Zyklus wrote:
bebecar wrote:
Maður gefur nú ekki vonina um að réttlætið nái fram að ganga strax. Það liðu eitthvað um 4 ár áður en ENRON stjórarnir voru dregnir fyrir dóm og við getum ekki ætlast til að þess að hlutirnir gangi svona miklu hraðar fyrir sig hér heima.
Á ákveðnum tímapunkti hefði ég getað trúað að það yrði breitt yfir allan skítinn, en ég held að stjórnvöld séu farin að átta sig á því að fólk mun ekki sætt sig við að taka næsta skref fyrr en sökudólgarnir eru fundnir og þeir taka út refsingu - a la Enron. Stjórnvöld taka á þessu, annars rjúka þau sjálf með eilífðar skömm.
Við erum núna aðeins komin skamman veg frá hruninu. Þrýstingurinn á stjórnvöld er að aukast í hverri viku, aðallega frá kröftugum og réttlátum mótmælum en einnig eru sumir fjölmiðlarnir farnir að taka við sér.
Reyndar vil ég líka benda á eitt með fjölmiðlana að þeir eru ein rjúkandi rúst eftir 5 ára fjölmiðlastríð sem hefur kostað geysilega mikið af starfsfólki, nánast allt lausafé og mikið af tekjunum hefur brunnið upp í þessu stríði. FJölmiðlar í dag eru bara svipur hjá sjón miðað við það sem þeir voru fyrir 10 árum.
Ég held að við séum að sjá svona baby steps í rétta átt - en, það gæti náttúrulega verið tálsýn.
Bottom line - það á því miður eftir að taka langan tíma að rannsaka þessi mál og ég held að fólk hljóti að átta sig á því að það sé eðlilegt ef það skoðar álíka mál sem hafa komið upp í nágrannaríkjum okkar.
Við þurfum hinsvegar stanslaust að sjá baby steps í réttu áttina.
Við skulum vona að þú hafir rétt fyrir þér, það veitir ekki af smá bjartsýni.

En því miður þá hefur ekki verið hefð hér á landi fyrir því að menn axli ábyrgð og því miður er ég ekki mjög bjartsýnn á að það breytist. En maður verður auðvitað að halda í vonina. Það t.d. virðist ekki skipta máli hversu óhæfir ráðamenn eru eða hversu stór mistök þeir gera, aldrei neyðast þeir til að segja af sér.
Það er mjög mikilvægt að það verði sett af stað ítarleg og öflug erlend rannsókn og að menn axli ábyrgð. Því ef að ekkert breytist hér á Íslandi eftir atburði seinustu vikna og enginn þarf að axla neina ábyrgð þá er ég ansi hræddur um að fólk einfaldlega yfirgefið landið í stórum stíl því fólk lætur ekki endalaust hafa sig að fíflum. Það kemur fyrr en seinna að þeim tímapunkti hjá fólki þar sem því er nóg boðið.
Ég held að það komi að þessu svona á næstu 3-4 mánuðum.
En ég á náttúrulega fyrst og fremst við þá sem komu okkur í þessi vandræði með glæfralegri fjármálastarfsemi.
Pólitíkusar almennt munu sæta pólitískri ábyrgð fyrr eða síðar þegar það er loksins kosið.
Vandinn er að allir hinir sem eru skipaðir í embætti gera það ekki og þá er atvinnulífið eftir, sem er stærsti sökudólgurinn að mínu mati (þessi 15 manna hópur t.d. sem oft er talað um). Ég held að fólk þurfi að sjá réttlætinu framfylgt þar því þeir leika enn lausum hala og eru bara að koma sér enn betur fyrir. Samt mótmælir engin fyrir utan hjá þessu fólki þrátt fyrir að skuldir þeirra séu strokaðar út á okkar kostnað.
Það mun hinsvegar taka marga mánuði og ár að ganga frá slíkri málsmeðferð - sjáið bara Baugsmálið.
En, þrýstingur á stjórnvöld og þetta fólk fram að því er lykilatriði í því að fólk muni svara til saka.