Eggert wrote:
Ég held ég sé bara nokkuð sammála þér þarna Zyklus. En það vantar einn hlekk í keðjuna samt (eins og ég skil þetta), að þegar þessir krónubréfaeigendur fá krónuna sína inn á bankareikning á Íslandi, hvað gera þeir þá ef SÍ kaupir ekki krónuna af þeim? Varla fara þeir að flytja ISK yfir á erlenda reikninga og svo reyna að fá erlenda banka til að kaupa hana af sér þar? Þeir gætu ekki leyst neitt út ef SÍ notar ekki gjaldeyrisforðann til að kaupa krónur af þeim sem vilja selja þær.
Ef ég ætti krónubréf og stæði frammi fyrir þessu vali, að þá væri það komið langt yfir þann ákvarðanaþröskuld að ég myndi ekki leysa út mín bréf til þess að flýta þeim yfir tjörnina. Það er bara of mikið tap, og það sem fer upp kemur einhverntímann aftur niður (GVT).
Þetta sýnir manni soldið í nýju ljósi akkúrat hvað myndi gerast ef hagkerfi bandaríkjanna færi í fokk og allir sem eiga bonds frá bandarísku ríkisstjórninni ætluðu að fara með sitt fjármagn þaðan.
Mér finnst þessi punktur ekki hafa komið nógu mikið fram.. er eitthvað gefið að krónubréfaeigendur leysi allt sitt út um leið? Ég er sammála þér í því að ef ég væri í þessari stöðu myndi ég bíða í lengstu lög með að leysa bréfin út.
_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn