Aron Fridrik wrote:
pheonix þetta er ekkert flókið.. þú ert hluti af samfélagi það sem fólkið í landinu kýs sína fulltrúa á þing sem sinn fulltrúi..
t.d. hefur þú myndað þér skoðun á því hvort eigi að setja meiri peninga í skriffanga lið menntamálaráðuneytisins..
ef þú vilt vera sá sem stjórnar þá þarftu að leggja helvíti mikið á þig til að fylgjast með..
Hef hvergi sagt vilja stjórna einu eða neinu en hingað til ekki átt í erfiðleikum með að hafa góða yfirsýn og umsjón yfir því sem mér hefur verið sett í gegnum stöður og nú undanfarið eigin rekstri og það getur enginn komið mér á þá skoðun að umsjá ráðneytis á borð við menntamálaráðneytið sé svo frábrugðið venjulegum rekstri eða stjórnun að þar þurfi menn að að hafa ofurmannlega krafta til að funkera.
Aron Fridrik wrote:
ég er ekki sammála núverandi stjórn né fyrrverandi og ekki neinn flokkur sem ég myndi kjósa í dag.. eeen þá fer ég bara og skila auðu á kosningum og sýni þar með mína skoðun að enginn flokkur virki fyrir mig..
Sama og ég hef gert frá því að ég hafði fyrst aldur til að kjósa. Eingöngu vegna þess að flokkapólitíkin á íslandi er meingölluð og rotinn þar sem menn komast ekki inn á lista öðruvísi en að hafa verið virkir um áratugaskeið innan flokksins sem er ágætis tími til þess að temja mönnum ýmsa lesti sem þeir höfðu ekki endilega fyrir.
Aron Fridrik wrote:
það þurfti þvílíkt að berjast fyrir því að hafa lýðræði hér og verða sjálfstæð þjóð.. það er mikið af þjóðum en þar sem ekki eru haldnar kosningar og ef fólkinu líkar það illa þá er það bara leiðinlegt fyrir þau..
vertu nú einu sinni skynsamur og spáðu í því hvað þú hefur það gott að vera hluti af lýðræði sem eins og er virkar enn.. 
það er ekki að ástæðulausu að borgarafundir eru haldnir, þar getur fólk spurt og beðið um svör og tekið þátt í umræðunni..
ef þér líkar þetta eitthvað illa.. þá geturu flutt til kína og prófað hvernig það er að vera með ritskoðað internet, ritskoðaða fjölmiðla, hafa ekkert að segja um gang mála og ef þér líkar það ekki er bara þaggað niður i þér
Finnst þér í hreinskilni lýðræði á íslandi vera að virka? Þar sem menn taka ákvarðanir upp á sitt einsdæmi sbr. þegar tvö viðrini ákváðu án þess að ræða það einu sinni við ríkisstjórnina að lýsa stuðningi við innrásina í Írak án nokkura eftirkasta, þar sem menn setja vini og kunningja í þægilegar stöður, búa þær jafnvel til ef þær eru ekki á lausu, allt án nokkurra eftirkasta?
Var það ekki í Svíþjóð í fyrra eða hittífyrra sem ráðherra þurfti að segja af sér fyrir að aulast til þess að kaupa tobleronestykki útá vitlaust kreditkort?
En hér? þingmaður er staðinn að hreinum og klárum afbrotum, segir af sér, dæmdur, situr í nokkra mánuði á lúxushóteli og er svo kominn beint aftur inn á þing?
Og smá newsflash, við erum ekki í kína andskotinn hafi það heldur erum búinn að búa við fullveldi í 90 ár með sama rotna kerfinu ALLAN tíman, er ekki kominn tími á gagngera endurskipulagningu á því?
Við erum bara 300 þúsund hræður og svona kjaftæði á ekki að vera eðlilegt í svona litlu samfélagi.