bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 09:25

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 91, 92, 93, 94, 95, 96, 97 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:01 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Jónas wrote:
Stanky wrote:
gstuning wrote:
Ég veit það ekki , enn persónulega finnst mér ekki sniðugt að við förum í EU eða tökum upp evruna,

ísland á enn margt sem EU og aðrar þjóðir hafa mikinn áhuga á, enginn ástæða að gefa þeim það.

Þetta kallas fáfræði Gunni.

EU er ekki eitthvað þriggja metra hátt tröll sem kemur og stelur af okkur, hleypur með það yfir atlantshafið á meðan það hlær, manískum hlátri!

Ertu búinn að kynna þér allt í sambandi við EU?

Hvernig þeir fá fiskimiðin okkar og orkuna?

Það er ekki samið. Það eru bara ákveðnir skilmálar við inngöngu í EU og ríki ákveða hvort þau fara inn eða út.

Einnig, hvað ef það finnst massíft mikil olía sem Ísland á tilkall til fyrir austan?

Þegar Portúgal gekk í EU, þá var þetta á eftirfarandi hátt:

Víðsvegar um Portúgal eru lítil þorp, þorp sem lifa bara á því að veiða fisk og selja.

Þegar þeir gengu inn í EU þá voru þeir mjög hræddir um að þessi þorp myndu deyja út, skiljanlega.

En þessi þorp fengu undanþágu, þau eiga sín fiskimið sem önnur skip eða lönd fá ekki að fara inn á.

Þetta er ekki bara svona svart á hvítu eins og múgsefjunin sem hefur átt sér stað gefur til kynna.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:13 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík

Hárrétt. Það er ekki eins og ESB þjóðirnar hafi verið að veiða hérna áður og eigi einhverja veiðisögu í okkar fiskimiðum.

Þetta er aðeins öðruvísi við meginlandið þar sem allir eru að veiða úr sömu stofnunum og hver ofan í öðrum, þá verða þeir að deila þessu á milli sín.

Það að þeir hafi veitt Portúgölum undanþágu sýnir bara í hversu sterkri samningastöðu við erum (sem fer þó versnandi) varðandi fiskimiðin okkar, verandi ein úti á ballar hafi.

_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:18 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
gstuning wrote:
Ég veit það ekki , enn persónulega finnst mér ekki sniðugt að við förum í EU eða tökum upp evruna,

ísland á enn margt sem EU og aðrar þjóðir hafa mikinn áhuga á, enginn ástæða að gefa þeim það.

Það er nákvæmlega málið. Það er heldur ekki útséð með niðursveifluna í EU en hún gæti orðið ansi svæsin. 25% húsnæðis í Bretlandi og fleiri löndum er t.d. yfirveðsett í dag og Bretland byggir innkomu t.d. að miklu leiti á þjónustutekjum sem auðvitað hverfa nánast í svona árferði.

Og að 300 þús manna þjóð geti ekki stjórnað sjálfri sér - plís :D Það má vel vera að mörgum hérna finnist þjóðin í heild arfa vitlaus. Það finnst mér hinsvegar ekki, við erum upp til hópa ágætlega upplýst. Vandinn liggur í stjórnskipaninni og þar þurfum við að bæta okkur svo eftirlit og viðurlög séu meiri við afglöpum og vinagreiðum.

Ætlar þú Stanky, virkilega, að halda því fram að Íslendingar séu eitthvað öðru vísi innrættir eða vitlausari en annað fólk? Anda djúpt og hugsa rökrétt.

Ég skil alveg rökin fyrir því að fara í EU. En ég held það séu skammtíma hagsmunir okkar og auðveld leið sem er ekki endilega sú besta til lengdar. Hugsið ykkur t.d., mynduð þið vilja vera í EU ef hér fyndist olía? Væri ekki betra að ráða sér alfarið sjálfur, meðal annars í hverju tekjunum yrði eitt? Hvað haldið þið að framlög Íslands, sem olíuframleiðanda t.d, yrðu miklu meiri en það sem við fáum tilbaka? Heimfærið þetta svo yfir á orkuna okkar og fiskimið. Bretar sjá ennþá fiskimiðin okkar í hyllingum og vilja komast í þau. Þorskur er varla fáanlegur í Fish & Chips - þeir leggja nú ýmislegt á sig til að halda í þjóðarréttinn.

EU er gríðarlega óskilvirkt batterí og þú getur ekki einu sinni kosið fólk beint til áhrifa þar. Þá eru ónefndir alvarlegir hlutir eins og hlunnindi bundin við starfstitla og fleira slíkt sem mér persónulega finnst afar ógeðfellt að sé lögbundið í EU.

Kostirnir eru auðvitað margir, en það gæti bara einmitt verið að akkúrat á þessum tímapunkti sé EU ekki svo spennandi.

Bara svo þið vitið það þá er ég að vinna að verkefni fyrir framkvæmdastjórn evrópusambandsins um þessar mundir - maður sér ýmislegt sem manni ekki líkar og það er rík tilhneyging til þess hjá þeim sem eru fylgjandi EU að breiða yfir og líta framhjá göllunum. Mín vinna lítur að því að stuðla að auknu gagnsæji EU en það er bara erfitt því að sjálfskoðunin er svo mikil, það má ekki segja neitt neikvætt um EU þrátt fyrir að af nógu sé að taka. Ég er semsagt að vinna að endurskoðun á þessum málefnum EU en má ekki gagnrýna því þá fáum við ekki "funding" - sniðugt :lol:

Að mínu mati, hreinsa upp skítinn, standa við okkar skuldbindingar, breyta lögum og stjórnarskrá þannig að eftirlit verði mun ríkara og þrígreining ríkisvaldsins skýr, kjósa upp á nýtt, halda krónunni og sjálfstæðinu. Mín vegna má svo sem alveg droppa krónunni - en það mun þurrka út allar okkar eignir því það mun engin vilja kaupa af okkur krónur. Við þyrftum því að byrja að safna upp á nýtt, frá núlli en ef menn vilja það þá má alveg fara út í þann pakka.

Einnig mætti hugsa sér að halda krónunni en binda hana við eitthvað fast verðmæti (t.d. eins og gert var fyrir nokkrum áratugum með gull). Þannig væri að miklu leit komist hjá þessum þennsluáhrifum.

http://www.itulip.com/greenspangold.htm

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Last edited by bebecar on Thu 13. Nov 2008 12:59, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:21 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
bebecar wrote:
Ætlar þú Stanky, virkilega, að halda því fram að Íslendingar séu eitthvað öðru vísi innrættir eða vitlausari en annað fólk? Anda djúpt og hugsa rökrétt.

Ég sagði hvergi að Íslendingar séu illa innrættir eða vitlausir.

Því minni þjóð - því meiri hætta á spillingu - þú meira að segja hlýtur að vita þetta.....

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Bla bla bla bla, þið talið bara um fiskinn, þið gleymið alveg landbúnaðinum sem væri snöggur að fara á hausinn ef markaðurinn yrði floodaður af Evrópskum mjólkurvörum.

_________________
Enginn BMW

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:37 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Stanky wrote:
bebecar wrote:
Ætlar þú Stanky, virkilega, að halda því fram að Íslendingar séu eitthvað öðru vísi innrættir eða vitlausari en annað fólk? Anda djúpt og hugsa rökrétt.

Ég sagði hvergi að Íslendingar séu illa innrættir eða vitlausir.

Því minni þjóð - því meiri hætta á spillingu - þú meira að segja hlýtur að vita þetta.....

Þú sagðir að Íslendingar gætu ekki stjórnað sér sjálfir - ég lagði reyndar út frá því að það hefði eitthvað með innræti eða gáfur að gera.

En hvað hefur þú eiginlega fyrir þér í þessu að því minni sem þjóðin er því meiri sé hættan á spillingu?

Ég ítreka bara, það sem ræður spillingunni er uppbygging stjórnkerfisins, ekki hver margir búa í landinu.

http://www.transparency.org/news_room/faq/corruption_faq#faqcorr6

Quote:
It is well-established checks and controls that make the difference in proportion. People are as corrupt as the system allows them to be. It is where temptation meets permissiveness that corruption takes root on a wide scale.

Þetta gæti hjálpað - t.d. er Bretland, eða var einhvern tímann, talið spilltasta þróaða landið og ekki er það lítið land eða lítil þjóð.

Ég veit ekki til þess að Færeyingar séu extra spilltir heldur.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Last edited by bebecar on Thu 13. Nov 2008 11:39, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:37 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Kristjan wrote:
Bla bla bla bla, þið talið bara um fiskinn, þið gleymið alveg landbúnaðinum sem væri snöggur að fara á hausinn ef markaðurinn yrði floodaður af Evrópskum mjólkurvörum.

Segðu mér nú eitt.

Ég ber alveg ágætis virðingu fyrir landbúnaði - mér finnst t.d. kjöt miklu betra hér en annarstaðar.

En afhverju má ekki landbúnaður fara á hausinn ef hann er ekki samkeppnishæfur?

Afhverju þarf alltaf að VERNDA ákveðna aðila?

Ég sé þetta fyrir mér í venjulegu fyrirtæki.... "neineineinei,,, eruði brjálaðir... það má ekki vera neinn annar í því að selja auglýsngar.... þá fer "Palli Augl" á hausinn maður.... eruði brjáááál"

bara pæling....

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:42 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Kristjan wrote:
Bla bla bla bla, þið talið bara um fiskinn, þið gleymið alveg landbúnaðinum sem væri snöggur að fara á hausinn ef markaðurinn yrði floodaður af Evrópskum mjólkurvörum.

Ég held reyndar að landbúnaðurinn myndi njóta mjög góðs af EU samkeppnislega séð. Arla hér t.d. er eitt af stærstu fyrirtækjum í heimi á sínu sviði.

Hinsvegar er CAP (Common Agricultural Policy) EU eitt af stærstu vandamálunum í EU. Pólverjar hefðu t.d. átt að fá mestu styrkina sem stærsta landbúnaðar landið en Frakkland fær ennþá mest - Pólland fékk semsagt ekki að komast inn í EU á janfréttis grundvelli vegna þess að hagsmunir Frakklands fengu að ráða.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:42 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
bebecar wrote:
Stanky wrote:
bebecar wrote:
Ætlar þú Stanky, virkilega, að halda því fram að Íslendingar séu eitthvað öðru vísi innrættir eða vitlausari en annað fólk? Anda djúpt og hugsa rökrétt.

Ég sagði hvergi að Íslendingar séu illa innrættir eða vitlausir.

Því minni þjóð - því meiri hætta á spillingu - þú meira að segja hlýtur að vita þetta.....

Þú sagðir að Íslendingar gætu ekki stjórnað sér sjálfir - ég lagði reyndar út frá því að það hefði eitthvað með innræti eða gáfur að gera.

En hvað hefur þú eiginlega fyrir þér í þessu að því minni sem þjóðin er því meiri sé hættan á spillingu?

Ég ítreka bara, það sem ræður spillingunni er uppbygging stjórnkerfisins, ekki hver margir búa í landinu.

http://www.transparency.org/news_room/faq/corruption_faq#faqcorr6

Quote:
It is well-established checks and controls that make the difference in proportion. People are as corrupt as the system allows them to be. It is where temptation meets permissiveness that corruption takes root on a wide scale.

Þetta gæti hjálpað - t.d. er Bretland, eða var einhvern tímann, talið spilltasta þróaða landið og ekki er það lítið land eða lítil þjóð.

Ég veit ekki til þess að Færeyingar séu extra spilltir heldur.

Ertu s.s. að segja mér það að Ísland sé ekkert spillt?

Ertu að segja það að kvótinn hafi ekki verið gefinn til ákveðinna aðila?

Ertu að segja mér það að bankarnir hafi verið seldir á útboði og ekki "gefinn" til ákveðinna aðila?

Ertu að segja mér það að öll þau útboð sem ríkið hefur haldið hafa farið til ódýrasta aðilans óháð samböndum?

Ertu að segja mér það að Árni Jónsen stal ekki frá leikhúsinu?

Ertu að segja mér það að þetta sé bara allt kjaftæði?

Þú getur ekki komið með haldbær rök fyrir því að þetta sé ekki MEEEGA spillt land.

Ég sagði ALDREI að það væri ekki spilling annarstaðar í heiminum, enda væri það alveg... heimskulegt.

En fólk kemst upp með minna ef samfélagið er stærra, því þegar samfélagið er stærra hefur það meiri völd og getur steypt fólki af stóli.

Spilling verður alltaf og hefur alltaf verið - en það verður að minima hana alveg eins og hægt er. Og það hefur tekist í mörgum löndum.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Er alveg sammala ther tharna Haukur...

_________________
E53 X5 4.4i

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Það er bara ekkert minni spilling innan stórþjóða en á Íslandi, það standa bara stærri aðilar með meiri ítök á alþjóðavetvangi á bakvið.

Aðal tekjulind Íslands hefur og mun vera áfram fiskveiði og með réttri markaðssetningu í t.d. Bandaríkjunum gætum við margfaldað tekjur okkar af útflutingi fisks. Fólk í Bandaríkjunum heldur ekki vatni yfir ógeðslegum illa lyktandi fiski og borgar stórfé fyrir.

Ég borðaði með Kana á Fishmarket fyrir nokkrum mánuðum sem borðaði mikið á dýrum fiskveitingastöðum í USA og hann ætlaði ekki einu sinni að trúa að hann væri að borða fisk. Spurði hvort fiskur ætti virkilega að smakkast svona?

EU er engin mamma sem kemur og segir að allt fari vel og flæmir alla vondu kallana í burtu. Þetta er stórt battery sem hugsar um hag heildarinnar og hikar ekki við að setja einhverri smáþjóð lengst út í rassgat afarkosti. Alveg eins og maður á aldrei að fara í matarbúð svangur á maður ekki að semja um svona stór mál með allt í buxunum.

Ég hef sjálfur verið að vinna, og er reyndar að vinna núna, verkefni með stofnunum innan EU og bullið sem kemur þaðan er stundum alveg með ólíkindum. Þar virðist ganga að vera nógu svakalega sprenglærður með stór próf og tala alla anstöðu í kaf með skammstöfunum og fræðimáli sem á sér enga samtengingu í raunveruleikanum. Það vantar oft alla tengingu við raunveruleikan og menn virðast ekki átta sig á muninn á theory og practise.

Sjáiði fyrir ykkur einhvern sprenglærðan fiskifræðing frá Austurríki sem hefur aldrei farið til sjós leggja til að banna t.d. veiði á ýsu því sjórinn sé að fyllast af drullu sem ýsan á að borða, eða þegar banna átti alla bandaríska bíla afþví að bremsuljós að aftan máttu ekki blikka og þannig einnig þjóna tilgangi stefnuljóss. Þetta er svona dæmigert bull sem kemur frá þessum vitleysingum.

Svo afnemur EU öll tollalög afþví að það má ekki mismuna framleiðendum og allt fyllist af lanbúnaðarvörum sem setja íslenskan landbúnað á hausinn því hann getur ekki afkastað því sem stórbú í Evrópu afkasta/hagræða.

Það sem þarf að gera hér er bara að taka vel til, fá fólk sem virkilega hefur vit á málunum og getur tekið erfiðar ákvarðanir til að stýra landinu næstu 2-5árin. Gætum fengið einhverja sérfræðinga erlendis frá til að vera ráðgjafa en alls ekki að láta þá ráða. Okkar litla hagkerfi er ekki eins og hefðbundin hagkerfi og því þarf fólk með víðáttumikla þekkingu til að stýra, ekki bara bókvit...

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:49 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Þú þarft nú aðeins að prófa að anda í gegnum nefið Stanky.

Ég sagði að fólkið í okkar landi væri ekkert öðruvísi en annarsstaðar. Spilling ræðst af því stjórnkerfi sem við búum til fyrst og fremst. Það þarf að laga stjórnkerfið og lagaramman. Þannig losnar þú við spillingu. Þú losnar ekki við hana með því að færa stjórnina yfir í annað batterí sem er líka spillt.

Ég held ég hafi meira að segja sagt þetta nokkrum sinnum.

Og ég held ég hafi heldur ekki sagt að á Íslandi væri engin spilling.

Þú ert komin í algjör rök þrot með þetta.

Þú varst rétt áðan að segja að Íslendingar gætu ekki ráðið sér sjálfir því þjóðfélagið væri svo spillt vegna þess að það væri svo lítið.

Ég er bara að spyrja hvernig þú kemst að þeirri niðurstöðu. Ég, og t.d. Transparency International, viljum meina að það sé stjórnskipanin sem ráði þessu. Fólk er flest eins innst inni.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Því miður strákar
á íslandi er líka hægt að koma mönnum frá völdum með kosningum, rétt eins og í öllum öðrum löndum og samfélögum.

Blind trú á stjórnmálaflokka hérna á íslandi hefur mikið að segja um hvernig hlutir hafa verið gerðir, og því detta menn hreinlega ekki frá völdum

menn sjá klíkuskapinn sem er í gangi og reyna koma sér inn til að fá skerf (networking).
Margir einstaklingar fara í stjórnmálaflokka til þess eins að komast inn í klíkuna, jafnvel þótt að þeim sé illa við stefnuna, valdið er þarna , afhverju ekki að nota það sér til hagnaðar?

Ég er ekki bara að tala um hæðstu menn heldur líka einar frænda.
Það er þetta attitude sem heldur utan um atvinnu stjórnmálamenn.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 11:59 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
bebecar wrote:
Þú þarft nú aðeins að prófa að anda í gegnum nefið Stanky.

Ég sagði að fólkið í okkar landi væri ekkert öðruvísi en annarsstaðar. Spilling ræðst af því stjórnkerfi sem við búum til fyrst og fremst. Það þarf að laga stjórnkerfið og lagaramman. Þannig losnar þú við spillingu. Þú losnar ekki við hana með því að færa stjórnina yfir í annað batterí sem er líka spillt.

Ég held ég hafi meira að segja sagt þetta nokkrum sinnum.

Og ég held ég hafi heldur ekki sagt að á Íslandi væri engin spilling.

Þú ert komin í algjör rök þrot með þetta.

Þú varst rétt áðan að segja að Íslendingar gætu ekki ráðið sér sjálfir því þjóðfélagið væri svo spillt vegna þess að það væri svo lítið.

Ég er bara að spyrja hvernig þú kemst að þeirri niðurstöðu. Ég, og t.d. Transparency International, viljum meina að það sé stjórnskipanin sem ráði þessu. Fólk er flest eins innst inni.

Ég er alveg poll rólegur, ég skrifa bara svona, eins og ég sé mega æstur :).

Það er nú eins gott að það séu ekki allir sammála, því annars væri þessi þráður ekki til.

Ég vill nú ekki meina að ég sé kominn í rök þrot.

Mín skoðun er sú að stjórnmál á Íslandi eru komin út í algjört bull - stjórnmálin snúast um að aðhyllast einhverjum fáum útvöldum aðilum og leyfa þeim hvað eina. Og þetta er kannski ekkert sem ég er að búa til - ég þekki nú mann nokkuð vel sem var vel innvínklaður í stjórnmál á Íslandi í langan tíma. (Alveg frá því að Davíð var borgarstjóri og þar til dagsins í dag).

Ég er alveg sammála Gunna (gst) að ganga ekki inn í EU á morgun, enda tekur þetta lengri tíma en bara að segja "heyyyy, you fish? we have fish... we come and get euro tomorrow". Þetta mun eflaust taka langan tíma, en að sjálfsögðu á að byrja að skoða málið og kryfja þetta til mergjar.

Einnig talaði ég hvergi um það að EU væri einhver mamma sem kemur og rekur vondakallinn í burtu með því að kveikja á náttljósi.

Hinsvegar, þegar við göngum inn í EU eru menn sem hafa augastað á því sem við erum að gera hérna og segja svo við okkur "Abbababababababababababa,,, þetta er ólöglegt Mr. Hannes Smárason, Geir H. Haarde, Jón Asgeir, Pálmi Haraldsson etc etc etc BJÖRGÓFLUR THOR og pabbi hans".

Lögunum þarf að framfylgja og fara eftir, ef þeir brjóta af sér eins drastískt og þeir hafa verið að gera, þá fara þeir fyrir dómstóla.

Hinsvegar hafa nokkrir pólítíkusar farið fyrir Hæstaréti og verið dæmdir, en ennþá eru þeir í stjórn.... blessaðir mennirnir... því þeir verða að hafa eitthvað að gera....

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Nov 2008 12:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Hverjum var kvótinn gefinn ef ég má spyrja?

Ég held að þið vitið bara ekkert hvernig úthlutun veiðiheimilda gengur fyrir sig og hvernin hún hefur farið fram. Kvótanum var upphaflega úthlutað eftir veiði tiltekinnni báta/skipa árana áður en kvótakerfið var sett á.

Síðan hafa ýmsir keypt til sín meiri aflahemildir og aðrir selt (og borgað af þeirri sölu skatta líkt og um tekjur væri að ræða) til að ýmist hagræða í rekstri eða hreinlega hætta útgerð. Á hverju ári eru svo úthlutað þúsundum tonna til þeirra sveitafélaga sem hafa orðið verst úti vegna þeirra aflaheimilda sem hafa hafa farið úr sveitafélaginu.

Einnig var fyrir stofnað sérstakt krókakerfi svo minni báta sem gera út á línu og handfæri hefðu meiri möguleika á að pluma sig í smærri byggðarlögum með því að taka aflaheimildir á þeim sem voru fyrir í útgerð. Síðan varð að setja þak á það því þeir fóru langt framúr því sem þeim var ætlað að veiða enda gersamlega ógerlegt að takmarka veiði báta með að takmarka veiðina með dögum.

Það var engum gefið neitt og menn borga ansi háar upphæðir fyrir þær aflahlutdeildir sem þeir fá úthlutað á hverju ári og borga alveg sömu skatta af sínum tekjum og aðrir.

Er þá ekki alveg eins verið að gefa landeigendum þær jarðir sem þeir búa á? Eigum við ekki bara að taka þær afþeim og úthluta aftur bara, skítt með það þó að Jói bóndi eigi hundruðir kinda, húsnæði og traktora eða sé með fjárkvaðir sem byggjast á þessum rekstri.

p.s. Ekki ritað í neinu reiðiskasti og alltaf gaman að rökræða við fólk sem getur svarað málefnalega og án skítkasts :)

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 91, 92, 93, 94, 95, 96, 97 ... 246  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 65 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group