bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 09:32

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 111, 112, 113, 114, 115, 116, 117 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Wed 07. Jan 2009 19:18 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Svezel wrote:
Athyglisverð grein úr NY times um risk management og hvernig fjárfestar oftúlkuðu VaR, sem við erum svo að súpa seyðið af í dag.

http://www.nytimes.com/2009/01/04/magaz ... ted=1&_r=1


Þetta var mjög skemmtileg grein en ég saknaði að sjá smá umfjöllun um hvað geris þegar svona reiknilíkön ná almennri útbreiðslu. Leikmaður eins og ég myndi halda að það myndi nú heldur betur breyta forsendunum ef allir eru að hegða sér eftir prógramminu.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 07. Jan 2009 19:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Aron Fridrik wrote:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/07/erlend_ibudalan_til_ils/

fucking rugl ef þetta gengur í gegn :?



Nice, hvernig væri bara að taka upp kommúnisma þá sem fyrst ,
Allir fá útborgað greitt inná ríkisjóð, svo lætur ríkisjóður mann fá nóg fyrir vatni og brauði þangað til að skuldirnar verði greiddar upp
:cry:

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 00:11 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Quote:
Kjalar krefst uppgjörs á gjaldeyrissamningi við Kaupþing

Fjárfestingarfélagið Kjalar, sem er að langstærstum hluta í eigu Ólafs Ólafsson, sem oftast er kenndur við Samskip, hyggst krefjast þess að fá greiddan út framvirkan gjaldeyrissamning úr gamla Kaupþingi á viðmiðunargengi krónunnar hjá evrópska seðlabankanum. Morgunblaðið greinir frá þessu í morgun en samkvæmt skráningu evrópska seðlabankans er gengi krónunnar 290 krónur gagnvart evru en ekki 166 líkt er Seðlabanki Íslands miðar við.

Kaupþing átti að greiða Kjalari 650 milljónir evra í október samkvæmt gjaldeyrissamningnum. Munurinn á gengisskráningum seðlabankanna er um 90 milljarðar króna. Vegna hruns bankanna var samningurinn hins vegar ekki gerður upp. Kjalar hefur óskað eftir skuldajöfnun, það er að skuld félagsins fari upp í kröfu þess. Krafa Kjalars er hins vegar mun hærri en skuldir félagsins við bankann.


Ég bara spyr, kann fólk ekki að skammast sín?

Þetta er sami maðurinn og fékk Búnaðarbankann gefins ásamt öðrum framsóknarmönnum og hefur grætt stórkostlega á „góðæri“ undanfarinna ára (þetta er maðurinn sem flutti inn Elton John í afmælið sitt) og nú þegar þessir menn hafa skilið eftir sig brunarústirnar þá vilja þeir meira!

_________________
BMW E34 525iA '95


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 08:47 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það ætti að mótmæla fyrir utan heima hjá honum - það kemur líklega til með að spara þjóðfélaginu stórar summur ef hann heldur sig á mottunni.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 10:18 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
Það ætti að mótmæla fyrir utan heima hjá honum - það kemur líklega til með að spara þjóðfélaginu stórar summur ef hann heldur sig á mottunni.


Nú er ég sammála!!

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 10:31 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Schulii wrote:
bebecar wrote:
Það ætti að mótmæla fyrir utan heima hjá honum - það kemur líklega til með að spara þjóðfélaginu stórar summur ef hann heldur sig á mottunni.


Nú er ég sammála!!


Ég veit hvar hann á heima og er að vinna með konu sem er tengd honum og býr í sama húsi og hann.

Á ég að segja henni að það sé von á ykkur? :D

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 10:36 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
arnibjorn wrote:
Schulii wrote:
bebecar wrote:
Það ætti að mótmæla fyrir utan heima hjá honum - það kemur líklega til með að spara þjóðfélaginu stórar summur ef hann heldur sig á mottunni.


Nú er ég sammála!!


Ég veit hvar hann á heima og er að vinna með konu sem er tengd honum og býr í sama húsi og hann.

Á ég að segja henni að það sé von á ykkur? :D


Ég kemst ekki sem stendur :wink:

En án gríns, þetta eru mennirnir sem settu þjóðfélagið á hausinn. Það vita það flest allir en fáir vilja gera eitthvað í því. Sjáiði bara tölurnar. Þetta er svipað og eitt háskólasjúkrahús sem þessi eini maður vill fá (frá okkur nota bene!!!).

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 11:21 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
Verður þessi gaukur ekki bara að fara í röðina þegar þrotabú gamla bankans verður gert upp?

Ber nýja bankanum einhver skylda til að uppfylla þennan samning eða hvað?

Gjaldeyrishaftareglur Seðlabankans ættu líka að koma í veg fyrir að hann geti krafist eins eða neins varðandi þetta gengi Seðlabanka Evrópu - en hvað veit maður svo sem.

Það fara að opnast viðskiptatækifæri í flekasmíði - þegar við bindum svona lið á fleka og látum reka með golfstraumnum eitthvað út í bláinn.

Hvað hefur einn maður við 90 milljarða að gera aukalega?

_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 11:24 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
grettir wrote:
Verður þessi gaukur ekki bara að fara í röðina þegar þrotabú gamla bankans verður gert upp?

Ber nýja bankanum einhver skylda til að uppfylla þennan samning eða hvað?

Gjaldeyrishaftareglur Seðlabankans ættu líka að koma í veg fyrir að hann geti krafist eins eða neins varðandi þetta gengi Seðlabanka Evrópu - en hvað veit maður svo sem.

Það fara að opnast viðskiptatækifæri í flekasmíði - þegar við bindum svona lið á fleka og látum reka með golfstraumnum eitthvað út í bláinn.

Hvað hefur einn maður við 90 milljarða að gera [b]aukalega?
[/b]

Ætli hann sé ekki bara skuldugur upp fyrir haus?

Voru ekki viðskiptahættir þessara manna að velta þessu áfram á endurfjármögnun lána og svo framvegis?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 11:25 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
grettir wrote:
Verður þessi gaukur ekki bara að fara í röðina þegar þrotabú gamla bankans verður gert upp?

Ber nýja bankanum einhver skylda til að uppfylla þennan samning eða hvað?

Gjaldeyrishaftareglur Seðlabankans ættu líka að koma í veg fyrir að hann geti krafist eins eða neins varðandi þetta gengi Seðlabanka Evrópu - en hvað veit maður svo sem.

Það fara að opnast viðskiptatækifæri í flekasmíði - þegar við bindum svona lið á fleka og látum reka með golfstraumnum eitthvað út í bláinn.

Hvað hefur einn maður við 90 milljarða að gera aukalega?


Ætli honum vanti ekki fleiri þyrlur :?

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 16:13 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Einhvern vegin líður mér eins og að Óli sé ekki að fara kaupa sér aðra þyrlu eins og ég sagði hér fyrir ofan.

http://www.amx.is/frettaskyringar/2133/

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 23:45 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sun 27. Jul 2003 20:34
Posts: 297
Location: 101
Datt í hug að spyrja hér, því kraftsmenn eru alltaf að panta dót í bílana sína og svona; eruði með allar svoleiðis pælingar á hold núna, eða hvað?

Málið er að mig langar að kaupa svolítið drasl að utan fyrir ca. $1000-$1500, og er að velta fyrir mér hvort það sé útlit fyrir að þetta verði nokkuð hagstæðara í vor t.d.

Er ekki nánast öruggt mál að krónan mun veikjast í einhvern tíma eftir að hún er sett á flot haftalaust? Eða er kannski engin leið að spá fyrir um það?

_________________
Helgi Páll Einarsson


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Jan 2009 23:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Þetta er alveg skömm að heyra vælið og grenjið í mörgum hérna ..

ÁLYKTA að þessi eða hinn eigi sökina ..

HREINAR NORNAVEIÐAR að mínu mati,,

án vafa er ljóst að gríðarlega margir samverkandi þættir leiða til þess að staðan er eins og hún er ,,,,,, en að einn eða annar sé meiri skaðvaldur ,,það er ógjörningur að draga slíka ályktun

horfið í vestur og austur ,,,,,, í EU er staðan BARA slæm,, ekki er neinn Davíð eða Jón Ásgeir þar til að tilnefna sem blóraböggul fyrir hruni eða kreppu,,

Almenningur er að mínu mati þau öfl sem samverkandi gera það að verkum að neysla eykst og þörf fyrir meiri framleiðni þar af leiðandi blómstrar,, svo þegar sveiflur í hagkerfinu verða neikvæðar ...........
(( af orsökum sem ég kann og get ekki útskýrt ))

Þá verður skellur,, og þeir sem tóku stóru greiðslubyrðina lenda illa í því.
Ekki er nokkur vafi að misbrestur er á þeim möguleika til að hagnast á heiðvirðan hátt ,, SÉRSTAKLEGA í bankakerfinu,,,, og þar eru persónuleg vensl ,,, VOND LYKT ÞAR Á BÆ

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 09. Jan 2009 00:07 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Alpina wrote:
Þetta er alveg skömm að heyra vælið og grenjið í mörgum hérna ..

ÁLYKTA að þessi eða hinn eigi sökina ..

HREINAR NORNAVEIÐAR að mínu mati,,

án vafa er ljóst að gríðarlega margir samverkandi þættir leiða til þess að staðan er eins og hún er ,,,,,, en að einn eða annar sé meiri skaðvaldur ,,það er ógjörningur að draga slíka ályktun

horfið í vestur og austur ,,,,,, í EU er staðan BARA slæm,, ekki er neinn Davíð eða Jón Ásgeir þar til að tilnefna sem blóraböggul fyrir hruni eða kreppu,,

Almenningur er að mínu mati þau öfl sem samverkandi gera það að verkum að neysla eykst og þörf fyrir meiri framleiðni þar af leiðandi blómstrar,, svo þegar sveiflur í hagkerfinu verða neikvæðar ...........
(( af orsökum sem ég kann og get ekki útskýrt ))

Þá verður skellur,, og þeir sem tóku stóru greiðslubyrðina lenda illa í því.
Ekki er nokkur vafi að misbrestur er á þeim möguleika til að hagnast á heiðvirðan hátt ,, SÉRSTAKLEGA í bankakerfinu,,,, og þar eru persónuleg vensl ,,, VOND LYKT ÞAR Á BÆ


Hvernig getur þú þá borið EU og USA saman við Ísland þar sem augljóslega alheims-lausafjárskreppan spilar þar inn og menn sem hagnast ósiðlega á Íslandi?

Þú getur ekki borið þetta tvennt saman. Þetta er samspil óheiðarlegra manna, vanhæfni ríkisstjóra og ónýts fjármálaeftirlits.

Nei, ég tók EKKI eftir þessu á meðan allt lék í lindi. Nei, ég er ekki hagfræðingur. Nei, ég er ekki viðskiptafræðingur.

En þegar maður hefur hlustað á fréttir úr öðrum löndum sem hafa svipuð dæmi um menn og konur sem hagnast á þennan hátt sem þetta þotulið gerði, þá var því stungið inn í fangelsi og komist að niðurstöðu, er það gert hér? Nei. Getur ekki borið það saman.

Ég er reyndar alveg sammála þér með að vera ekki með nornaveiðar, en fólk verður sárt, reitt og pirrað út í fólkið sem átti stórann þátt að setja okkur í þetta ástand. Fólk eins og þú og allir hérna á kraftinum sem áttu lítinn sem engann þátt í þessu fylleríi.

Okkur var ekki boðið.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 09. Jan 2009 09:27 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Nornaðveiðar eru ekki svo óeðlilegar því fólk leitar að sökudólgi og þangað til að það er búið að skaffa einn slíkann þá verður leitað að einhverjum til að skella skuldinni á.

Á Íslandi, sem í EU og USA er skuldinni skellt á þá sem stjórnuðu stærstu bönkunum og öðrum þeim sem ráku stórfyrirtæki á óarðbærann hátt fyrir skammtíma gróða. Þær eru margar vísbendingarnar um þetta og enn á ýmislegt eftir að koma í ljós.

Það eru upplýsingar sem eiga eftir að koma upp á yfirborðið sem snúa að því hvernig þeir sem áttu "peningana" hafa notað þá til að valta yfir bæði stofnanalegt eftirlit sem annarskonar eftirlit (fjölmiðla t.d.). Það er reyndar hluti af ástæðunni fyrir því að ekki er meira að gerast þessa dagana að fólk treysti sér ekki enn til að ljóstra upp um það sem hefur verið í gangi - en það kemur að því og allstaðar eru sömu leikendurnir í krosseignarhaldi, venslaneti o.s.frv. Þessir gríðar mörgu samverkandi þættir eru leikendurnir í þessu krosseignarhaldi.

Hinsvegar finnst mér alveg réttmætt að gagnrýna vælið og grenjið því margir virðast halda að Ísland sé verst í heimi. Ástandið fer hraðversnandi hér í DK og samskonar skítur er að koma upp. Ég fékk t.d. fréttir af því í gær hér úti að KPMG hafi hylmt yfir með brotum Stein Bagger í IT-Factory enda voru stjórnendur að græða stórfé á kúnnum eins og honum. Þetta er alltaf sama sagan, allsstaðar - ekki bara á Íslandi og rangt að halda því fram að spilling sé meiri á Íslandi en annarsstaðar. Það má kannski með réttu halda því fram að erfiðara sé að draga fólk til ábyrgðar því það virðist ekki nokkur maður láta það sig varða þegar hann brýtur af sér í starfi.

Hér í DK verða um 200 þúsund manns atvinnulausir eftir nokkra mánuði og það er slegið met í gjaldþrotum í hverjum mánuði. Það er engin að kvarta hér ennþá, hlutirnir gerast svo hægt að fólk tekur síður eftir því. Á Íslandi er þessu öfugt farið og sjokkið eftir því.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 111, 112, 113, 114, 115, 116, 117 ... 246  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 2 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group