Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby bebecar » Tue 09. Dec 2008 09:30

grettir wrote:
bebecar wrote:Ef að dollar fellur um 90% eins og Celeste sá sem Zyklus benti á segir á verður minna mál að borga tilbaka stóran hlutaf IMF láningu... :-)

Ég held ég skilji hvað Gunni er að fara, væntanlega tala um relatíva stöðu Íslands miðað við önnur lönd í þessar niðursveiflu.

Líklegast er evran líka of hátt skrifuð um þessar mundir - við gætum því séð krónuna lagast aðeins á sama tíma sem evra, dollar og fleiri gjaldmiðlar veikjast - það gæti gert okkur talsvert auðveldara fyrir.

Ég held að þetta sé rétt. Við erum líklega bara fyrsta fórnalambið og tókum auðvitað hrikalegan skell á krónu vegna stærðar banka vs. hagkerfi. Fréttir af UBS bankanum í Swiss eru ekki beint að benda til að hann sé á neinu nema brauðfótum:
http://www.visir.is/article/20081016/VIDSKIPTI07/214602506/-1
http://www.vb.is/frett/2/50488/

Vondir hlutir gerast bara hægar í stærri hagkerfunum og vonandi gerast góðir hlutir þá líka hratt í litlum.

Eiga aðrir gjaldmiðlar ekki bara eftir að taka skellinn og þá náum við balance aftur?

Við erum allavega ekki ein í skítnum - það er á hreinu. Hinsvegar verður mikið reynt til að bjarga löndum eins og Sviss þó þeir séu ekki í EU, ólíkt Íslandi.

Spurningin er bara sú hvort það hafi nokkur áhrif því þetta virðist að mestu leiti snúast um að brenna peninga sem hafa verið prentaðir í kerfið og það er bara ekkert hægt að komast hjá því. Ef það gerist ekki núna, þá gerist það bara seinna.

Mestar áhyggjur hef ég reyndar af UK. Maður er að sjá svakalegar tölur þar og þeir framleiða orðið sáralítið því landið hefur færst að svo miklu leiti yfir í þjónustu sem er að dragast verulega saman um þessar mundir.

En hey, maður þarf að spara sjálfur, reyna að vera skynsamur, vona það besta en búa sig undir það versta.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Djofullinn » Tue 09. Dec 2008 13:56

Jæja krónan byrjuð að veikjast aftur.
Hverju spá menn? Ætli toppnum á "plat" styrkingunni sé náð eða hvað?
Á krónan eftir að veikjast eitthvað af viti strax eða flakka svolítið nálægt núverandi GVT?
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby finnbogi » Tue 09. Dec 2008 14:01

GVT :399
Þórður Finnbogi
GSM:663-2524

BMW M5 E39 1999 veðlaus :D
BMW 316i E36 1999 kraftlaus
Image
finnbogi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2645
Joined: Mon 19. Apr 2004 02:07
Location: á M5 á hlið eða í læknis leik með systur þinni

Postby Aron Andrew » Tue 09. Dec 2008 14:05

finnbogi wrote:GVT :399

Ertu ekki að ruglast á úrvalsvísitölu?
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Eggert » Tue 09. Dec 2008 14:19

Djofullinn wrote:Jæja krónan byrjuð að veikjast aftur.
Hverju spá menn? Ætli toppnum á "plat" styrkingunni sé náð eða hvað?
Á krónan eftir að veikjast eitthvað af viti strax eða flakka svolítið nálægt núverandi GVT?

Hún mun halda áfram að styrkjast svona meðan gjaldeyrishöftin eru á, og útflutningur er meiri en innflutningur... en það gerist hægt og rólega.. ekki hátt í 10% á dag eins og hefur verið undanfarið.

Það er ekkert að marka þetta rugl fyrr en gjaldeyrishöftin eru tekin úr notkun. Ég held í mínar evrur þangað til :P
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Eggert » Tue 09. Dec 2008 14:21

Aron Andrew wrote:
finnbogi wrote:GVT :399

Ertu ekki að ruglast á úrvalsvísitölu?

Það er allavega pottþétt ekki greindavísitala!! :lol:

GRÍN!
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Eggert » Tue 09. Dec 2008 16:20

MBL.is wrote:Toyota dregur 30% hækkun til baka

Toyota á Íslandi hefur ákveðið að draga til baka 30% hækkun á verði nýrra bíla sem sett var á um síðustu mánaðamót. Sölu- og markaðsstjóri Toyota segir þetta gert í ljósi trúar á að styrking krónunnar sé komin til að vera.

Með verðfalli krónunnar undanfarnar vikur hafa innfluttar vöru orðið dýrari. Fleiri og fleiri verðlitlar krónur þarf til að borga fyrir innfluttar vörur og hafa bílar sannarlega ekki verið þar undanskildir. Bílaumboðin hafa brugðist við ástandinu á ýmsan hátt en flest reynt að halda í sér með verðhækkanir eftir megni.

Toyota hækkaði verð nýrra bíla um 30% um síðustu mánaðamót. Fleiri umboð breyttu verðskrá vegna gengisþróunar. Eftir að fleyting krónunnar hófst í síðustu viku hefur gengi hennar styrkst verulega gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Toyota ákvað því í gær að draga til baka 30 prósenta hækkun á verði nýrra bíla.

„Við viljum sýna krónunni smá traust og því var þessi ákvörðun tekin,“ segir Kristinn G. Bjarnason, sölu- og markaðsstjóri Toyota.

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/ ... _til_baka/

Djöfull eru þeir brattir :shock: Eða ætli þetta sé bara auglýsingastunt því að sala á nýjum bílum er hvort eð er steindauð?
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby arnibjorn » Tue 09. Dec 2008 16:30

Eggert wrote:

Ég segi eitthvað stunt.. alveg eins og að dekkjaverkstæði eru búin að vera auglýsa lækkanir á dekkjum í dag útaf styrkingu krónunnar.
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Thrullerinn » Tue 09. Dec 2008 16:37

Mikil skítalykt af þessu!

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/ ... omu_hjona/

Sem sagt kaupa lagerinn aftur og engar skuldir.

Að auki...
Ragnar H. Hall lögmaður sat í stjórn Árdegis og er einnig í stjórn Arev samkvæmt heimasíðum félaganna.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby íbbi_ » Tue 09. Dec 2008 17:56

er ekki bara verið að spila á að fólk trúi því virkilega að gengið sé að styrkjast til lengdar, og vonast til að fólk hugsi sér að það sé meira tap í að kaupa ekki bílin núna á svona góðu verði, en að geta það ekki þegar þetta hækkar aftur,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Eggert » Wed 10. Dec 2008 14:44

Krónan búin að veikjast um ~3% í dag... GVT: 200,2900
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby arnibjorn » Thu 11. Dec 2008 11:06

Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby gstuning » Thu 11. Dec 2008 11:16

arnibjorn wrote:http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/12/11/sami_madur_beggja_vegna_bordsins/

Jahámm.. athyglisvert.

Þetta er akkúrat það sama og FL group fíaskóið.
Menn seljandi sjálfum sér á góðu gengi og kaupandi af sjálfum sér á háu gengi og því flytja peninga hreinlega beint yfir til sín. :shock:
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby arnibjorn » Thu 11. Dec 2008 11:26

gstuning wrote:
arnibjorn wrote:http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/12/11/sami_madur_beggja_vegna_bordsins/

Jahámm.. athyglisvert.

Þetta er akkúrat það sama og FL group fíaskóið.
Menn seljandi sjálfum sér á góðu gengi og kaupandi af sjálfum sér á háu gengi og því flytja peninga hreinlega beint yfir til sín. :shock:

Helvíti hentugt að geta búið til peninga sjálfur :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby gunnar » Thu 11. Dec 2008 11:31

arnibjorn wrote:
gstuning wrote:
arnibjorn wrote:http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/12/11/sami_madur_beggja_vegna_bordsins/

Jahámm.. athyglisvert.

Þetta er akkúrat það sama og FL group fíaskóið.
Menn seljandi sjálfum sér á góðu gengi og kaupandi af sjálfum sér á háu gengi og því flytja peninga hreinlega beint yfir til sín. :shock:

Helvíti hentugt að geta búið til peninga sjálfur :)

Einmitt, hver þarf ríkistjórnina til þess þegar það er hægt að gera það sjálfur :shock:

Þætti nú gaman ef erlend óháð rannsóknarnefnd yrði skipuð og gefið leyfi til þess að fara á stúfana örfá ár aftur í tímann til þess að rannsaka nokkra vel valda einstaklinga :x
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 37 guests