Hva, komst þetta ekki fyrir í einu innleggi
Fyrir mitt leiti þá er það alveg kristal klárt að bankarnir fóru illa með þjóðina og bera höfuð ábyrgðina á því hvernig komið er fyrir landi og þjóð. Það eru þeir sem stofnuðu til óábyrgra skulda og lánuðu svo sjálfir eins og engin væri morgundagurinn til fólks sem ekki átti séns á að geta borgað af lánunum til lengri tíma litið.
Slíkt er fáránleg lánastarfssemi og ber keim þess að fyrirtækið hafi verið rekið á einhverjum ósjálfbærum forsendum sem bara snérust um að skapa skyndihagnað í vasa eigenda og stjórnenda.
Hvaða GLÓRA t.d. er í því að lána fyrir hlutabréfakaupum með veði í hlutabréfunum? Allir vita að hlutabréf rokka upp og niður, meira að segja bankastarfsmenn ættu að vita það! Hvaða GLÓRA er í því að lána 100% fyrir nýjum bílum sem allir vita að gera ekkert annað en að rýrna í verði. Og hið sama á við um húsnæði.
Sumir bankastarfsmenn hafa varið þetta og hafa talið þetta eðlilegt, samkeppnin hafi krafist þess o.s.frv. en fyrir allt skynsamt fólk þá er þetta bara vitlaust - en skellurinn lendir svo á almenningi.
Skuldir heimilanna eru bara brotabrot af skuldum útrásarinnar þannig að það er alveg ljóst að það eru ekki heimilin sem settu landið á hausinn með kaupum á flatskjáum og bílum. Það er mjög eðlilegt að fólk sæti færis þegar gengið er hagstætt og vörur því ódýrar. Fullkomlega eðlilegt.
Margir fóru hinsvegar algjörlega overboard og eru því að lenda sérstaklega ílla í því núna. Of dýrar húseignir (á tíma sem fólk mátti vita að ekki væri grundvöllur fyrir þessu háa verði), of margir og of dýrir bílar, hjólhýsi, mótorhjól, krossarar, hundar, ferðalög og svo framvegis er allt of mikil áhætta.
Ég t.d. skil ekki hvernig nokkrum dettur í hug að kaupa íbúð á árinu 2007 - þegar verðbólga er komin í sirka 10% snemma árs (man ekki alveg töluna - en allavega var hún há). Þá þegar þýðir það að það bætist meira við 10 milljóna húsnæðislán á hverjum mánuði en þú borgar af því... leiðin er því bara niður á við. Ég var á mörkunum með að kaupa íbúð 2004 vegna þess að mér fannst verðið vera orðið of hátt þá!
Ég þekki líka fólk sem gerði þetta, keypti seint 2007, og var áður að leigja. Þetta hefur umturnað þeirra efnahag en maður reyndi að þrýsta á fólkið um að leigja heldur áfram á meðan verðbólga fer niður en einhvern vegin var ennþá auðveldara að kaupa og taka sénsinn eða bíða og þrauka.
Ég held að miklu leiti séu þeir sem eru að brenna sig núna einfaldlega að gera það vegna þess að það er orðið svo langt um liðið frá síðasta skell.
Þeir sem muna þá tíma, þeir eru hinsvegar varari um sig og passa sig að hafa upp á nóg að hlaupa ef illa fer. Fáir hafa þó kannski reiknað með að hlutirnir færu svona illa.
Almennt þarf maður alltaf að reikna með því að geta verið atvinnulaus um tíma og geta haldið sér á floti samt sem áður, eða geta lifað af því sem maður fengi minnst í tekjur. Ef maður gerir það ekki þá er maður að taka áhættu.
Það er samt einhvern vegin ekki hægt að segja að þetta sé fólkinu sjálfu að kenna því það hefur eiginlega allt verið svikið - þessvegna er fólk reitt og það réttilega. Það er líka þessvegna sem við viljum sjá sökudólgana leidda fyrir rétt, því það er eina leiðin til þess að öðlast trú á að þetta komi ekki fyrir aftur, sem er grundvöllur þess að geta byrjað upp á nýtt.
Stjórnvöld bera svo ábyrgðina á því að skapa okkur umhverfi þar sem ekki er hægt að gera plön fram í tímann lengur en nokkrar vikur í senn!
Bottom line - ég skil vel reiðina og er reiður sjálfur. Það sem ræður því kannski mest hvernig fólk kemur út úr þessu er reynsla sem fólk býr yfir. Þeir sem muna eftir nauðungaruppboðunum frá kringum 1983-1986 þeir vita hvernig hlutirnir geta farið 80% verðbólga 1980 og 30-40 fram til 1986 sirka. Í þannig ástandi halda engin plön nema þau þar sem maður hefur gert ráð fyrir tekjuleysi til langs tíma og hefur efni á að þrauka (hamstra gjaldeyrir, eiga skuldlausar eignir sem hægt er að selja ódýrt o.s.frv.). Svo getur maður auðvitað verið heppinn....