm á Austurvelli um helgar.


Það er fyrir lifandis löngu kominn tími á aðgerðir almennings gagnvart siðleysingjunum en fyrst núna er hljómgrunnurinn fyrir slíkt virkilega byrjaður að vaxa vegna andvaraleysis aumingjanna við stjórnvölinn.


Það er líka spurning hvort það fari ekki að færast fjör í þetta hérna í Árnessýslunni þar sem okkar virðulega sýslumannstittur er búinn að gefa út handtökuskipanir á 370 einstaklinga vegna fjárnámsbeiðna :roll: það er kannski liður í aðgerðunum til bjargar heimilunum?

_________________
Erkifífl með meiru


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 00:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
hart að vera harðfiskur og geta ekki borgað eftir að hafa skrifað undir

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 00:40 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Aron Fridrik wrote:
hart að vera harðfiskur og geta ekki borgað eftir að hafa skrifað undir


Hart að láta sér segjast að það sé ekkert svona í vændum og krónan sé mjög stabíl, gengið myndi hreinlega "aldrei falla".

Þetta voru sölumenn bankanna að segja fólki sem nýtti sér þennsluna.

Það er nú oft þannig minn kæri, að meðaljóninn sem er kannski lærður smiður, verkfræðingur, sálfræðingur eða bifvélavirki veit ekki mikið hvernig efnahagur heils lands virkar, en veit mikið um sína vinnu. Og þessir einstaklingar hafa horft á velmegun þjóðarinnar og ákveðið að nýta sér það í þágu sína og fjölskyldu sinnar, en svo þegar allt fór í vitleysu þá fór það í mínus. Ég myndi nú ekki vilja taka svo hart í árina að segja að það sé bara hart að vera harðfiskur. En það má að sjálfsögðu segja að fólk hefði átt að skoða þetta betur.

Auk þess eru margir sem kaupa sér bíla og vita hreinlega ekki bilanatíðnina í bílnum og fá svo himinn háann reikning um bréfalúguna í hverjum mánuði sökum viðhalds - en sölumaðurinn sem seldi bílinn sagði að það yrði aldrei þannig, en það yrði mögulega eitthvað viðhald, en aldrei svona mikið.

Það mætti alveg segja að ástandið sé okkur öllum að kenna fyrir að hafa tekið gjaldeyrislán, spreðað meira, keypt fáránlega jólagjafir eða fermingagjafir og svo framvegis.

Ef það er þennsla, þá eyðir fólk meira.
Ef það er kreppa, þá sparar fólk meira (eða getur ekki eytt peningum því það á enga peninga).

Dálítið hart að segja að fólk eigi þetta skilið - eins og mér finnst þú vera segja :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 00:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
mesta klikkunin er náttúrulega að fólk sem átti ekki að hafa fengið lán.. fékk þau..


en alveg eins á ekki að þrufa að hemla fólk alltaf af í eyðslunni..

t.d. maður sem vinnur við að dæla bensíni og var með 140þús á mánuði átti ekki að geta keypti íbúð fyrir 35 millur :?

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 01:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Skemmtileg lesning í gær á Rás 1 (ég veit, ég er að verða gamall)

http://dagskra.ruv.is/ras1/4450860/2009/01/19/

Byrjar í c.a. 21 mín :) Sigrún Davíðsdóttir..

Mæli með að menn hlusti á þetta, ágætis pælingar..


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 03:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
já en Aron það er bara svo löngu liðið að fólk sem var að lenda í vandræðum hafi endilega þurft að vera fólk sem hafi ekki átt að taka lán yfir höfuð eða ekki verið borgunarmenn fyrir skuldum sínum,

ég gæti lengi talið upp dæmi, þekki t.d strák sem átti nokkrar milljónir seinni part 07, hann áhvað að fjárfesta þeim í íbúð, og svo borga útborgun í frekar ódýrum bíl, enda sögðu nánast ALLIR honum að kaupa frekar nýlegan bíl með smá bílaláni, og sleppa við viðhaldskostnað og flr, bæði bílasalar bifvélavirkjar sem og aðrir, hann endaði á því að taka 1.5m í lán, og borga örlítið meiri upphæð út en var fengin af láni,

hann keypti svo litla íbúð, (undir 50fm) sem var það eina sem fékst á undir 20mills á þeim tíma, fyrir litlu holuna fékk hann tæpar 10milljónir að láni, og borgaði svipaða upphæð út, og fékk restina á hagstæðu láni frá einum af bönkunum,

asf þessu báðu var hann svo að borga minni upphæð heldur en hann hefði þurft að greiða í leigu af sambærilegri íbúð, jafnvel minni íbúð,
og þar með í raunini lægri grunnkostnað en fólk sem ætlar að búa á eigin vegum á höfuðborgarsvæðinu hefur hingað til getað reiknað með sem lágmarkskostnaði til að byrja með,

í dag, eftir að hafa sparað frá því að hann var barn, hvíla um 20milljónir á íbúðini og um eða yfir 3 á bílnum, á sama tíma hefur verðgildi bílsins og íbúðarinnar hrapað, og afborganirnar tvöfalldast, auk þess sem að fyrirtækið sem hann hafði unnið hjá í nokkur ár fór á hausinn og skuldar honum ennþá bæði laun sem og uppsagnarfrest, það er líka þannig komið að þessi einstaklingur er tæknilega gjaldþrota, og kemur til með að skulda´eflaust um og yfir 10milljónir, með hvorki bílin né íbúðina í höndunum, eftir að hafa gert NÁKVÆMLEGA það sem jafnt fagfólk sem og aðrir ráðlögðu honum,

ef við reynum svo að finna aðeins út hvað hann hefði nú átt að gera til að vera ekki í þessari stöðu, jú hann hefði getað tekið engin lán, en þá hefði hann væntanlega þurft að taka þá áhvörðun að búa hvergi, eða búa hjá mömmu sinni fram á fullorðinsaldur, eða jú leigja. sem síðustu ár (og þar tala ég nú af reynslu) hefur verið ekkert minna en bókstaflegt rán, og í raun mun dýrara en að kaupa,

hann hefði getað slept því að kaupa bílinn, svo sannarlega, og ætli hann viti það ekki, en hreinskilningslega sagt gfet ég ekki áfellst mann fyrir að hafa skuldað 1.5m í bílalán af nýjum/nýlegum bíl hérrna á síðustu árum, það var meirasegja þannig að draumabíll þessa stráks hafði verið nýja boddýið af mustang, frá því að concept bíllinn var frumsýndur eflaust 03, hann áhvað samt að flytja sér inn notaðan v6 bíl, þar sem hann gæti alveg sætt sig við slíkan bíl, þannig að þetta er nú engin semi-útrásarvíkingur að braska með bílalán,


það er ekki lengra síðan en í september, sem mánaðarlegar afborganir á mínu heimili námu rétt tæpum helming af föstum útborguðum mánaðarlaunum, ég var svo með aukavinnu sem bubót og hafði í ýmis horn að gægjast ef það kreppti af, en ég eins og fleyri er búinn að fá að sjá það algjörlega in my face hversu hratt allt getur snúist við, án þess að maður hafi svo mikið sem haft eitthvað um það að segja, og allar aðstæður, og allt sem maður þekti og gékk af gerbreytt á augnabliki, það er akkurat það sem fólk er að ganga í gegnum hérna, og það skapar mjög þunga óvissu, sérstaklega hjá fólki sem er með born í forsjá, og kannski í raunini skuldsett til að byrja með akkurat út af því að það var raunverulega ekki mikið um val ef það átti að íhuga fasteign á annað borð hérna á höfuðborgarsvæðinu,
þær upphæðir sem fasteignir hafa kostað hérna hafa ekki verið í neinu sambandi við raunveruleikan, og verðin ekki upphæðir sem nema örfáir einstaklingar í þjóðfélaginu höfðu efni á, og verðið svona hátt útaf því að bankarnir voru allt í einu búnir að breyta reglunum og til í að lána svona mikið, kerfið setur reglunar, almúginn spialr svo bara eftir þeim að fremstu getu,
ef þú leggur einhverjum ansi vafasamar línur, og hann spilar svo úitfrá þeim þangað til hann kemst á endanum á slæman leiðarenda, þá liggur ábyrgðin ekki eingöngu hjá honum,

það er bara ekki staðan lengur að allir hafi kallað þetta yfir sig, er það ekki akkurat sú hugsun sem verður til þess að þeir sem raunverulega orsökuðu þetta komi ekki til með að taka skellinn fyrir þetta, heldur þræls ættaður almúginn sem gerist meðvikur og trúir því sjálfur að hann eigi þetta skilið.

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 03:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
og svo er kreppan miklu frekar AÐ koma heldur en að hún sé skollin á að fullum krafti, rothöggið er komið, en við erum ekki einu sinni byrjuð að díla við afleiðingarnar.. nýju bankarnir eru að ganga margfalt harðar á eftir fólk heldur þeir gömlu gerðu, og ef ekkert verður aðhafst eiga þeir eftir að keyra mikin fjölda af fólki í þrot sem hefði ekki á neinn hátt þurft þess, við eðlilegar,
og reyndar óeðlilegar aðstæður líka, ég er ekki hagfræðimentaður en ég get ekki ýmindað mér að það sé gott fyrir hagkerfið að hálf þjóðin sitji föst í skuldafeni sem hún getur ekki unnið sig uppúr

flestir sem skila inn bílum í dag, eru að sitja uppi með svipaðar upphæðir eftirá, og þeir skulduðu áður en þeir skiluðu bílnum inn, lánafyrirtækin láta meta bílana af mönnum á eigin launaskrá, lauyma svo inn kostnaði úr öllum áttum, m.a með mjög óraunhæfum viðgerðakosntaði sem þeir telja ekki nauðsynlegt að útlista nánar, rukka svo fleyri tugi þúsunda ef ekki hundruð fyrir matið eitt og sér (tekur klukkutíma með kaffibolla og kjaftæði)

þannig að ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég skil ekki alveg hvaðan þessi jákvæðni á að koma,.eða hvaða ástæður maður á fyrir henni að hafa, það er búið að vera fastur liður nánast núna í marga mánuði samfleytt að nákvæmlega svörtustu spárnar hafa ræst í stafrósröð á eftir hvor annari, og JÁ þetta reddast hugafarið búið að steypa landanum einum í djúpulaugina, án kúts

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 08:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Posts: 1905
Location: RVK
Svona til að setja hlutina í samhengi erlendis þá skilst mér að ef íslendingur gengur inn í banka td í LUX og vill stofna reikning þá er litið á hann svipuðum augum og NÍGERÍUMANN í dag. Ísland hin nýja Nígería. Ég verð að segja að þetta hópbréf til svíana minnti mig mikið á bréfin sem vinir okkar í afríku senda daglega til manns, "the situation in Iceland is dire". En enginn er sóttur til saka :-({|=

_________________
E39 530D ///M Sport


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 09:14 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Hva, komst þetta ekki fyrir í einu innleggi :lol:

Fyrir mitt leiti þá er það alveg kristal klárt að bankarnir fóru illa með þjóðina og bera höfuð ábyrgðina á því hvernig komið er fyrir landi og þjóð. Það eru þeir sem stofnuðu til óábyrgra skulda og lánuðu svo sjálfir eins og engin væri morgundagurinn til fólks sem ekki átti séns á að geta borgað af lánunum til lengri tíma litið.

Slíkt er fáránleg lánastarfssemi og ber keim þess að fyrirtækið hafi verið rekið á einhverjum ósjálfbærum forsendum sem bara snérust um að skapa skyndihagnað í vasa eigenda og stjórnenda.

Hvaða GLÓRA t.d. er í því að lána fyrir hlutabréfakaupum með veði í hlutabréfunum? Allir vita að hlutabréf rokka upp og niður, meira að segja bankastarfsmenn ættu að vita það! Hvaða GLÓRA er í því að lána 100% fyrir nýjum bílum sem allir vita að gera ekkert annað en að rýrna í verði. Og hið sama á við um húsnæði.

Sumir bankastarfsmenn hafa varið þetta og hafa talið þetta eðlilegt, samkeppnin hafi krafist þess o.s.frv. en fyrir allt skynsamt fólk þá er þetta bara vitlaust - en skellurinn lendir svo á almenningi.

Skuldir heimilanna eru bara brotabrot af skuldum útrásarinnar þannig að það er alveg ljóst að það eru ekki heimilin sem settu landið á hausinn með kaupum á flatskjáum og bílum. Það er mjög eðlilegt að fólk sæti færis þegar gengið er hagstætt og vörur því ódýrar. Fullkomlega eðlilegt.

Margir fóru hinsvegar algjörlega overboard og eru því að lenda sérstaklega ílla í því núna. Of dýrar húseignir (á tíma sem fólk mátti vita að ekki væri grundvöllur fyrir þessu háa verði), of margir og of dýrir bílar, hjólhýsi, mótorhjól, krossarar, hundar, ferðalög og svo framvegis er allt of mikil áhætta.

Ég t.d. skil ekki hvernig nokkrum dettur í hug að kaupa íbúð á árinu 2007 - þegar verðbólga er komin í sirka 10% snemma árs (man ekki alveg töluna - en allavega var hún há). Þá þegar þýðir það að það bætist meira við 10 milljóna húsnæðislán á hverjum mánuði en þú borgar af því... leiðin er því bara niður á við. Ég var á mörkunum með að kaupa íbúð 2004 vegna þess að mér fannst verðið vera orðið of hátt þá!

Ég þekki líka fólk sem gerði þetta, keypti seint 2007, og var áður að leigja. Þetta hefur umturnað þeirra efnahag en maður reyndi að þrýsta á fólkið um að leigja heldur áfram á meðan verðbólga fer niður en einhvern vegin var ennþá auðveldara að kaupa og taka sénsinn eða bíða og þrauka.

Ég held að miklu leiti séu þeir sem eru að brenna sig núna einfaldlega að gera það vegna þess að það er orðið svo langt um liðið frá síðasta skell.
Þeir sem muna þá tíma, þeir eru hinsvegar varari um sig og passa sig að hafa upp á nóg að hlaupa ef illa fer. Fáir hafa þó kannski reiknað með að hlutirnir færu svona illa.

Almennt þarf maður alltaf að reikna með því að geta verið atvinnulaus um tíma og geta haldið sér á floti samt sem áður, eða geta lifað af því sem maður fengi minnst í tekjur. Ef maður gerir það ekki þá er maður að taka áhættu.

Það er samt einhvern vegin ekki hægt að segja að þetta sé fólkinu sjálfu að kenna því það hefur eiginlega allt verið svikið - þessvegna er fólk reitt og það réttilega. Það er líka þessvegna sem við viljum sjá sökudólgana leidda fyrir rétt, því það er eina leiðin til þess að öðlast trú á að þetta komi ekki fyrir aftur, sem er grundvöllur þess að geta byrjað upp á nýtt.

Stjórnvöld bera svo ábyrgðina á því að skapa okkur umhverfi þar sem ekki er hægt að gera plön fram í tímann lengur en nokkrar vikur í senn!

Bottom line - ég skil vel reiðina og er reiður sjálfur. Það sem ræður því kannski mest hvernig fólk kemur út úr þessu er reynsla sem fólk býr yfir. Þeir sem muna eftir nauðungaruppboðunum frá kringum 1983-1986 þeir vita hvernig hlutirnir geta farið 80% verðbólga 1980 og 30-40 fram til 1986 sirka. Í þannig ástandi halda engin plön nema þau þar sem maður hefur gert ráð fyrir tekjuleysi til langs tíma og hefur efni á að þrauka (hamstra gjaldeyrir, eiga skuldlausar eignir sem hægt er að selja ódýrt o.s.frv.). Svo getur maður auðvitað verið heppinn....

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 20. Jan 2009 09:18 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Posts: 1117
Location: Hafnarfjörður
Phoenix wrote:

Það er líka spurning hvort það fari ekki að færast fjör í þetta hérna í Árnessýslunni þar sem okkar virðulega sýslumannstittur er búinn að gefa út handtökuskipanir á 370 einstaklinga vegna fjárnámsbeiðna


Klárlega jákvæðustu fréttir vikunnar :!: Gott að einhverjir nenna að vinna vinnuna sína. Lögreglan í Reykjavík hefur allavega verið löt við þetta undanfarin ár.

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 113, 114, 115, 116, 117, 118, 119 ... 246  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group