Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby bimmer » Thu 06. Nov 2008 09:06

Ekki líst manni á þetta ef satt er:
http://www.visir.is/article/20081106/VI ... /861314876
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby gunnar » Thu 06. Nov 2008 09:11

Þetta Icesave mál Landsbankans ætlar að verða okkur ansi dýrt sýnist mér.... :shock:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Thu 06. Nov 2008 09:16

gunnar wrote:Þetta Icesave mál Landsbankans ætlar að verða okkur ansi dýrt sýnist mér.... :shock:


persónulega líst mér ekkert á IMF eftir að ég sá báðar Zeitgeist myndirnar

http://zeitgeistmovie.com/

Mæli með að sjá amk Addendum
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby bebecar » Thu 06. Nov 2008 09:34

Nei, þetta lítur ekki vel út en á eftir að verða mjög forvitnilegt. Nú er búið að veita Úkraínu lán á undan Íslandi þó Ísland hafi átt að taka fyrir fyrst.

Nú stendur valið líklega á milli tveggja til þriggja kosta sem líklega eru allir nokkuð slæmir.

Fyrst og fremst þá er líklegt að eina leiðin til að losna undan Icesave sé sú að greiða til jafns úr ábyrgðarsjóði innistæða til breskra, hollenskra og íslenskra reikningseigenda. Það er í sjálfu sér mjög eðlileg krafa en kæmi sér afar illa fyrir þá Íslendinga sem minnst bera ábyrgð á ástandinu - fólkið sem hefur sparað undanfarin ár, aldraðir foreldrar og annað skynsamt fólk sem man tímana tvenna. Þetta myndi þýða að ekki verður staðið við innistæðutryggingar á Íslandi, nema upp að því marki sem hægt er að greiða jafnt út til allra sem eiga innistæður (innanlands sem utanlands). Um er að ræða líklega milljón manns og það ætti að vera hægt að reikna út hvað hver fengi svona sirka. Ef þetta er raunin þá liggur beint við að gera upptækar allar eignir þeirra sem komu að þessum fyrirtækjum sem nú eru gjaldþrota því þar með væri eignaupptakan orðin almenn og yrði að ganga jafnt yfir alla. Sú upptaka yrði svo notuð til að auka útborganir á innistæðum eða að innistæður myndu bara greiðast að hluta (eins og lög kveða á um) en upptakan yrði gefin út sem hlutabréf í uppteknu eignunum í réttu hlutfalli við tapaðar eignir íslendinga eingöngu (þetta ætti að vera fært en þessi leið var farinn einhversstaðar - man ekki hvar).

Í öðru lagi gæti verið stærra spil í gangi þar sem Ísland yrði í rauninni þvingað í ESB án þess að ráða miklu um forsendurnar. ESB á talsverðra hagsmuna að gæta af því að Ísland slíti samstöðu með Noregi og EFTA og fari inn í ESB. Auðlindir landsins myndu verða opnar fyrir erlendri fjárfestingu og fyrir þá sem ekki vita það þá er nefnilega frjáls orkusala innan ESB og því mikill fengur að komast í íslenskar og umhverfisvænar virkjanir því orkuna þaðan er hægt að selja á hærra verði til þeirra sem vilja kaupa græna orku, en henni er svo dreift með sameiginlegu dreifikerfi innan ESB. Þá er fiskurinn ónefndur.

Í þriðja lagi þá getur verið um að ræða knésetningu landsins annarsvegar í gegnum skuldsetningu og hinsvegar með takmarkaðri líflínu gjaldeyris sem í boði er fyrir ákveðnar lausnir eða samkomulag (t.d. með veði í virkjunum eða fiskistofnum).

Þetta eru auðvitað bara vangaveltur hjá mér, en byggir á MSc námi mínu í alþjóðasamskiptum og vinnu á þessu sviði sem ég er núna í. Maður hefur séð svipaða taktík í gegnum tíðina sem beitt hefur verið á ólíklegustu stöðum í heiminum. Markmiðið er alltaf það sama, ná yfirtökum í löndunum eða yfirráðum yfir auðlindum.

Lausnin að mínu mati er sú að borga jafnt fyrir allar innistæður, sama hve hart það er en samfara því yrði að vera almenn eignaupptaka kvóta, fasteigna, lausafé og erlendra innistæða allra þeirra sem komu nálægt þessum fyrirtækjum sem stofnuðu til skulda sem eru íþyngjandi fyrir þjóðarbúið. Slíkt er eiginlega bara afnám eignaréttar í raun og þýðir algjört hrun þjóðfélagsins en skapar grunn til að vinna á til framtíðar þar sem restin af skuldum landsins yrði að afskrifa. Þetta væri gjaldþrot þjóðarinnar og ansi hart þegar það virðist orðin skársti kosturinn.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Lilja » Thu 06. Nov 2008 10:02

Töfin á IMF láninu er að verða frekar grunsamleg. Mér heyrist það ljóst á umræðunni að verið sé að þvinga okkur til að greiða fyrir Icesave-ævintýrið.

Þetta eru góðar vangaveltur Bebecar, en ég er ekki sannfærð um að verið sé að pína okkur sérstaklega inn í ESB. Íslendingar hljóta að sjá í gegnum það ef okkur verða sett einhver "dularfull" skilyrði í aðildaviðræðum. Það er enginn Íslendingur sáttur við að greiða fyrir Icesave og ég trúi því ekki að við sættum okkur neitt frekar við að "missa" auðlindirnar í ESB.

Ég stóð í þeirri meiningu að Ísland gæti samið sérstaklega um kvótann og orkuna í aðildaviðræðum. Það lærði ég amk hjá mínum gallharða ESB-sinnaða kennara í HÍ :lol:

Ég er amk hlynnt því að teknar verði upp aðildaviðræður við Evrópusambandið. Ég geri upp hug minn varðandi aðild þegar inngönguskilyrðin eru komin á blað (og verður þá vonandi ekki haldið leyndum fyrir þjóðinni eins og í sumum málum).
Skáeigandi e30
Image
User avatar
Lilja
Kassabílstjóri
 
Posts: 221
Joined: Sun 12. Aug 2007 21:22
Location: Reykjavík beibí

Postby bebecar » Thu 06. Nov 2008 10:04

Lilja wrote:Töfin á IMF láninu er að verða frekar grunsamleg. Mér heyrist það ljóst á umræðunni að verið sé að þvinga okkur til að greiða fyrir Icesave-ævintýrið.

Þetta eru góðar vangaveltur Bebecar, en ég er ekki sannfærð um að verið sé að pína okkur sérstaklega inn í ESB. Íslendingar hljóta að sjá í gegnum það ef okkur verða sett einhver "dularfull" skilyrði í aðildaviðræðum. Það er enginn Íslendingur sáttur við að greiða fyrir Icesave og ég trúi því ekki að við sættum okkur neitt frekar við að "missa" auðlindirnar í ESB.

Ég stóð í þeirri meiningu að Ísland gæti samið sérstaklega um kvótann og orkuna í aðildaviðræðum. Það lærði ég amk hjá mínum gallharða ESB-sinnaða kennara í HÍ :lol:

Ég er amk hlynnt því að teknar verði upp aðildaviðræður við Evrópusambandið. Ég geri upp hug minn varðandi aðild þegar inngönguskilyrðin eru komin á blað (og verður þá vonandi ekki haldið leyndum fyrir þjóðinni eins og í sumum málum).


Við núverandi kringumstæður verða engar aðildarviðræður. Fyrst þarf að koma öllu í lag. En í þessu liggur einmitt munurinn á aðildarskilyrðunum.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby gunnar » Thu 06. Nov 2008 10:06

Það var umræða á Eyjunni að seinahátturinn á þessu tengdist nú líka eitthvað andstöðu IMF við Seðlabankastjórn og vildi fá hana í burtu.

Ætli rökréttasta útskýringin sé nú hins vegar Icesave málið.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Lilja » Thu 06. Nov 2008 10:09

bebecar wrote:Við núverandi kringumstæður verða engar aðildarviðræður. Fyrst þarf að koma öllu í lag. En í þessu liggur einmitt munurinn á aðildarskilyrðunum.

Ég held við komum engu í lag á næstunni :cry:
Skáeigandi e30
Image
User avatar
Lilja
Kassabílstjóri
 
Posts: 221
Joined: Sun 12. Aug 2007 21:22
Location: Reykjavík beibí

Postby bebecar » Thu 06. Nov 2008 10:26

Lilja wrote:
bebecar wrote:Við núverandi kringumstæður verða engar aðildarviðræður. Fyrst þarf að koma öllu í lag. En í þessu liggur einmitt munurinn á aðildarskilyrðunum.

Ég held við komum engu í lag á næstunni :cry:


Þá getum við heldur ekki samið um neitt í aðildarviðræðum :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Lilja » Thu 06. Nov 2008 10:37

En fréttirnar um að Ísland fengi flýtiaðild að ESB .. ætluðu þeir þá bara að kippa okkur inn án aðildaviðræðna? Eða segja bara "þið eruð glötuð, afsalið ykkur öllu og þá megiði koma inn?"
Skáeigandi e30
Image
User avatar
Lilja
Kassabílstjóri
 
Posts: 221
Joined: Sun 12. Aug 2007 21:22
Location: Reykjavík beibí

Postby bebecar » Thu 06. Nov 2008 10:39

Lilja wrote:En fréttirnar um að Ísland fengi flýtiaðild að ESB .. ætluðu þeir þá bara að kippa okkur inn án aðildaviðræðna? Eða segja bara "þið eruð glötuð, afsalið ykkur öllu og þá megiði koma inn?"


Nei nei. En það vantar fullt í þetta. T.d. eru önnur lönd á undan okkur í röðinni. Við þurfum samþykkji annarra aðildarríkja (sem við munum ekki fá á meðan Icesave er óleyst) þannig að aðildarviðræður myndu alltaf verða á forsendum ESB þar sem við höfum engan styrk lengur.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Lilja » Thu 06. Nov 2008 10:59

bebecar wrote:Nei nei. En það vantar fullt í þetta. T.d. eru önnur lönd á undan okkur í röðinni. Við þurfum samþykkji annarra aðildarríkja (sem við munum ekki fá á meðan Icesave er óleyst) þannig að aðildarviðræður myndu alltaf verða á forsendum ESB þar sem við höfum engan styrk lengur.

Það er nú samt smá þversögn í þessu. Ef ESB á hagsmuna að gæta með því að við slítum samstöðu með Noregi og EFTA og vilji komast yfir auðlindir okkar osfrv osfrv .. láta þeir þá nokkuð Icesave stoppa sig?

Æji ég veit ekki, eru þetta ekki allt bara getgátur þar til við sækjum um? :lol:

Mér finnst við svo innilega úti í horni með þetta ástand. Allir kostir eru slæmir og vinum okkar fer fækkandi. Hvernig endar þetta?
Skáeigandi e30
Image
User avatar
Lilja
Kassabílstjóri
 
Posts: 221
Joined: Sun 12. Aug 2007 21:22
Location: Reykjavík beibí

Postby gstuning » Thu 06. Nov 2008 11:07

Invar þú nefnir ekki aukið samstarf með Noregi,
sem er augljóslega mál ef það er til hagsmuna Noregs að við séum ekki í ESB

Það er samt meira painið hvað menn eru að koma seint með fregnir frá ríkinu eins og er.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Einarsss » Thu 06. Nov 2008 11:59

IMF umsóknar afgreiðslunni frestað fram á mánudag

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... i_frestad/
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Einarsss » Thu 06. Nov 2008 12:11

skemmtilegar head lines á mbl núna


"IMF-beiðni frestað"

"Bretar lána 800 milljónir punda vegna Icesave"

"Spá 40% lækkun íbúðaverðs"

"Spá 10% atvinnuleysi"
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 36 guests