Elnino wrote:
krullih wrote:
Elnino wrote:
það má nú samt alveg fara að taka á þessum mótmælendum! ekkert nema krakkafífl, þetta er farið að ganga of langt í skemmdarverkum og fleiru.
Svo var
hommatitturinn Hörður torfason eitthvað að fordæma vinnubrögð lögreglu, held að löggann megi nú bara hamra á þessu liði, pússa rykið af þessum kylfum.

Sæll, það er árið 2009 - hvað í fjandanum kemur þér það við og hans skoðunum að hann kjósi að naga rör inní svefniherbergi sínu ?
Svona orðbragð skemmir allt kommetið þitt - þó að þú værir greiningaraðili frá M&L. Sorglegt hugarfar og dómgreind.
Já ég hefði vel mátt sleppa þessu! rétt hjá þér, en þetta er bara farið að ganga út í rugl þarna úti.
Félagi, Elino....
Ert þú 15 ára og fylgir skoðunum pabba þíns ennþá? Greyið.
Er það ekki rétt hjá þessum mótmælendum að stjórnmálamenn vilja meina að það sé lýðræði á Íslandi? Í lýðræði er löglegt að mótmæla.
Það er fólk eins og þú, sem ert að ýta undir þessa stjórnmálamenn á Íslandi í dag, fólk eins og þú sem heldur þessum kjánum gangandi og mótmælir mótmælum, sem eru að mótmæla til þess að reyna fá í gegn eitthvað betra á þessu landi.
Síðan hvenær hafa friðsamleg mótmæli virkað? Var franska byltingin friðsamleg? Helduru að sveltandi frakkar hafi bara sagt "ó, fyrirgefðu fröken María Antoinette, við skulum þá bara borða kökur í staðinn fyrir brauð, vegna þess að það er hveitiskortur í landinu, SORRÍ." - eða, ertu búinn að lesa mannkynssögu?
Voru mótmælin í Grikklandi friðsamleg? Átti fólkið þar bara að segja "Æji, þetta er löggann, hún mátti alveg skjóta þennan gæja, hann hefur öruglega bara verið með stæla hvort sem er, maður á að leggjast á bakið þegar löggan mætir á svæðið sko, því annars, verð ég drepinn."
Ef þú, ágæti Elino, hefur fylgst með mótmælum í útlöndum (það eru svona, önnur lönd sko, sem er ekki ísland) þá hefur lögreglan, EKKI gripið inní nema þegar fólk er farið að stofna ÖÐRU fólki í hættu.
Og síðast þegar ég vissi, þá var það að brenna sjónvarpskapla ekki hættulegt, eða, skjóta upp flugeldum, eða flagga bónusfánann á Alþingishúsið, eða kasta eggi í lögregluna, eða kálhausum.
Ef lögreglan æsir sig upp, þá verður múgurinn æstari, það kallast MÚGÆSINGUR. (Mótmælin við Olís er gott dæmi).
En ég skil svosem alveg lögguna, þeir kunna þetta ekkert, þeir kunna bara að stoppa fólk fyrir of hraðan akstur, Ísland var náttúrulega svo mikil Útópía. Engin spilling, bara brjálaðir unglingar á BMW'um að keyra hratt, pís of keiiiik.
Það skiptir engu máli hver er að mótmæla, hvort þetta séu krakkar, skítugir hippar eða klunnalegir kallar, eða mellur, eða hvað þá samkynhneigðir. Það má mótmæla og mótmælin skila engum árangri ef fólk situr bara fyrir framan stjórnarráðið að prjóna, eða brennur jakkaföt.
.... og nei, ég er ekki einn af þessum sem mætir niðrí bæ. Ég vil ekki verða stimplaður hippi, hommi, lessa, skríll eða kjánalegur fyrir það að mótmæla.
kveðja,
haukur