gstuning wrote:
Ég veit það ekki , enn persónulega finnst mér ekki sniðugt að við förum í EU eða tökum upp evruna,
ísland á enn margt sem EU og aðrar þjóðir hafa mikinn áhuga á, enginn ástæða að gefa þeim það.
Það er nákvæmlega málið. Það er heldur ekki útséð með niðursveifluna í EU en hún gæti orðið ansi svæsin. 25% húsnæðis í Bretlandi og fleiri löndum er t.d. yfirveðsett í dag og Bretland byggir innkomu t.d. að miklu leiti á þjónustutekjum sem auðvitað hverfa nánast í svona árferði.
Og að 300 þús manna þjóð geti ekki stjórnað sjálfri sér - plís

Það má vel vera að mörgum hérna finnist þjóðin í heild arfa vitlaus. Það finnst mér hinsvegar ekki, við erum upp til hópa ágætlega upplýst. Vandinn liggur í stjórnskipaninni og þar þurfum við að bæta okkur svo eftirlit og viðurlög séu meiri við afglöpum og vinagreiðum.
Ætlar þú Stanky, virkilega, að halda því fram að Íslendingar séu eitthvað öðru vísi innrættir eða vitlausari en annað fólk? Anda djúpt og hugsa rökrétt.
Ég skil alveg rökin fyrir því að fara í EU. En ég held það séu skammtíma hagsmunir okkar og auðveld leið sem er ekki endilega sú besta til lengdar. Hugsið ykkur t.d., mynduð þið vilja vera í EU ef hér fyndist olía? Væri ekki betra að ráða sér alfarið sjálfur, meðal annars í hverju tekjunum yrði eitt? Hvað haldið þið að framlög Íslands, sem olíuframleiðanda t.d, yrðu miklu meiri en það sem við fáum tilbaka? Heimfærið þetta svo yfir á orkuna okkar og fiskimið. Bretar sjá ennþá fiskimiðin okkar í hyllingum og vilja komast í þau. Þorskur er varla fáanlegur í Fish & Chips - þeir leggja nú ýmislegt á sig til að halda í þjóðarréttinn.
EU er gríðarlega óskilvirkt batterí og þú getur ekki einu sinni kosið fólk beint til áhrifa þar. Þá eru ónefndir alvarlegir hlutir eins og hlunnindi bundin við starfstitla og fleira slíkt sem mér persónulega finnst afar ógeðfellt að sé lögbundið í EU.
Kostirnir eru auðvitað margir, en það gæti bara einmitt verið að akkúrat á þessum tímapunkti sé EU ekki svo spennandi.
Bara svo þið vitið það þá er ég að vinna að verkefni fyrir framkvæmdastjórn evrópusambandsins um þessar mundir - maður sér ýmislegt sem manni ekki líkar og það er rík tilhneyging til þess hjá þeim sem eru fylgjandi EU að breiða yfir og líta framhjá göllunum. Mín vinna lítur að því að stuðla að auknu gagnsæji EU en það er bara erfitt því að sjálfskoðunin er svo mikil, það má ekki segja neitt neikvætt um EU þrátt fyrir að af nógu sé að taka. Ég er semsagt að vinna að endurskoðun á þessum málefnum EU en má ekki gagnrýna því þá fáum við ekki "funding" - sniðugt
Að mínu mati, hreinsa upp skítinn, standa við okkar skuldbindingar, breyta lögum og stjórnarskrá þannig að eftirlit verði mun ríkara og þrígreining ríkisvaldsins skýr, kjósa upp á nýtt, halda krónunni og sjálfstæðinu. Mín vegna má svo sem alveg droppa krónunni - en það mun þurrka út allar okkar eignir því það mun engin vilja kaupa af okkur krónur. Við þyrftum því að byrja að safna upp á nýtt, frá núlli en ef menn vilja það þá má alveg fara út í þann pakka.
Einnig mætti hugsa sér að halda krónunni en binda hana við eitthvað fast verðmæti (t.d. eins og gert var fyrir nokkrum áratugum með gull). Þannig væri að miklu leit komist hjá þessum þennsluáhrifum.
http://www.itulip.com/greenspangold.htm