grettir wrote:
bebecar wrote:
Ef að dollar fellur um 90% eins og Celeste sá sem Zyklus benti á segir á verður minna mál að borga tilbaka stóran hlutaf IMF láningu...

Ég held ég skilji hvað Gunni er að fara, væntanlega tala um relatíva stöðu Íslands miðað við önnur lönd í þessar niðursveiflu.
Líklegast er evran líka of hátt skrifuð um þessar mundir -
við gætum því séð krónuna lagast aðeins á sama tíma sem evra, dollar og fleiri gjaldmiðlar veikjast - það gæti gert okkur talsvert auðveldara fyrir.
Ég held að þetta sé rétt. Við erum líklega bara fyrsta fórnalambið og tókum auðvitað hrikalegan skell á krónu vegna stærðar banka vs. hagkerfi. Fréttir af UBS bankanum í Swiss eru ekki beint að benda til að hann sé á neinu nema brauðfótum:
http://www.visir.is/article/20081016/VIDSKIPTI07/214602506/-1http://www.vb.is/frett/2/50488/Vondir hlutir gerast bara hægar í stærri hagkerfunum og vonandi gerast góðir hlutir þá líka hratt í litlum.
Eiga aðrir gjaldmiðlar ekki bara eftir að taka skellinn og þá náum við balance aftur?
Við erum allavega ekki ein í skítnum - það er á hreinu. Hinsvegar verður mikið reynt til að bjarga löndum eins og Sviss þó þeir séu ekki í EU, ólíkt Íslandi.
Spurningin er bara sú hvort það hafi nokkur áhrif því þetta virðist að mestu leiti snúast um að brenna peninga sem hafa verið prentaðir í kerfið og það er bara ekkert hægt að komast hjá því. Ef það gerist ekki núna, þá gerist það bara seinna.
Mestar áhyggjur hef ég reyndar af UK. Maður er að sjá svakalegar tölur þar og þeir framleiða orðið sáralítið því landið hefur færst að svo miklu leiti yfir í þjónustu sem er að dragast verulega saman um þessar mundir.
En hey, maður þarf að spara sjálfur, reyna að vera skynsamur, vona það besta en búa sig undir það versta.