Ekki líst manni á þetta ef satt er:
http://www.visir.is/article/20081106/VI ... /861314876

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
gunnar wrote:Þetta Icesave mál Landsbankans ætlar að verða okkur ansi dýrt sýnist mér....


Lilja wrote:Töfin á IMF láninu er að verða frekar grunsamleg. Mér heyrist það ljóst á umræðunni að verið sé að þvinga okkur til að greiða fyrir Icesave-ævintýrið.
Þetta eru góðar vangaveltur Bebecar, en ég er ekki sannfærð um að verið sé að pína okkur sérstaklega inn í ESB. Íslendingar hljóta að sjá í gegnum það ef okkur verða sett einhver "dularfull" skilyrði í aðildaviðræðum. Það er enginn Íslendingur sáttur við að greiða fyrir Icesave og ég trúi því ekki að við sættum okkur neitt frekar við að "missa" auðlindirnar í ESB.
Ég stóð í þeirri meiningu að Ísland gæti samið sérstaklega um kvótann og orkuna í aðildaviðræðum. Það lærði ég amk hjá mínum gallharða ESB-sinnaða kennara í HÍ![]()
Ég er amk hlynnt því að teknar verði upp aðildaviðræður við Evrópusambandið. Ég geri upp hug minn varðandi aðild þegar inngönguskilyrðin eru komin á blað (og verður þá vonandi ekki haldið leyndum fyrir þjóðinni eins og í sumum málum).

bebecar wrote:Við núverandi kringumstæður verða engar aðildarviðræður. Fyrst þarf að koma öllu í lag. En í þessu liggur einmitt munurinn á aðildarskilyrðunum.


Lilja wrote:bebecar wrote:Við núverandi kringumstæður verða engar aðildarviðræður. Fyrst þarf að koma öllu í lag. En í þessu liggur einmitt munurinn á aðildarskilyrðunum.
Ég held við komum engu í lag á næstunni
Lilja wrote:En fréttirnar um að Ísland fengi flýtiaðild að ESB .. ætluðu þeir þá bara að kippa okkur inn án aðildaviðræðna? Eða segja bara "þið eruð glötuð, afsalið ykkur öllu og þá megiði koma inn?"
bebecar wrote:Nei nei. En það vantar fullt í þetta. T.d. eru önnur lönd á undan okkur í röðinni. Við þurfum samþykkji annarra aðildarríkja (sem við munum ekki fá á meðan Icesave er óleyst) þannig að aðildarviðræður myndu alltaf verða á forsendum ESB þar sem við höfum engan styrk lengur.



Users browsing this forum: Google [Bot] and 47 guests