Húsaleigan er á Íslandi í ISK í þessu tilfelli - þetta er atvinnuhúsnæði (og góður rekstur, meira að segja í niðursveiflu)
Ég held nú reyndar að maður geti haldið ærunni. Ég ætla að láta nokkra bankamenn hirða hana af mér.
Þetta gleymist fljótt. En að auki þá er þessi slæma æra bundin við ákveðinn geira og það eru ákveðnar típur af fólki sem að nærast á þessu slæma umtali erlendis um Íslendinga.
Ég t.d. finn ekki mikið fyrir þessu hér úti, eiginlega ekki neitt. En það er allskonar pakk allsstaðar sem pikkar þetta upp og horfir á Íslendinga með fyrirlitningu, svona svipað og pakkið heima horfði á Pólverjana sem voru að vinna hjá okkur (og ýmsa aðra útlendinga).
Ég vinn og læri í alþjóðlegu umhverfi og hef unnið með mönnum frá USA (sem eru nú sennilega mest hataða þjóð í heimi) Írak, Búrma (Myanmar), Ísrael, Eþíópíu, Nígeríu og svona mætti lengi telja. Niðurstaðan er alltaf sú sama - það eru ákveðnar típur af fólki sem dæma eftir steríótípum en lang flestir leyfa manni að njóta vafans og skapa sitt eigið orðspor.
Við höfum heldur ekki drepið neinn ennþá
Ef maður hefur þokkalega söguþekkingu þá er nóg til af skotfærunum á aðrar þjóðir ef menn eru á þeim buxunum og vilja verja sig.
Reyndar, til þess að hlutir gleymist eða séu fyrirgefnir, þá þarf að skipta út liðinu sem kom okkur í þennan pakka og hefja uppbygginguna... það lítur ekki alveg út fyrir að það gerist á næstunni.
En annars lýt ég þetta kannski öðrum augum. Það er svo mikið af fólki í kringum mig sem hefur farið á staði sem hafa verið í algjörum rústum og tekið þátt í uppbyggingu samfélagsins. Það er nokkuð spennandi en líklega þarf maður að hafa vænan skammt af bjartsýni til að leggja í svoleiðis ferð.