bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 19. Jun 2025 22:34

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 29 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 21:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Jónas wrote:
Steini B wrote:
Jónas wrote:
Stofnuðu ekki örugglega allir gjaldeyrisreikningar þegar að það var í boði?

Ég veit allavegna um nokkra(ásamt mér) sem getur ekki beðið eftir... "flotinu" :)

Það verður haldin táknræn flotvaka við tjörnina þegar að krónan verður sett á flot, en þá verður einni krónu sökkt í tjörninni :lol:

Vonandi rætast spár danskra hagfræðinga til skammstíma að evran fari í c.a. 250kr í skammann tíma og menn fái smá gróða..

Alltaf að hugsa um eigin skinn ;)

Það er einmitt útaf því sem landið fór á hausinn...

Það hugsa allir um sitt eigið rassgat!......


Sorry, en það er bara bull að gengistryggja sig ekki.


Ef allir myndu spila þennan leik, þá færi það miklu miklu verr með hlutina enn ef fólk myndi sleppa því,

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 21:14 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
gstuning wrote:
Jónas wrote:
Steini B wrote:
Jónas wrote:
Stofnuðu ekki örugglega allir gjaldeyrisreikningar þegar að það var í boði?

Ég veit allavegna um nokkra(ásamt mér) sem getur ekki beðið eftir... "flotinu" :)

Það verður haldin táknræn flotvaka við tjörnina þegar að krónan verður sett á flot, en þá verður einni krónu sökkt í tjörninni :lol:

Vonandi rætast spár danskra hagfræðinga til skammstíma að evran fari í c.a. 250kr í skammann tíma og menn fái smá gróða..

Alltaf að hugsa um eigin skinn ;)

Það er einmitt útaf því sem landið fór á hausinn...

Það hugsa allir um sitt eigið rassgat!......


Sorry, en það er bara bull að gengistryggja sig ekki.


Ef allir myndu spila þennan leik, þá færi það miklu miklu verr með hlutina enn ef fólk myndi sleppa því,


Enda er búið að loka fyrir stofnun gjaldeyrisreikninga.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 00:25 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 26. Oct 2002 14:07
Posts: 995
Location: Reykjavík
það verður nú spurning um hvað verður mikið eftir af þessu Lánum þegar þeir fara að innleysa jöklabréfin þá verður varasjóðurinn ekki mikill :(

_________________
Corvette c5
Bmw 330i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 00:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 23:40
Posts: 2731
Halli wrote:
það verður nú spurning um hvað verður mikið eftir af þessu Lánum þegar þeir fara að innleysa jöklabréfin þá verður varasjóðurinn ekki mikill :(


Þeir eru að því núna.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 00:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Algjör ÞVÆLA ef þeir eyða öllu láninu í að reyna að halda við krónuna.
Það mun ekki virka.

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 03:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
bebecar wrote:
Ef að landráðamennirnir enda í fangelsi þá eigum við okkur viðreisnar von. Það er eina tryggingin fyrir því að þeir steli ekki peningunum aftur og eina svarið við hrópum þjóðarinnar eftir réttlæti. Kannski meira en það, þeir í fangelsi er ein helsta von okkar um uppreisn æru erlendis!

Æran er ekki mæld í peningum, það verður ekki hægt að vera stoltur af því að vera íslendingur næsta mannsaldur erlendis.
bebecar wrote:
Ég efa það ekki að krónan á eftir að taka vænan skell núna. Hinsvegar þá finnst mér einhvern veginn hæpið að hún fari enn neðar en það gengi sem var á henni hjá t.d. seðlabankanum í Evrópu. Var ekki evran í um 250 kalli þar þegar verst lét?

Horfðu á þennan hroðbjóð og arðrán:
http://www.ecb.int/stats/exchange/eurof ... sk.en.html

bebecar wrote:
Þekki einn sem fékk lækkaða húsaleigu í síðasta mánuði úr 1.1 milljón niður í 600 þús. Ekki slæmt það.

Ertu að telja á hvaða gengi?

bebecar wrote:
Hinsvegar, þá væri eiginlega út í hött að nýta sér ekki gengisfallið með því að vinna hérna úti í eins og eitt ár á borga niður íbúðarlán t.d. eða kaupa sér eignir á Íslandi á 60-70% afslætti í raun.

Það eina sem gæti verið jákvætt með þennan svívirðilega kross við evru er ef við tækjum upp evruna, sem öreigaþjóð, er ef ISK lánunum yrði konvertað í evrur á ruglgengi, launaskriðið hér mundi sjá um það að lyfta GDP frá ca €5k upp í eðlilegan level.

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 10:00 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Húsaleigan er á Íslandi í ISK í þessu tilfelli - þetta er atvinnuhúsnæði (og góður rekstur, meira að segja í niðursveiflu)

Ég held nú reyndar að maður geti haldið ærunni. Ég ætla að láta nokkra bankamenn hirða hana af mér.

Þetta gleymist fljótt. En að auki þá er þessi slæma æra bundin við ákveðinn geira og það eru ákveðnar típur af fólki sem að nærast á þessu slæma umtali erlendis um Íslendinga.

Ég t.d. finn ekki mikið fyrir þessu hér úti, eiginlega ekki neitt. En það er allskonar pakk allsstaðar sem pikkar þetta upp og horfir á Íslendinga með fyrirlitningu, svona svipað og pakkið heima horfði á Pólverjana sem voru að vinna hjá okkur (og ýmsa aðra útlendinga).

Ég vinn og læri í alþjóðlegu umhverfi og hef unnið með mönnum frá USA (sem eru nú sennilega mest hataða þjóð í heimi) Írak, Búrma (Myanmar), Ísrael, Eþíópíu, Nígeríu og svona mætti lengi telja. Niðurstaðan er alltaf sú sama - það eru ákveðnar típur af fólki sem dæma eftir steríótípum en lang flestir leyfa manni að njóta vafans og skapa sitt eigið orðspor.

Við höfum heldur ekki drepið neinn ennþá :wink:

Ef maður hefur þokkalega söguþekkingu þá er nóg til af skotfærunum á aðrar þjóðir ef menn eru á þeim buxunum og vilja verja sig.

Reyndar, til þess að hlutir gleymist eða séu fyrirgefnir, þá þarf að skipta út liðinu sem kom okkur í þennan pakka og hefja uppbygginguna... það lítur ekki alveg út fyrir að það gerist á næstunni.

En annars lýt ég þetta kannski öðrum augum. Það er svo mikið af fólki í kringum mig sem hefur farið á staði sem hafa verið í algjörum rústum og tekið þátt í uppbyggingu samfélagsins. Það er nokkuð spennandi en líklega þarf maður að hafa vænan skammt af bjartsýni til að leggja í svoleiðis ferð.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 11:35 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sun 10. Dec 2006 14:45
Posts: 247
Quote:
Íslendingar vaknið - Spilling innan IMF

Hér að neðan má finna nokkrar áhugaverðar en jafnframt óþægilegar
staðreyndir um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn sem ríkisstjórn Íslands og
Seðlabankinn leitar nú á náðir hjá.

Það er almennur misskilningur að IMF (Aljóða gjaldeyrissjóðurinn) sé
góðgerðastofnun. Hinar svokölluðu "hjálparaðgerðir" IMF hafa á síðustu árum
verið harðlega gagnrýndar um allan heim.

Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, starfaði sem
framkvæmdastjóri IMF á árunum 1997-2000 en var svo rekinn úr starfi fyrir að
tjá sig opinberlega um hinn "raunverulega árangur" IMF. Hann benti á þá
staðreynd að flest ríki sem þiggja aðstoð IMF enda í mun verri stöðu en
áður. Efnahagskerfin hrynja algjörlega, ríkisstjórnir splundrast og
ríkisvaldið minnkar og oftar en ekki endar allt í hörðum átökum og
glundroða. Fyrir það að benda á þessa alkunnu staðreynd var hann rekinn.

Það er staðreynd að ríki sem eru í efnahagslegum vandræðum þola sjaldan þau
skilyrði sem IMF setur fyrir lánveitingum sínum. Hækkun skatta og harður
niðurskurður í mennta- og heilbrigðiskerfum fer illa með fólk í viðkomandi
löndum. Kröfur um opnun markaða eyðilegga alla innlenda framleiðslu og
landbúnað. Strangar kröfur um einkavæðingu veita svo náðarhöggið því helstu
nauðsynjar og þjónusta hækka upp úr öllu valdi.

Suður Ameríka er gott dæmi um þá hörmungarslóð sem IMF hefur skilið eftir
sig. Mörg lönd þar hafa misst öll auðæfi sín í hendur erlendra einkaðila,
aðallega bandarískra og breskra stórfyrirtækja sem kúga þegna landana með
gríðarlegum hækkunum á t.d. gasi, olíu og jafnvel drykkjarvatni. Þar á meðal
eru lönd eins og Argentína, Bólivía, Brazilía, Chile, Paraguay og El
Salvador. Sömu sögu er að segja í Indónesíu og nokkrum Afríkuríkjum.

Eftir slíkar aðfarir er skiljanlegt að almenningur rísi upp með hörðum
mótmælum og uppþotum gegn ríkisstjórnum landana, sem frá upphafi voru í
vonlausri stöðu. Efnahagurinn hrynur aftur og landið þarf að afsala sér enn
frekari réttindum og auðæfum til IMF.

Argentína er eitt ljótasta dæmið um þessa meðferð IMF. Þar varð á endanum
efnahagslegt stórslys eftir aðkomu IMF og gjörsamlega allar auðlindir
landsins voru seldar erlendum stórfyrirtækjum eins og British Petrolium og
Enron. Jafnvel vatnsveitukerfin voru einkavædd og stór hluti
höfuðborgarinnar Buenos Aires er án drykkjarvatns. Ekki nóg með að vatn sé
nú dýrt, heldur er bara ekki hægt að skrúfa frá krananum.

Árið 2001 voru svo opinberuð mjög óþægileg skjöl fyrir IMF. Ónefndur aðilli
lak viðkvæmum skjölum í hinn margverðlaunaða blaðamann og rithöfund Greg
Palast, sem birti þau opinberlega í sjónvarpsviðtali og síðan á heimsíðu
sinni *www.gregpalast.com* <http> .
Þar kom fram að ofan á þær opinberu kröfur sem IMF hafði sett Argentínu og
fleiri ríkjum settu þeir fram óopinberar og leynilegar kröfur sem alþjóða
samfélagið fékk ekki að vita um. Að meðaltali voru þetta yfir hundrað
leynikröfur á hvert ríki. Leiðtogum ríkjanna var stillt þannig upp við vegg
að þeir urðu að láta undan og samþykkja allar kröfurnar. Þar á meðal voru
kröfur um það hvaða erlendu risafyrirtæki fengju auðlindir þjóðanna
svívirðilega langt undir raunvirði. Skjölin voru undirrituð af Jim
Wolfensen, þáverandi framkvæmdarstjóra IMF. Í fyrstu neitaði bankinn tilvist
skjalana en dró það til baka eftir að Greg Palast birti þær á síðunni sinni.
Bankinn varð þá að viðurkenna tilvist skjalana en ákvað að tjá sig ekki
frekar um málið opinberlega.

IMF er að því er virðist spillt stofnun að einhverju eða jafnvel öllu leyti.


Sú hugsun er í raun ekki svo langsótt þegar litið er til þeirrar staðreyndar
að IMF er að 51% hlut í eigu United States Treasury.

Allir ofangreindir hlutir eru því miður staðreyndir.
Efasemdamönnum er velkomið að gera örlitla upplýsingaöflun á netinu, ekki
þarf að leita lengra en *www.wikipedia.com* <http>


En hefur Ísland eitthvað að óttast vegna væntanlegs láns frá IMF?

Ríkisstjórn Íslands hefur fullyrt það að kröfur IMF séu "ásættanlegar" og að
íslenskt efnahagslíf sé sniðið að þörfum og kröfum IMF og þurfi ekkert að


óttast. Það er von allra Íslendinga að svo sé en við skulum nú samt velta
nokkrum hlutum fyrir okkur áður en við tökum þau orð góð og gild.

Ef litið er blákalt á stöðuna þá er Ísland komið í svo slæma stöðu að ekki
virðist nein önnur útgönguleið en að leita á náðir IMF. En svo mikið er víst
að þegar aðeins ein möguleg leið er sjáanleg úr mikilli krísu þá að
sjálfsögðu virðist sú leið "ásættanleg" hver svo sem hún er.

Nú þegar IMF er kominn með hönd sína á íslensku reiðtygin, byrjar íslenski
seðlabankinn að hækka stýrivexi upp í 18% sem mun án nokkurs efa veita
mörgum fjölskyldum og fyrirtækjum náðarhöggið á þessum erfiðu tímum.
Fjármálaspekingum um allan heim þykir þessi leikur Seðlabankans vægast sagt
furðulegur þegar aðeins eru 10 dagar frá því stýrivextir voru lækkaðir niður
í 12%. Seðlabankastjórnin virðist ekki vita í hvorn fótinn hún á að stíga.

Einnig er erfitt að líta fram hjá því að hækkun stýrivaxta hér á landi er
algjörlega í andstæðu við þá verulegu lækkun stýrivaxta sem önnur lönd hafa
ákveðið að nota gegn heimskreppunni.


En hvað er hægt að gera?
Er hægt að gera eitthvað meira en að vona það besta?

Auðvitað verðum við Íslendingar að trúa því og treysta að ráðamenn
þjóðarinnar og Seðlabankinn séu að gera sitt besta á þessu erfiðu tímum. En
við megum ekki gleyma því að þessir sömu aðillar sem nú fara ofan í saumana
á íslenska efnahagshruninu og eru að setja saman björgunaraðgerðir fyrir
þjóðina, eru þeir sömu og bera hvað stærsta ábyrgð á allri vitleysunni.

Nú verðum að standa upp og krefjast þess að þeir sem eigi hlut að máli axli
ábyrgð. Krefjumst þess að gamla hugsunarhættinum verði skipt út fyrir nýjar
hugsjónir, og fyrst og fremst verðum við að krefjast þess að allar
upplýsingar um aðdraganda og eftirmála íslensku kreppunar verði dregnar fram
í sviðsljósið.

Við eigum ekki að sætta okkur við það að þeir aðilar sem eru ábyrgir fyrir
hruninu sitji nú við samningaborðið við spillta stofnun fyrir luktum dyrum
og neiti að tjá sig um ákvæði samninga.

Afhverju taka samningaviðræður við IMF svo langan tíma og afhverju ríkir svo
mikil leynd yfir þeim? Gæti það mögulega verið vegna þess að ráðþrota
ríkisstjórn okkar eigi mjög erfitt með að kyngja þeim leynisamningum og
valdbeitingu sem IMF beitir nú með miklum þunga?

Við verðum að gera ráðamönnum þjóðarinnar ljóst að okkur er ekki sama um þá
álitshnekki sem þjóðin hefur orðið fyrir og að aldrei muni það viðgangast að
auðæfi og stolt þjóðarinnar verði hrifsuð burt.

Íslendingar stöndum ekki aðgerðalausir né lítum niður á þá sem mótmæla.
Tölum ekki gegn þeim sem hylla raunverulegt lýðræði.

Okkur Íslendingum ber skilda að standa saman og láta í okkur heyra.

Mætum næstu laugardaga niður á Austurvöll kl 15:00 og látum rödd fólksins
óma til yfirvalda.


...höfundur er óflokksbundinn og stoltur Íslendingur.

Arnar Fells Gunnarsson


Fékk þetta sent í pósti um daginn :shock:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 14:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Posts: 10993
Location: Keflavík, BMW hverfinu
Zeus wrote:
Quote:
...höfundur er óflokksbundinn og stoltur Íslendingur.

Arnar Fells Gunnarsson


Fékk þetta sent í pósti um daginn :shock:

Kannast eitthvað við nafnið....
Held þetta sé 28 ára furðufugl úr Keflavík ef mér skjátlast ekki.....

_________________
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 23. Nov 2008 09:14 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Posts: 981
Location: Ásbrú
gstuning wrote:
Jónas wrote:
Steini B wrote:
Jónas wrote:
Stofnuðu ekki örugglega allir gjaldeyrisreikningar þegar að það var í boði?

Ég veit allavegna um nokkra(ásamt mér) sem getur ekki beðið eftir... "flotinu" :)

Það verður haldin táknræn flotvaka við tjörnina þegar að krónan verður sett á flot, en þá verður einni krónu sökkt í tjörninni :lol:

Vonandi rætast spár danskra hagfræðinga til skammstíma að evran fari í c.a. 250kr í skammann tíma og menn fái smá gróða..

Alltaf að hugsa um eigin skinn ;)

Það er einmitt útaf því sem landið fór á hausinn...

Það hugsa allir um sitt eigið rassgat!......


Sorry, en það er bara bull að gengistryggja sig ekki.


Ef allir myndu spila þennan leik, þá færi það miklu miklu verr með hlutina enn ef fólk myndi sleppa því,


Getur ekki passað að gjaldeyrisreikningar séu í gömlu bönkunum ? og þar af leiðandi ekki lausir til útborgunar ?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 23. Nov 2008 11:47 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
BjarkiHS wrote:
gstuning wrote:
Jónas wrote:
Steini B wrote:
Jónas wrote:
Stofnuðu ekki örugglega allir gjaldeyrisreikningar þegar að það var í boði?

Ég veit allavegna um nokkra(ásamt mér) sem getur ekki beðið eftir... "flotinu" :)

Það verður haldin táknræn flotvaka við tjörnina þegar að krónan verður sett á flot, en þá verður einni krónu sökkt í tjörninni :lol:

Vonandi rætast spár danskra hagfræðinga til skammstíma að evran fari í c.a. 250kr í skammann tíma og menn fái smá gróða..

Alltaf að hugsa um eigin skinn ;)

Það er einmitt útaf því sem landið fór á hausinn...

Það hugsa allir um sitt eigið rassgat!......


Sorry, en það er bara bull að gengistryggja sig ekki.


Ef allir myndu spila þennan leik, þá færi það miklu miklu verr með hlutina enn ef fólk myndi sleppa því,


Getur ekki passað að gjaldeyrisreikningar séu í gömlu bönkunum ? og þar af leiðandi ekki lausir til útborgunar ?


Í nýju bönkunum og engin takmörkun á úttekt í ISK


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 23. Nov 2008 13:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
http://thevikingbay.org/details.php?id=2716 mæli með að allir nái í þessa mynd og horfi á... Til dæmis er talað um IMF

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 23. Nov 2008 14:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Hannsi wrote:
http://thevikingbay.org/details.php?id=2716 mæli með að allir nái í þessa mynd og horfi á... Til dæmis er talað um IMF


Hér er stream af þessari mynd

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 23. Nov 2008 16:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
Alpina wrote:
Afsakið......

Þið Ívar og Brynjar !!!!!!

þið hafið farið miklum drjúgum orðum um ástand þjóðfélagsins,

eitt sem ég rak hælin í ....... í minni mínu

þið voruð báðir stórþátttakendur í miklum neyslu-lánum v/bílaeign

afhverju eruð þið svona hræddir við stöðu mála eins og hún hefur þróast

((((( spyr af forvitni ,, engu öðru ,,,,,, ekkert diss eins og aðrir póstar frá mér í öðrum þráðum eru teknir hjá nokkrum spjallverjum :x )))))


það er í raunini engin samtenging á milli, ég keypti óvenjumikið af bílum á tímabili af því að ég vann við að selja þá, og var að reyna ná mér í aukapening eins og eflaust flr,

álit mitt á aðgerðum ríkisstjórnarinnar hefur lítið með það að gera, þótt ég hafi komið sjálfum mér í þá stöðu að vera mun háðari aðgerðum þeirra, með þáttöku minni í "the big cake"

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 29 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 41 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group