bebecar wrote:Maður skilur vel að fólk sé reitt og það getur vel verið að þetta endi með ósköpum. En kommon, fólk verður að líta sér nær. Mjög margir hafa verið í vinnu hjá akkúrat þeim sem stofnuðu til skuldanna - bara fyndið að ætla að kenna eingöngu ríkisstjórninni og Davíð um þetta.
Sökudólgarnir eru að mínu mati fyrst og fremst þeir sem stofnuðu til þeirra erlendu skulda sem þjóðarbúið getur núna ekki borgað af (útrásin og margir þeirra sem lifðu um efni fram)!
Svo ríkisstjórn, seðlabanki og FME fyrir að leyfa þessu að viðgangast og fyrir nánast algjöra meðvirkni.
Mikið af fólkinu í landinu fyrir að kóa með þessu öllu saman.
Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin (sem er búin að halda hlífiskyldi yfir útrásinni á meðan hún var gagnrýnd og rannsökuð af ríkinu) og ÓRG. Og ég er örugglega að gleyma einhverjum.
Svo vil ég nú bara minna á að það er alþjóðlega kreppa í gangi og það er ekkert útséð með það að fleiri þjóðir lendi ekki í viðlíka vandræðum og við. Það tekur yfirleitt lengri tíma í stærri hagkerfum.
Rússland, Ungverjaland, Úkraína og fleiri lönd munu þurfa aðstoð.
Þegar fólk hættir í afneitun á sinni ábyrgð á ástandinu og byrjar loksins að heimta að þeir sem stofnuðu til skuldanna axli sína ábyrgð þá fyrst eigum við sem sjálfstæð þjóð einhverja von. Eins og nú er mótmælt er þetta bara sami grauturinn í annarri skál og það mun ekki breyta neinu að koma eingöngu ríkisstjórninni frá.
Já,,,,,, en geta lánað okkur SMÁ KLINK

