bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 06:11

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 108, 109, 110, 111, 112, 113, 114 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 11. Dec 2008 11:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
arnibjorn wrote:
gstuning wrote:
arnibjorn wrote:
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/12/11/sami_madur_beggja_vegna_bordsins/

Jahámm.. athyglisvert.


Þetta er akkúrat það sama og FL group fíaskóið.
Menn seljandi sjálfum sér á góðu gengi og kaupandi af sjálfum sér á háu gengi og því flytja peninga hreinlega beint yfir til sín. :shock:


Helvíti hentugt að geta búið til peninga sjálfur :)


Þeir eru ekki að búa þá til , heldur taka þá úr fyrirtæki sem þeir stjórna og lauslega sagt millifæra þá yfir í fyrirtæki sem þeir eiga. Þessir peningar eru peningar sem aðrir fjárfestar hafa lagt í fyrirtækið sem þeir stjórna.

Semsagt löglega/siðlaust að STELA af öðrum og GEFA sjálfum sér það,
svo hirða þeir bara peninginn til síns sjálfs í formi launa og ávöxtunar og ef illa fer þá fer bara þeirra eigið company á hausinn, þeir tapa engu.
Algjörlega full proof peningaplott útaf reglunum á íslandi.


Edit.

Peningarnir sem þeir þurftu til að ná stjórn í fyrirtækinu eru fengnir að láni, sem þýðir að annað fyrirtæki sem þeir eiga fær lánaða peninga án veðsetningar í neinu nema tómum bréfum og leggur inn í fyrirtækið sem þeim vantar stjórn í, svo kjósa þeir sjálfann sig bara í stjórn.
og fara kaupa og selja bréf á mismunandi gengi fram og tilbaka og þurrka því peningana úr fyrirtækinu sem þeir eru að koma sér inní.

Peningarnir sem fengnir voru að láni eru svo greiddir tilbaka með bréfum úr fyrirtækinu sem þeir keyptu í eða það er bara ekki borgað og fyrirtækið sem fékk peninginn að láni er sett á hausinn. Og þar sem að þeir eru búnir að þurrka það út þá eru bréfin verðlaus. Bankinn eignast því ekkert.

Oldest trick in the book, nema í öðrum löndum þá eru menn í þeim mun meiri vandamálum að standa í svona "rekstri"(falin fyrirtæki í Lux og Sviss og Caymans og eitthvað bíómynda dót) , enn á gamla góða íslandi eru reglurnar svo lausar að menn komast upp með stuld eins og ekkert sé. Og það eru fréttir um þessi viðskipti í öllum fjölmiðlum og ekkert gerist

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 11. Dec 2008 17:41 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Hverjir borga svo fyrir fjárglæfrastarfsemi útrásarvíkinganna sem hafa skilið eftir sig brunarústirnar?

Jú, almenningur auðvitað!

Tekjuskattur og útsvar hækka


Vinstrimenn eru oft kenndir við lélega fjármálastjórn, miðað við það hlýtur Sjálfstæðisflokkurinn að vera yst á vinstri vængnum.

Það er rétt sem einn erlendur hagfræðingur sagði hér um árið, landinu gæti verið betur stjórnað af fólki sem valið er af handahófi úr símaskránni.

Það sem einnkennir fjármálastjórn ríkisins undanfarin ár (sem hefur fyrst og fremst verið á ábyrgð Sjálfstæðismanna) er að þeir virðast ekki hafa grunnþekkingu á hagfræði (samt er núverandi forsætisráðherra hagfræðingur).
Allir þeir sem hafa lesið sér örlítið til í hagfræði vita að ríkið á að dempa hagsveiflurnar með því að draga úr útgjöldum á þenslutímum og jafnvel hækka skatta en á samdráttartímum á hið opinbera að auka útgjöld og lækka skatta (reyndar þarf maður ekki að hafa lesið neitt í hagfræði til að vita þetta, almenn skynsemi segir manni þetta).
Hins vegar hafa stjórnvöld gert akkúrat öfugt við þetta. Í stað þess að slá á þenlsluna var þess í stað aukið enn frekar á hana, það var allt gert til að halda lofti í blöðrunni. Einnig voru skattar lækkaðir (sem er fínt út af fyrir sig, það verður bara að tímasetja það rétt) í miðri þenslu.
Reyndar kom þessi skattalækkun fyrst og fremst þeim launahæstu vel. Persónuafslátturinn hefur ekki haldið í við verðbólguna með þeim afleiðingum að skattbyrði hefur aukist mest á þá lægst launuðu. Meira að segja fjármálaráðuneytið hefur viðukennt þetta og má sjá vel á eftirfarandi mynd hverjir hafa fyrst og fremst hagnast á lækkun skatta:
Quote:
7. kafla skýrslunnar sem jafnframt er lokakafli hennar er fjallað um tekjujöfnun og skattbyrði í íslenska skattkerfinu. Þar kemur m.a. fram að á árabilinu 1993 til 2005 hafi skattbyrðin aukist um rúmlega 10 prósentustig í lægstu tekjubilum en fari minnkandi við hækkandi tekjur og deyi út við 90% mörkin (sjá töflu 7.2 hér að ofan). Ástæður þessarar þróunar eru m.a. sagðar vera vegna lækkandi álagningarhlutfalls sem ekki hafi dugað til að vega upp á móti hlutfallslegri lækkun persónuafsláttar, afnáms hátekjuskatts og lægri skatts af fjármagnstekjum. Ef litið er til þeirra 5% hjóna sem höfðu hæstu tekjurnar hefur meðalskatthlutfallið lækkað verulega innan þess hóps eða um rúm 15 prósentustig ef litið er til heildartekna en um tæp 4% ef eingöngu er litið til heildarlauna. Þessi munur skýrist að stórum hluta af mikilli aukningu fjármagnstekna sem taldar eru með í heildartekjum en eru undanskildar þegar skattbyrði heildarlauna er reiknuð.


Image

Þeir einu sem í raun hafa notið skattalækkananna er fólk með 90-100 milljónir í árslaun. Mér þætti fróðlegt að vita í hversu mörgum löndum í heiminum svona skattstefna er rekin.
Sem sagt, skattbyrði hefur aukist á meðalmanninn á meðan þeir launahæstu eru þeir einu sem njóta lægri skattbyrðar. Skattbyrði hefur hvergi aukist meira innan OECD en á Íslandi og lendir þessi aukna skattbyrði fyrst og fremst á venjulegu launafólki. Hækkun persónuafsláttar myndi koma lang flestum mun betur.
Og í þessu ljósi ætti ríkið einmitt að vera vel í stakk búið til að takast á við samdrátt en svo er hins vegar ekki. Miðað við þá svakalegu þenslu sem hefur verið hér síðustu ár ætti fjárhagsstaða ríkisins að vera mun betri en hún er. Árið 2007 var hrein staða ríkissjóðs einungis tæpir 37 milljarðar (3,4% af landsframleiðslu) þrátt fyrir mesta þensluskeið Íslandssögunnar.
Þetta er ekkert annað en sönnun þess að ríkisfjármálin hafa verið mjög óábyrg svo ekki sé meira sagt.
Báknið óx bara, ríkisútgjöld jukust og þannig var þenslan ýkt enn frekar.

Og nú þegar það stefnir í mikinn samdrátt þá á að hækka skatta (nú ætti að lækka þá og þá skiptir persónuafslátturinn mestu máli fyrir lang flesta) og draga úr ríkisútgjöldum og gera kreppuna enn dýpri.
Nú ætti ríkið að fara í þær framkvæmdir sem farið var í í miðri þenslu.

Geir H. hefur verið fjármálaráðherra og forsætisráðherra á þessu tímabili og því er ábyrgð hans á þessari ríkisfjármálaóstjórn mikil.
Maðurinn hefði líklegast gott af því að taka þjóðhagfræði 103 aftur.

Af öllu ofangreindu verður að álykta sem svo að Sjálfstæðisflokkurinn sé mesti fjármálaóreiðuflokkur í sögu þessa lands og til skammar fyrir alla hægrimenn þessa lands.
Ég tel mig vera hægra megin við miðjuna og aldrei myndi ég vilja láta kenna mig við þennan flokk.

En aftur að krónunni.
Það eru nokkur hundruð milljarðar í eigu útlendinga hér sem vilja komast út. Við höfum rætt það hér á þessum þræði hversu hversu mikið af þessu fé myndi flýja við fyrsta tækifæri. Sumir hafa viljað meina að þetta séu nú skynsamir fjárfestar og þeir muni bíða eftir að ástandið batni, þeir fari ekki að taka á sig mikið tap vegna lágs gengi krónunnar.
Ég hef hins vegar verið á þeirri skoðun að stór hluti þessara fjárfesta muni koma sér burt með sitt fé við fyrsta tækifæri. Skuldabréf bankanna urðu verðlaus og útlendingar töpuðu mikið á því og því verða flestir þessara fjárfesta ánægðir að fá bara eitthvað fyrir sín skuldabréf. Auk þess er fjármálakreppa í heiminum og fjárfestar hugsa því ekki endilega skynsamlega.
Því miður þá virðist þessi ályktun mín vera rétt, allavega miðað við það sem maður hefur verið að lesa.
Á morgun er á gjalddaga ríkisbréfaflokkurinn RIKB 08 1212 og er stærð þessa flokks um 100 milljarðar. Þessi ríkisbréf eru að mestu leyti í eigu erlendra fjárfesta og til að koma til móts við greiðslu á þessum ríkisbréfaflokki hefur ríkið gefið út ný ríkisbréf (að ríkið gefi út ríkisbréf þýðir bara það að ríkið er að taka lán).
Það sem er áhyggjuefni er hversu lítill áhugi erlendra fjárfesta er á þessum ríkisbréfaútgáfum (það var útgáfa í seinustu viku og svo aftur í gær) og er útlit fyrir að ríkið þurfi að greiða út yfir 50 milljarða á morgun þegar ríkisbréfaflokkurinn RIKB 08 1212 er á gjalddaga.
Ríkisskuldabréf eiga að heita öruggustu bréfin á markaðnum og því er það slæmt að erlendir fjárfesta skuli ekki hafa meiri áhuga á þessum bréfum og bendir þetta til þess að þeir vilji bara komast út.
Samkvæmt nýju gjaldeyrislögunum þá er leyfilegt að kaupa gjaldeyri fyrir vaxtagreiðslur og á morgun þegar erlendir fjárfesta fá ríkisbréfin sem eru á gjalddaga á morgun þá mega þeir nota vaxtagreiðslurnar sem þeir fá vegna þessa til að selja krónur og kaupa gjaldeyri.
Það má því búast við útstreymi upp á nokkra milljarða á morgun vegna þessa og því má búast við veikingu krónunnar á morgun ekki nema SÍ grípi inní.

Annað sem líka veldur áhyggjum er að erlendir kröfuhafar íslensku bankanna virðast ekki vera mjög áhugasamir um að gerast hluthafar.

Kröfuhafar Kaupþings vilja ekki eignast banka á Íslandi

Það virðist því vera að erlendir fjárfesta séu ekki mjög spenntir fyrir því að vera með sitt fé hér á landi og má því ætla að stærsti hluti þessara erlendu fjárfesta komi sér í burtu við fyrsta tækifæri. Gjaldeyrishöftin sem nú eru í gildi auka ekki tiltrú erlendra aðila á okkur og því munu þessi nýju gjaldeyrislög varla breyta neinu um það að erlendir fjárfestar munu fara með sitt fé þegar þeir geta.

_________________
BMW E34 525iA '95


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. Dec 2008 00:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
Sorgarfréttir!

"Alþingi samþykkti jafnframt í kvöld hækkun á bifreiðagjöldum og gjöldum af eldsneyti."

Bifreiðagjöld og bensínskattur hækkar um 12.5%
Þetta var samþykkt áðan.

http://visir.is/article/20081211/FRETTIR01/368670581/-1

Mér er skítsama um áfengið, drekk bara lunda í staðin 8)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. Dec 2008 03:18 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. May 2004 13:27
Posts: 1258
Dóri- wrote:
Sorgarfréttir!

"Alþingi samþykkti jafnframt í kvöld hækkun á bifreiðagjöldum og gjöldum af eldsneyti."

Bifreiðagjöld og bensínskattur hækkar um 12.5%
Þetta var samþykkt áðan.

http://visir.is/article/20081211/FRETTIR01/368670581/-1

Mér er skítsama um áfengið, drekk bara lunda í staðin 8)


er hann bara settur í blender eða hvernig er þetta? :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. Dec 2008 06:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
fokking hardcore!! :lol: :lol:

Image

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 29. Dec 2008 16:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Kannski ekki rétt að vekja þennan þráð upp en horfið á þetta: http://birgitta.blog.is/blog/birgitta/#entry-756504

Fólk sem maður þekkir og meira að segja Jeff Who :D

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 29. Dec 2008 17:49 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Gátu ekki tapað á samningunum

Ef menn mæta í bankann og ræna nokkrum þúsundköllum þá er sérsveitin og þyrlan kölluð út og gripið er til mikilla ráðstafanna.
Ef menn hins vegar ræna 100 milljörðum þá gerist ekkert.

Fyrirtæki eins og Milestone fá afskrifaðar tugi milljarða.
Sjávarútvegsfyrirtæki fá tugi milljarða afskrifaða vegna „umdeildra“ skulda.
Bankamenn fá skuldir vegna hlutabréfakaupa afskrifaðar.
Og svona má lengi telja.

En skuldir almennings hækka bara og í þokkabót hækkar ríkið skatta og eykur álögur og selur inná sjúkrahús.
Almenningur skal sko borga.
Landráðamennirnir halda áfram að fá skuldir afskrifaðar og kaupa fyrirtæki á brunaútsölum.

Hér hefur ekki nokkur einasti maður axlað ábyrgð, allir stjórnkerfinu sitja á sama stað og auðmenn sem hafa skuldsett þjóðina fyrir hundruði milljarða leika lausum hala.
Er furða að það sé hlegið að okkur í útlöndum?

_________________
BMW E34 525iA '95


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 29. Dec 2008 18:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Zyklus wrote:
[b]
Er furða að það sé hlegið að okkur í útlöndum?


Nei, það er ekki furða.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 29. Dec 2008 19:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
nákvæmlega það sem maður óttaðist er að ske, akkurat það sem við vonuðum öll að myndi hætta, en flest vissum kannski að yrði ekki,

þvílík skítastjórnvöld, þvílík hneisa, og svo.. þvílíkt ástand

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 29. Dec 2008 23:37 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 25. May 2005 22:09
Posts: 89
Þetta heldur bara áfram eins og venjulega, nánast fyrir opnum tjöldum því menn treysta á að íslendingar verði áfram samir við sig, kengbeygðir af langinnrættu þrælseðlinu og geri ekki meir en blogga reiðilega og tuða yfir morgunverðarborðinu :roll:



Það er nefnilega svo óskaplega villimannlegt og ósiðmenntað að bregðast yfirhöfuð við því að vera rændur og tekinn í rassgatið.

_________________
Erkifífl með meiru


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 02. Jan 2009 23:41 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Mikið hefur verið deilt á Seðlabanka Íslands undanfarið og má segja að þeir hafi verið duglegir við að rústa trúverðugleika sínum sem er auðvitað grafalvarlegt mál fyrir seðlabanka.

En nú virðist þetta vera komið út í hreinan skrípaleik þegar einn af hagfræðingum Seðlabanka Íslands gengur um hótandi „kommúnistum“.

Image

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/02/motmaelendum_ognad_a_gamlarsdag/

Maðurinn sem um ræðir birtist eftir 1:38 mín.

Það er kannski ekki skrítið að SÍ hafi gert meira ógagn en gagn og hafi misst allan sinn trúverðugleika með svona bjána í vinnu.

Til hvers að henda peningum í Skaup eða Spaugstofuna?

Það er nóg að lesa fréttirnar hérna í þessu kjánalandi.

Þetta samfélag er eitt stórt grín.

Enda ekki að ástæðulausu að gert er grín að okkur erlendis.

_________________
BMW E34 525iA '95


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Jan 2009 02:05 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 15. Apr 2005 14:18
Posts: 798
Location: Þorlákshöfn City!
það má nú samt alveg fara að taka á þessum mótmælendum! ekkert nema krakkafífl, þetta er farið að ganga of langt í skemmdarverkum og fleiru.

Svo var hommatitturinn Hörður torfason eitthvað að fordæma vinnubrögð lögreglu, held að löggann megi nú bara hamra á þessu liði, pússa rykið af þessum kylfum.

:roll: :?

_________________
BMW 330 metch 2002
Bmw e-36 323 coupe - 1997 - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Jan 2009 02:10 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45
Posts: 5844
Varðandi skoðanir... þá finnst mér eins og allir standi á annari hlið alltof fast, margir hverjir á móti mótmælum en margir með þeim.
Hafa dáldið opnar skoðanir, margir eru ósáttir (ef ekki flestir) við ríkisstjórnina.
Ég held að flestir vilji mótmæla en svo eru kannski einhver atriði sem menn eru missáttir við varðandi mótmælin.
Svo verða líklega margir mótmælendur reiðir og illir þegar þeir eru táragasaðir, hvort sem þeir voru að ganga of langt eða ekki.

Virðist sem margir séu ósáttari við mótmælendur en ríkistjórnina.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Jan 2009 02:19 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
maxel wrote:
Varðandi skoðanir... þá finnst mér eins og allir standi á annari hlið alltof fast, margir hverjir á móti mótmælum en margir með þeim.
Hafa dáldið opnar skoðanir, margir eru ósáttir (ef ekki flestir) við ríkisstjórnina.
Ég held að flestir vilji mótmæla en svo eru kannski einhver atriði sem menn eru missáttir við varðandi mótmælin.
Svo verða líklega margir mótmælendur reiðir og illir þegar þeir eru táragasaðir, hvort sem þeir voru að ganga of langt eða ekki.

Virðist sem margir séu ósáttari við mótmælendur en ríkistjórnina.


Það er eitt að tapa einhverjum aurum en annað að tapa heilsuni

Það er ekki verk mótmæla að valda heilsutapi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 03. Jan 2009 02:21 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02
Posts: 469
Elnino wrote:
það má nú samt alveg fara að taka á þessum mótmælendum! ekkert nema krakkafífl, þetta er farið að ganga of langt í skemmdarverkum og fleiru.

Svo var hommatitturinn Hörður torfason eitthvað að fordæma vinnubrögð lögreglu, held að löggann megi nú bara hamra á þessu liði, pússa rykið af þessum kylfum.

:roll: :?


Sæll, það er árið 2009 - hvað í fjandanum kemur þér það við og hans skoðunum að hann kjósi að naga rör inní svefniherbergi sínu ?

Svona orðbragð skemmir allt kommetið þitt - þó að þú værir greiningaraðili frá M&L. Sorglegt hugarfar og dómgreind.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 108, 109, 110, 111, 112, 113, 114 ... 246  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group