bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 22:51

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 103, 104, 105, 106, 107, 108, 109 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 15:12 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég hef enga trú á þessu fyrr en gengið hjá seðlabanka evrópu er komið á svipaðar slóðir.

Hef mjög illan bifur á þessu....

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 15:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
Ég hef enga trú á þessu fyrr en gengið hjá seðlabanka evrópu er komið á svipaðar slóðir.

Hef mjög illan bifur á þessu....

Eru einhver viðskipti þar?

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 15:34 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
bimmer wrote:
bebecar wrote:
Ég hef enga trú á þessu fyrr en gengið hjá seðlabanka evrópu er komið á svipaðar slóðir.

Hef mjög illan bifur á þessu....

Eru einhver viðskipti þar?

Bara veit það ekki, vonandi ekki miðað við hvað evran kostar þar núna.

En þessi styrking, ef hún er komin til að vera, er breikið sem þjóðin þarf.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 15:41 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 25. May 2005 22:09
Posts: 89
Er ekki bara verið að keyra gengið upp svo þeir sem eigi jöklabréfin komi betur út úr þessu þegar þar að kemur með tilheyrandi ennþá meira tapi fyrir okkur? :roll:

_________________
Erkifífl með meiru

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 15:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Phoenix wrote:
Er ekki bara verið að keyra gengið upp svo þeir sem eigi jöklabréfin komi betur út úr þessu þegar þar að kemur með tilheyrandi ennþá meira tapi fyrir okkur? :roll:

Jú það er örugglega stefnan og sjálfsagt enn ein ástæðan fyrir þig að
láta hnefana tala :roll:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 15:48 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Mér þætti fróðlegt að vita hvar ég get selt krónur á genginu USD = 120 ISK án þess að þurfa að framvísa farseðli eða rökstyða það sérstaklega hvers vegna ég ætti að fá að kaupa gjaldeyrinn.

Þið verðið að athuga það að það eru í gangi veruleg gjaldeyrishöft og vegna þeirra er nánast búið að taka af allan söluþrýsting á krónuna og á sama tíma er útflytjendum hótað fangelsisvist ef þeir koma ekki heim með gjaldeyrinn. Auðvitað styrkist krónan við svona aðstæður, fyrr má nú vera.

Það eru 550 milljarðar í erlendum krónubréfum sem haldið er í gíslingu.
Hvað gerist þegar þeim verður hleypt út?

Ég er ekki að reyna að vera leiðinlegur og svartsýnn heldur bara raunsær.
Fólk þarf að horfa á staðreyndir og kynna sér málin áður en það byrjar að fagna.
Ég er ansi hræddur um að verið sé að skapa falsvonir hjá fólki. Fannst það t.d. frekar fyndið þegar Geir H. kom fram og segir að flot krónunnar hafi tekist vel, þetta er eins og hvert annað grín.
Krónan er ekki á floti, það eru veruleg höft á sölu gjaldeyris og því er ansi barnalegt að draga einhverjar ályktanir af styrkingu síðustu tvö daga.
Núverandi gengi er ekki raunverulegt markaðsverð því krónan er í „vernduðu umhverfi“.
Það verður ekki fyrr en krónan verður sett á flot (þ.e.a.s. hver sem er getur keypt og selt krónur) sem við getum farið að tala um botn.

Ég vildi ekki skemma gleðina en stundum þarf að kafa aðeins dýpra i málin.

Annars er það ágætt svona rétt fyrir jólin að fá svona gleðfréttir (á yfirborðinu allavega), veitir ekki af í allri svartsýninni.
Erlendir braskarar sem eiga krónubréf gleðjast líka, nú fá þeir mun meiri gjaldeyri fyrir krónurnar sínar. Líklegast besta jólagjöf sem erlendir spákaupmenn gátu óskað sér.

Set hér inn frétt frá Viðskiptablaðinu:
Quote:
Fréttaskýring: Styrking eða svikalogn?

Eftir þá verulegu styrkingu sem hefur orðið á gengi krónunnar í gær og í dag velta menn því fyrir sér hvort handvirk niðurfærsla hennar muni takast í því takmarkaða fleytingarumhverfi sem hún starfar í.

Vissulega greinir menn á um varanleika styrkingarinnar þó ljóst sé að útflutningur hafi verið verulega umfram innflutning undanfarna mánuði.

Með setningu umdeildra gjaldeyrislaga var ætlunin að tryggja að allur gjaldeyrir bærist til landsins enda hörð viðurlög við undanskotum frá því. Af viðtölum við útflytjendur að dæma virðast þeir ekki treysta sér í annað en að hlýta þessum reglum og skýrir það án efa innflæði gjaldeyris í augnablikinu.

Einnig hafa margir gripið til þess ráðs að losa um gjaldeyrir af reikningum sínum þegar krónan byrjaði að styrkjast. ,,LÍÚ að selja Hagkaup," sagði einn viðmælandi Viðskiptablaðsins og gaf ekki mikið fyrir dýpt markaðarins.

Engum dylst að ætlunin er að kreista allan gjaldeyri út úr þeim sem eiga hann. Því eru útflutningsfyrirtækin nú að skipta sínum gjaldeyri í krónur áður en krónan styrkist enn frekar. Þegar gjaldeyrissjóðirnir hafa þannig verið byggðir upp er væntanlega ætlunin að slaka aðeins á hömlunum.

En í leyni bíður villidýrið - krónubréf og aðrar erlendar kröfur sem bíða þess að fara út. Engin leið er að segja hvort hátt vaxtastig hér dugar til að halda þeim lengur þó vextir séu horfnir víðast hvar.

Það er mjög erfitt að segja til um hvenær þetta erlenda skammtímafjármagn yfirgefur landið eða hvernig. Seðlabankinn stjórnar því alfarið með reglum sínum, og þeir sérfræðingar sem talað var við efa að þeir séu yfir höfuð búnir að fastsetja sér tímasetningu á hvenær þeim höftum verður aflétt.

Haldi krónan áfram að styrkjast út árið gætu þeir farið að aflétta einhverjum hömlum strax í upphafi næsta árs, og ef til vill hleypa einhverjum útlendingum út úr krónustöðum sínum í gegn, t.d. í gegn um sérstök uppboð. Það ferli verður vandasamt og spurning hvaða áhrif það hefur á krónuna.

Á sama tíma verður erlendur markaður (e. off-shore) væntanlega meira og minna lokaður þar til helstu höftum verður aflétt. Það verða einfaldlega varla neinir kaupendur að krónum þar meðan útflytjendum (og öðrum Íslendingum) er gert að standa við skilaskylduna.

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 16:00 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
bimmer wrote:
bebecar wrote:
Ég hef enga trú á þessu fyrr en gengið hjá seðlabanka evrópu er komið á svipaðar slóðir.

Hef mjög illan bifur á þessu....

Eru einhver viðskipti þar?

Ég held að það séu sama sem engin viðskipti nú orðið með krónuna erlendis. Allavega mjög lítil.
Þess vegna er ekki hægt að draga mikla ályktanir af gengi ECB eða annarra erlendra aðila.
En á sama hátt er ekkert að marka gengi í íslensku bönkunum því það er ekki hverjum sem er frjálst að versla á því gengi.
Ég get ekki farið í bankann og selt krónurnar mínar fyrir gjaldeyri.

Það verður ekki fyrr en gjaldeyrishöftum verður aflétt að við fáum rétt verð á krónuna.

Svo er annað sem er athyglisvert að IMF er venjulega mjög mótfallinn öllum gjaldeyrishöftum og í samkomulagi IMF við þau ríki sem bankinn hefur komið til aðstoðar (Pakistan, Úkraína, Ungverjaland og fleiri) er oftast sett það skilyrði að gjaldmiðill landsins fái að fljóta.
Hér á Íslandi er gerð undantekning sem sýnir kannski ansi vel hversu viðkvæð staða krónunnar er. Menn einfaldlega þora ekki að láta krónuna fljóta.
Þess vegna er einmitt frekar fyndið að fólk haldi virkilega að það sé eitthvað sem réttlætir 18% styrkingu á 2 dögum.

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 16:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
ZYKLUS.......

hvað starfar þú við ??

:squint:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 16:44 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Zyklus wrote:

Mér leikur forvitni á því að vita hvort þú vitir hvernig málum er háttað t.d. í Kína. Ef ég man rétt þá er Yuan fest við Dollar, eða var það allavega einhverntímann. En það þýðir í raun að Yuan er "undervalued" vegna efnahagslegs vaxtar Kína umfram USA (svo ekki sé minnst á peningaprentun!).

En allavega, Yuan hefur verið haldið gerfilega lágu um langt skeið til að tryggja útflutning og hamla innflutningi í Kína.

Þannig séð þá er flot bara ein leið af mörgum til að finna út gengi milli gjaldmiðla.

Það er náttúrulega augljóst eins og þú segir að með öllum þessum höftum er þetta ekki flotgengi. Það sem ég er hinsvegar er að velta upp, er hvort, og yfirleitt afhverju, flotgengi er talið nauðsynlegt fyrir okkur?

Nú er ég ekki að mæla höftunum bót. Ég man vel hvernig þetta var hérna t.d. þegar ég fór í útskriftarferð 1991, þá var líka skammtaður gjaldeyrir.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 18:18 

Hef nú reyndar ekki kynnt mér gjaldeyrisfyrirkomulag Kína mikið en veit þó það að árið 2005 fóru þeir frá því að vera með fast gengi yfir í svokallað stýrt fljótandi gengi, þ.e.a.s. kínverska júaninu (einnig kallað renminbi) er leyft að hreyfast innan ákveðinna marka.

Eins og þú segir þá er júanið í raun of ódýrt, einmitt til þess að auka útflutning og takmarka innflutning og einmitt núna er Henry Paulson fjármálaráðherra Bandaríkjanna að reyna að sannfæra Kínverja um að leyfa júaninu að styrkjast og þannig minnka viðskiptahalla Bandaríkjanna.

Það er auðvitað ekkert náttúrulögmál að gjaldmiðill skuli fljóta en ég held að flestir hagfræðingar séu almennt fylgjandi fljótandi gengi (reyndar virðast skoðanir hagfræðinga vera jafn margar og þeir eru margir :lol: ).
Það hefur bara sýnt sig að fastgengisfyrirkomulag helst ekki til lengdar (sbr. t.d. lok Bretton-Woods samkomulagsins og þegar að Bretar gátu ekki varið pundið 1992). Það er alltaf hættan á að ríki fjármagni hallarekstur með peningaprentun eins og gerðist t.d. í tíð Nixons sem síðan hafði þær afleiðingar að Bretton-Woods samkomulagið brast og gjaldmiðlar heimsins fóru á flot.

Það er hægt að setja þetta þannig upp að valið standi á milli tveggja af eftirfarandi atriðum:

-Sjálfstæð peningamálastefna (sem m.a. þýðir það að seðlabanki getur stjórnað vöxtum)
-Fast gengi
-Frjálsir fjármagnsflutningar

Ef við ákveðum að við viljum hafa sjálfstæða peningamálastefnu og frjálsa fjármagnsflutninga (sem er eitt af ákvæðum EES-samningsins) þá getum við ekki haft fast gengi.
Og ef við höfum fast gengi verðum við að velja á milli þess að hafa frjálsa fjármagnsflutninga og að hafa sjálfstæða peningamálastefnu.
Það er ekki hægt að velja allt þrennt.

Ég held að það sé óraunhæft að Ísland sé með fast gengi því Ísland yrði mjög auðvelt skotmark erlendra spákaupmanna og vogunarsjóða. Við þyrftum að hafa gígantískan gjaldeyrissjóð til að geta varið fastgengið og það er einfaldlega ekki raunhæfur möguleiki.
Bara til að sýna hversu stjarnfræðilegar upphæðirnar eru í hinu alþjóðlega fjármálakerfi að þá var einn stjórnandi eins vogunarsjóðs (e. hedge fund) með yfir 200 milljarða í tekjur á einu ári, þetta er næstum helmingur af fjárlögum íslenska ríkisins sem bara einn stjórnandi hafði í tekjur!
Upphæðirnar sem um ræðir þegar kemur að þessum sjóðum og spákaupmönnum eru svo svakalegar að það yrði ekkert mál fyrir þá að gera atlögu að fastgenginu. Þannig að í raun gætum við bara látið krónuna fljóta í stað þess að reyna að halda henni fastri.
Ef við ætlum að vera með fastgengi þá þarf það að vera bakhjarl (erlendur seðlabanki) til að styðja okkur, sbr. t.d. dönsku krónuna en hún er fest við evru (danska krónan má hreyfast innan ákveðinna marka, 2,25% ef ég man rétt) og þar er ECB bakhjarl.

Þannig að ég held að einu raunhæfu möguleikarnir í gjaldeyrisfyrirkomulagi Íslands sé að hafa annað hvort fljótandi krónu, festa krónuna við annan gjaldmiðil í samvinnu við erlendan seðlabanka (sbr. dönsku leiðina) eða einfaldlega að taka upp annan gjaldmiðil í samvinnu við erlendan seðlabanka (sem sagt ekki einhliða).

En ef við ætlum að hafa krónuna þá er samt eitt á hreinu, við getum ekki verið með gjaldeyrishöft endalaust, það hefur ekki gefið góða raun.
Ef það er eitthvað sem nánast allir hagfræðingar eru sammála um (og það er nú ekki mjög margt :lol: ) að þá er það að frjáls viðskipti landa á milli sé af hinu góða og því eigi að varast eftir megni að hindra þau.
Og það er heldur engin tilviljun að talsmenn fyrirtækjanna í landinu séu á móti svona höftum, þetta kemur illa við fyrirtæki og nógu slæmt er nú ástandið. En auðvitað er ástandið ekkert venjulegt í dag og því ansi erfitt að segja hvað sé best í stöðunni. En það er alveg víst að gjaldeyrishöftin geta ekki varað mjög lengi. Það væri mjög slæmt.

En af því þú nefnir peningaprentun þá er gaman að minnast á það að bandaríska ríkið og bandaríski seðlabankinn eru búin að lofa 7700 milljörðum dollara í björgunaraðgerðir til handa fjármálafyrirtækjunum. Þetta er um 50% af landsframleiðslu Bandaríkjanna. Og þrátt fyrir að bandarísk fjármálafyrirtæki séu einungis á lífi vegna ríkisaðstoðar þá borga topparnir á Wall Street sér 70 milljarða dollara í bónusa.
Og á sama tíma er verið að rífast á bandaríska þinginu um skitna 34 milljarða dollara til bjargar bandarísku bílarisunum þremur, GM, Ford og Chrysler.
GM fer í þrot í þessum mánuði ef ríkið bjargar þeim ekki og það myndi hafa hrikalegar afleiðingar fyrir Bandaríkin.
Ekki það að ég sé hlynntur því að bjarga illa reknum fyrirtækjum heldur sínir þetta bara hverjir ráða í raun og veru. Henry Paulson fjármálaráðherra Bandaríkjanna er t.d. fyrrum forstjóri Goldman Sachs þannig að hann fer ekki að bregðast vinum sínum á Wall Street. Það er ekki bara á Íslandi sem klíkuskapur og spilling viðgengst.

En þar sem mér sýnist þú hafa mikinn áhuga á þessum málum þá bendi ég þér á þessa grein og þessa sem ég rakst á en þarna er fjallað um spár Gerald Celente sem hefur reynst ansi sannspár í gegnum tíðina og ef þetta kæmi ekki frá manni sem virðist hafa mikinn trúverðugleika (þetta er maður sem stóru fjölmiðlarnir tala við) þá myndi maður afgreiða þessa spá sem rugl, svo svört er þessi spá hans fyrir Bandaríkin.
Það verður allavega ansi fróðlegt að sjá hvort að þessi maður reynist aftur sannspár. Vonum ekki.

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 18:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Alpina wrote:
ZYKLUS.......

hvað starfar þú við ??

:squint:

:shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 19:21 

Dammit maður, þú skrifar meira að segja lengri pósta en ég :lol:

Jú, ég hef vissulega mikinn áhuga á þessu enda snýst námið mitt um þetta að mjög miklu leit, political economy innan alþjóða samskipta. Það sem skilur mig frá hagfræðingunum flestum er að maður eru að horfa á þetta kerfis og pólitískt séð og þessvegna var ég nú að reyna að rifja upp stöðuna í Kína. Hefði kannski þurft að gúggla þetta en hafði ekki tíma í það akkúrat núna.

Ég kíki á þessar greinar sem þú sendir - sýnist þetta vera dálítið í anda Ron Paul sem er í miklu uppáhaldi hjá mér, aðallega fyrir að benda á það sem mörgum finnst augljóst en aðrir sjá ekki.

Quote:
Ef við ætlum að vera með fastgengi þá þarf það að vera bakhjarl (erlendur seðlabanki) til að styðja okkur, sbr. t.d. dönsku krónuna en hún er fest við evru (danska krónan má hreyfast innan ákveðinna marka, 2,25% ef ég man rétt) og þar er ECB bakhjarl.

Danir eru að fara mjög flatt á þessu núna. Seðlabanki Evrópu hefur þurft að kaupa stórar upphæðir af DKK og það kemur að því að Danir þurfa að skera niður til að borga tilbaka. Það geta þeir bara gert með atvinnuleysi sem er svo kannski ein birtingarmynd slæmu hliðanna á því að vera með "pegged" gjaldmiðil.

Mér sýnist vera al farsælast að láta gjaldmiðilinn í raun dekka raunveruleg verðmæti eins og var með gullfótinn forðum - þá geta spákaupmenn lítið gert - en það er hinsvegar ekki að fara að gerast.

Eftir að hafa rennt aðeins yfir Celeste þá sýnist mér hann nú vera fremur raunsær. Málið er að Bandaríkjamenn hafa prentað gríðarlegt magn af peningum og bólan er sprungin - þeir verða að brenna umfram peningunum.

Hjálparpakkinn núna er bara eitt púst enn í bóluna.

Ég held hinsvegar að almennt séu menn dálítið fljótir að afskrifa Bandaríkin. Þetta er land sem að hefur mikla framleiðslugetu og í raun þá þurfa þau fyrst og fremst veikan dollar til að ýta undir útflutning og draga úr innflutning. Alveg eins og við þannig séð.

En, það eru samt hlutir í Bandaríkjunum sem eru ógnvænlegir, mennta- og heilbrigðiskerfi í lamasessi og svo er baby boom kynslóðin á leiðinni í eftirlaun (kannski það sem sumir kalla hér heima frekjukynslóðina).

Matvælauppþot - miðað við að kanar geta troðið undir fólk á útsölu hjá Wallmart nú þegar, þá getur líklega hvað sem er gerst.

*edit - það má kannski bæta því við að ef þetta verður raunin í USA þá mun það smita allan heiminn og þá verður líklega hvergi betra að vera en einmitt á Íslandi.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 19:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Jááá..........

:shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 19:45 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Til hvers er ALPINA að spamma þessa þræði með tilgangslausum commentum?

Get ekki séð hvernig það skipti máli hvar ZYKLUS vinnur..

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 05. Dec 2008 19:46 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Alpina wrote:
Jááá..........

:shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock:

Z06 ætti að fást á fínu verði notaður þá :lol:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 103, 104, 105, 106, 107, 108, 109 ... 246  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group