bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 09:44

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 110, 111, 112, 113, 114, 115, 116 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Jan 2009 09:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Ég persónulega vill mótmæli "a la France" og ég vill sjá thad gerast strax. En svo hrekkur heilinn í gang og ég fer ad pæla.....tharf nokkud ad sjokkera ædstu stjornendur landsins enn frekar? Thetta er upp til hopa folk sem er buid ad gera ser grein fyrir tvi ad efnahagur landsins er kominn a hvolf. Vandamalid er hins vegar thessi óeining innan stjórnarinnar, ef thad hefur einhvern timann verid "timi til ad standa saman" ad tha er thad nuna. Vinna saman ad lausn frekar en ad standa med visifingur i andlitinu a næsta manni og garga upphatt hvad hann er ad gera rangt.
Vid eigum ekki ad sætta okkur vid thad ad stjornmalaflokkarnir noti dyrmætan tima thjodarinnar i politik. Skutan er ad sokkva og thad hratt, thad hjalpar engum og eg meina ENGUM ad "skipperinn" skuli standa i brunni og kenna hinum og thessum um. Burt med nuverandi stjorn, burt med kronuna, burt med neikvæda umrædu og byrja umsvifalaust a motun nyrrar efnahagsstefnu med annan og sterkari gjaldmidil. Med odrum gjaldmidli er eg audvitad ad meina Evru.

Hefur einhver snillingur tharna heima metid hversu langan tima thad tekur ad gerast adilar ad EU og taka upp evruna?

Eg veit ad thad er kostnadarsamt ad taka upp evruna en hver verdur endanlegur kostnadur thess ad halda i kronuna? Hver herna inni thorir ad giska a hvort verdi okkur dyrara a endanum, kronan eda evran. Hver herna hefur 100% tru a tvi ad kronan muni retta sig af a næstu 5 arum og endurheimta truverdugleika sinn sem gjaldmidill?


Burt med radamenn, burt med bankamenn sem sannad er ad tengist hruni kronunnar. Eg thekki engan sem myndi sætta sig vid ad eta rotid epli eda uldid kjot, en thad er sart ad folk tharna heima skuli "neydast" til ad sætta sig vid hlandúldna rikisstjorn. Thad særir mitt litla thjodarstolt ad horfa upp a ordstir Islands fara til andskotans, fyrir tha sem voru i einhverjum vafa ad leyfi eg mer ad stadfesta thad ad folk gerir grin ad okkur i utlandinu. Thad er hlegid ad okkur, ekki bara Joni Asgeiri og jet-settinu heldur ad THER og MER.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Jan 2009 11:40 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég vil líka afsagnir, FME, seðlabanka, ákveðinna ráðherra og svo kosningar. Mér finnst vera munur á því fólki sem ber pólitíska ábyrgð og þeim sem gera það ekki því pólitísk ábyrgð verður ekki flúin þegar kemur að kosningum. Öðrum þarf að koma frá með þrýsting.

Hinsvegar get ég ekki tekið mark á mótmælum sem að ennþá virðast vera undir hælnum á þeim sem settu landið á hausinn, þ.e. þeim sem eyddu öllum peningunum. Við borgum skuldir þeirra sem stofnuðu til skuldanna með óráðsíu - samt mótmælir engin fyrir utan þessi fyrirtæki eða heima hjá þessu fólki. Það er líklega vegna þess að langflestir nutu þess að fá nokkra brauðmola af borðinu hjá þessu fólki á meðan að veislan stóð sem hæst.

Það er líka munur á mótmælum og óeirðum. Það er eins og margir séu að hvetja til óeirða og enn aðrir séu að reyna að færa mótmælinn í þann farveg.

Það er ógeðsleg þróun að mínu mati því að það kemur bara niður á venjulegu fólki í landinu og mun auk þess þýða að öfl sem vilja vernda núverandi fyrirkomulag (núverandi kosninga fyrirkomulag) munu mæta á svæðið til að verjast.

Þá má heldur ekki gleyma því að breytingar sem nást í gegn með ofbeldi, uppþotum, óeirðum og byltingum, eins og sumir hér virðast ýja að að sé nauðsynlegt, eru þess eðlis að þær eru varla afturkræfar nema með sömu meðölum.

Allir ættu t.d. að vita að ekki svo löngu eftir frönsku byltinguna var einræðinu komið á aftur, hið sama á við um flestar aðrar byltingar enda hvernig má annað vera ef valdhafar komast til valda með ofbeldi en ekki lýðræði - þá þarf sömu meðöl (meðul? - ég er orðin alveg ruglaður í þessu) til að koma þeim frá en kúgunin er orðin fordæmalaus og því er það erfitt.

Persónulega þá gleðst ég yfir því að sjá virk mótmæli, viku eftir viku og þau eru að virka. Fólk getur ekki búist við því að stærsta skítamál Íslandssögunnar verði leyst á nokkrum vikum - þetta tekur lengri tíma en það. Enron tók t.d. MJÖG langan tíma. Hinsvegar þurfum við að fara að sjá gæsluvarðhald (t.d. þeirra sem geta spillt rannsóknarhagsmunum og eru grunaðir í dag eða undir rannsókn og þar sem lögin leyfa það) og frystingu eigna mjög fljótlega ef fólk á að hafa trú á því að tekið verði á málunum.

Það er hinsvegar alveg á hreinu, ef einhver hópur fer fram með ofbeldi til þess að reyna að ná fram breytingum þá mun ég og margir aðrir yfirgefa málstaðinn alveg sama hve góður hann er. Ég hef nefnilega meiri óbeit á ofbeldi og kúgun en þaulsetinni ríkisstjórn. Hún mun í það minnsta víkja í næstu kosningum og því tómt mál að tala um að hún beiti kúgun. Auðvitað vita íslenskir stjórnmálamenn ekki hvað pólitísk ábyrgð er og að er stórt vandamál sem mótmæla henta vel til að benda á.

En þar fyrir utan, hver á að taka við? VG og Samfylking? Samfylkingin er mjög samofin útrásinni og ÓRG fyrrverandi flokksbróðir Steingríms J var klappstýran þeirra. Það er sama á hvaða flokk þú lítur, ítökin eru allsstaðar. Ég hefði reyndar trú á að VG gæti komið einhverjum breytingum fram ef ekki væri enn sama gamla liðið við stjórn þar. Steingrímur er t.d. búin að vera þar síðan 1983 og er ekkert öðruvísi en hinir stjórnarherrarnir - hann átti meira að segja sæti með ÓRG í mjög óvinsælli ríkisstjórn 1988-1991.

Annars hef ég orðið vitni af mótmælum hér í DK og í Berlín og vinir mínir hafa margir orðið vitni af mótmælum í Frakklandi, Balkanskaganum og Suður-Ameríku og jafnvel Rússlandi. Íslenska lögreglan á langa leið í að nálgast hörkuna þar en hafa verður í huga að þessir menn eru í vinnunni sinni og munu verja sig af auknu afli eftir því sem hættan er meiri.

Lögreglan í Perú:
Image

UK en einhverjir telja okkur ekki verðskulda að teljast í hópi vestræns samfélags (enda enn bananaríki stjórnskipulega séð þannig að ég hef nú ákveðna samúð með því sjónarmiði - borgarleg gildi eru hinsvegar ólíkt því sem margir virðast halda fremur vel virt á Íslandi miðað við nágrannalöndin)
Image

Íran:
Image

Og talandi um piparsprey!
Image

Rússland:
Image

Danmörk:
Image
Image

Georgía:
Image

Ég held að stundum gleymi fólk hreinlega hvað það hefur það gott á Íslandi. Það er synd að málum skuli vera drepið á dreif með því að grafa undan góðum málstað með ofbeldi.

Eðlilegast væri að undirbúa stjórmálaafl, verða mjög virkur í flokksstarfi eða bara bjóða sig fram á þing til að ná fram breytingum - það er rétta leiðin og sú vænlegasta til að bera árangur. Það er þó líklegt að margir þeirra sem mótmæla hæst myndu líka verða flokks grílunni að bráð. En það er bara eitt vandamál, þeir sem sameinast um að mótmæla núna, geta líklega ekki sameinast um lausn og þangað til að sameiginleg lausn er komin til mun árangurinn láta standa á sér.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Jan 2009 18:39 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Eitt svindlið enn.

Ferðaskrifstofa Íslands (Plús ferðir, úrval útsýn og sumarferðir)

....að fara á hausinn, en Landsbankinn kemur og reddar fyrirtækinu....

BYGG á einhvern hluta í ferðaskrifstofu íslands..... þeir hafa verið mjööög hliðhollir D listanum í gegnum árin og fengu það greinilega til baka...

Skítlegt.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Jan 2009 18:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Stanky wrote:
Eitt svindlið enn.

Ferðaskrifstofa Íslands (Plús ferðir, úrval útsýn og sumarferðir)

....að fara á hausinn, en Landsbankinn kemur og reddar fyrirtækinu....

BYGG á einhvern hluta í ferðaskrifstofu íslands..... þeir hafa verið mjööög hliðhollir D listanum í gegnum árin og fengu það greinilega til baka...

Skítlegt.


Vá......................... :roll: :roll: :roll: :roll: :slap: :slap: :arrow: :idea: :?: :?:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Jan 2009 18:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
Ísland

Image

Þessi reyndar mótmælir mótmælendum og kallar þá kommúnistaskíthæla eða eitthvað álíka :lol:

*þetta átti að vera áframhald af svarinu hans Ingvars, en ég var ekki nógu fljótur :oops:

_________________
BMW E46 318i Touring


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Jan 2009 18:42 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Alpina wrote:
Stanky wrote:
Eitt svindlið enn.

Ferðaskrifstofa Íslands (Plús ferðir, úrval útsýn og sumarferðir)

....að fara á hausinn, en Landsbankinn kemur og reddar fyrirtækinu....

BYGG á einhvern hluta í ferðaskrifstofu íslands..... þeir hafa verið mjööög hliðhollir D listanum í gegnum árin og fengu það greinilega til baka...

Skítlegt.


Vá......................... :roll: :roll: :roll: :roll: :slap: :slap: :arrow: :idea: :?: :?:


Skil þig ekki :D

Ég veit að þetta er samsæriskenning... en á hún ekki alveg rétt á sér á þessum tímum? Er þetta eitthvað öðruvísi en það sem er búið að vera gerast?

Maður bara spyr sig.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Jan 2009 18:55 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Aron Andrew wrote:
Ísland

Image

Þessi reyndar mótmælir mótmælendum og kallar þá kommúnistaskíthæla eða eitthvað álíka :lol:

*þetta átti að vera áframhald af svarinu hans Ingvars, en ég var ekki nógu fljótur :oops:


Svona menn dæma sig sjálfir...

Það er hinsvegar fáránlegt að segja að sjálfstæðismenn yfir höfuð séu eitthvað slæmir menn. Það er ekki eins og það sé skilyrði fyrir því að fá að stofna fyrirtæki að vera sjálfstæðismaður (og að fá að setja það á hausinn!).

Hið sama á við um vinstri síðuna. Ég er gamall sjálfstæðismaður og hef starfað sem slíkur fyrir löngu síðan. Manni hefur ekki hugnast þessi peningaáratta sem virðist hafa gripið marga flokksmenn síðustu ár (og flesta aðra líka) og á sama tíma hef ég lært mikið af því að vera í háskóla sem er mjög sósíalískur og reyndar stofnaður upp úr stúdenta óeirðunum frægu í Frakklandi og víðar - maður hefur því ágætann "tolerans" í báðar áttir. Ég á nána vini sem eru últra frjálshyggjumenn, gallharðir sósíalistar og meira að segja er einn gamall anarkisti með í hópnum. Okkur semur öllum afar vel og erum merkilegt nokk meira sammála en ósammála í pólitík :shock:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 04. Jan 2009 19:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Stanky wrote:

Skil þig ekki :D

Ég veit að þetta er samsæriskenning... en á hún ekki alveg rétt á sér á þessum tímum? Er þetta eitthvað öðruvísi en það sem er búið að vera gerast?

Maður bara spyr sig.


Nei,,,,,,, svosem ekkert að innlegginu þínu,,

Fannst það sam full .... improviserað

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 05. Jan 2009 00:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Ég bara skil ekki þessa setningu hans Geirs.. Hún... passar ekki....

Quote:
Forsætisráðherra útilokar ekki að íslensk stjórnvöld falli frá málsókn á hendur Bretum til að tryggja betri lánskjör vegna Icesave málsins. Hann segist þó ekki vilja blanda þessum málum saman.


http://visir.is/article/20081230/FRETTIR01/817357863


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 05. Jan 2009 00:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
ValliFudd wrote:
Ég bara skil ekki þessa setningu hans Geirs.. Hún... passar ekki....

Quote:
Forsætisráðherra útilokar ekki að íslensk stjórnvöld falli frá málsókn á hendur Bretum til að tryggja betri lánskjör vegna Icesave málsins. Hann segist þó ekki vilja blanda þessum málum saman.


http://visir.is/article/20081230/FRETTIR01/817357863


Ja hun er svolitið i þversögn þessi setning.

Hann vill ekki styggja bretana með malsokn utaf Icesave en hann vill nu samt ekki blanda þessum malum saman ?!?!? :lol:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 05. Jan 2009 08:20 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Þetta er bara ekta pólitíkusa jargon... og auðvitað ætti að spyrja frekar hvað hann meini með þessu því þetta er í mikilli þversögn.

Ég meina, ég útiloka ekki að ég geti fílað E39 M5 ef ég kaupi hann, en ég vil helst ekki blanda þessu tvennu saman.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 05. Jan 2009 19:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bebecar wrote:
Þetta er bara ekta pólitíkusa jargon... og auðvitað ætti að spyrja frekar hvað hann meini með þessu því þetta er í mikilli þversögn.

Ég meina, ég útiloka ekki að ég geti fílað E39 M5 ef ég kaupi hann, en ég vil helst ekki blanda þessu tvennu saman.



:shock:

hehehe

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 05. Jan 2009 20:33 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Alpina wrote:
bebecar wrote:
Þetta er bara ekta pólitíkusa jargon... og auðvitað ætti að spyrja frekar hvað hann meini með þessu því þetta er í mikilli þversögn.

Ég meina, ég útiloka ekki að ég geti fílað E39 M5 ef ég kaupi hann, en ég vil helst ekki blanda þessu tvennu saman.



:shock:

hehehe


:wink:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 05. Jan 2009 21:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Athyglisverð grein úr NY times um risk management og hvernig fjárfestar oftúlkuðu VaR, sem við erum svo að súpa seyðið af í dag.

http://www.nytimes.com/2009/01/04/magaz ... ted=1&_r=1

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 07. Jan 2009 19:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... n_til_ils/

fucking rugl ef þetta gengur í gegn :?

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 110, 111, 112, 113, 114, 115, 116 ... 246  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group