Jæja þá slapp bíllinn í gegnum skoðun og svar komið frá Skattinum. Ég þarf að punga út 16900 Dkr. sem er frekar vel sloppið miðað við ástand bílsins. Ég ákvað að umreikna yfir í ísl. krónur og fór á heimasíðu bankans heima, útkoman var 367000 krónur. Svo notaði ég reiknivél bankanna hérna í DK og þar var svarið 658000 krónur, krónan er víst eitthvað "eilítið" verðminni hérna úti.
Ég lét Schmiedmann sjá um að gera bílinn kláran fyrir skoðun, það hefði ég aldrei átt að gera því að þeir eru dýrir og svo eru þetta svo miklir amatörar að það nær ekki nokkurri átt. Stýrislás, dökk stefnuljós í bretti og olíuskipti. Daginn eftir sæki ég bílinn og þá eru glær stefnuljós á bílnum, ég kvarta og fæ þau svör að þeir hafi ekki átt dökk ljós. Ég keyri heim (hef engan tíma) og drep á bílnum.....tek lyklana úr og sný stýrinu. Það læsist ekki. Þegar að ég stíg út úr bílnum sé ég það að það er búið að setja boddýskrúfu í gegnum hurðarspjaldið bílstjóramegin, það var laust og ég á smellurnar til að laga þetta. Þarna er klukkan orðin það margt að Schmiedmann-fólin eru farin heim. Daginn eftir fer nota ég hádegispásuna mína til að keyra til þeirra. Þegar ég starta bílnum fyrir utan skólann sé ég að Oil-Service ljósið er ekki núllstillt, þó ég hafi borgað litlar 650 Dkr. fyrir núllstillinguna eina og sér. Akkúrat þarna er ég orðinn heavy pirraður og "all negotiations are OFF" . Ég fer beint í yfirmann verkstæðisins og útskýri fyrir honum hvernig málin standa.
Getið þið ímyndað ykkur hvert svarið var........?
"Ég veit ekkert um þetta mál því að ég var ekki að vinna þennan dag"

hann bauðst þó til að taka bílinn aftur einhvern tímann seinna þegar þeir hafa tíma og það án reiknings.....svo lengi sem ég skaffa partana sem vantar. Í stuttu máli, það eina sem þeir gerðu rétt var að bakka bílnum í stæði þegar þeir voru "ekki búnir", meiri klassi yfir því að bakka í stæði. Þeir fá ekki jólakort frá mér, það er klárt
