http://www.visir.is/article/20081103/VIDSKIPTI06/834314478/-1
Quote:
Ingvar Vilhjálmsson og Frosti Reyr Rúnarsson, sem starfa báðir hjá Kaupþingi, stofnuðu báðir einkahlutafélag í sömu viku og bankinn var þjóðnýttur. Ingvar færði hlut sinn í bankanum í einkahlutafélagið en Frosti Reyr ekki að sögn upplýsingafulltrúa bankans.
Ingvar Vilhjálmsson átti rúmlega hálft prósent í Kaupþingi sem var skráð á hans eigið nafn. Í vikunni sem Kaupþing var þjóðnýttur hafði Ingvar Vilhjálmsson hins vegar breyst í Ingvar Vilhjálmsson ehf á hlutahafalista bankans. Um var að ræða hlut sem metinn var á rúmlega 2,5 milljarða fyrir þjóðnýtingu. Með þessu minnkaði hann eigin ábyrgð þegar hluturinn varð að engu við þjóðnýtingu.
Frosti Reyr Rúnarsson stofnaði einkahlutafélagið FRR ehf í sömu viku og Kaupþing var þjóðnýttur. Að sögn Benedikts Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa Kaupþings, var enginn hlutur í FRR ehf þegar bankinn var þjóðnýttur.
http://omarr.blog.is/blog/omar/entry/697228/Quote:
Skuldir hreinsaðar við yfirmenn bankanna?
Í dag fékk ég póst þar sem er fullyrt að FME og skilanefndir bankanna hafi ákveðið að núlla út skuldir fjölmargra yfirmanna bankanna. Skuldirnar voru til komnar vegna lána til hlutabréfakaupa viðkomandi. Ráðist er í aðgerðina til að koma í veg fyrir persónuleg gjaldþrot valinna einstaklinga.
Í þessum sama pósti er fullyrt að réttlætingin fyrir þessarri aðgerð sé sú, að verði þessi leið ekki farin, verði bankarnir óstarfhæfir, þar sem gjaldþrota einstaklingar mega ekki vinna í bönkum sem stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar (lög nr. 161 frá 20. desember 2002, 52. gr.).
http://eyjan.is/silfuregils/2008/11/02/bref-um-fjolmidla-sjodi-gjaldthrot-og-sidblindu/Quote:
Björgunaraðgerðir fyrir útvalda
Ég hef fylgst nokkuð með umræðunni um að verið sé að bjarga æðstu toppunum í bönkunum sem höfðu tekið lán fyrir hlutabréfakaupum og standa því mjög illa núna, eins og margir.
Einn stærsti hluthafinn í Kaupþing var maður að nafni Ingvar Vilhjálmsson sem var yfir markaðsviðskiptum á Íslandi. Nú bregður svo við að á lista yfir 20 stærstu hluthafa Kaupþings
http://m5.is/?gluggi=felag&felag=15&inn ... =hluthafar þar sem Ingvar var áður er nú komið félag sem heitir Ingvar Vilhjálmsson ehf., félagið er stofnað á þessu ári. Ætli það sé tenging þarna á milli, ætli verðlausu hlutirnir og lánin fari nú í þetta félag sem á svo að verða gjaldþrota en ekki upphaflegi eigandinn?
Það virðist sem sumum eigi að bjarga en öðrum ekki. Af hverju fer starfsemi skilanefnda bankanna fram fyrir luktum dyrum, hvað er verið að gera þar?
Mér er algjörlega farið að blöskra og það er orðið ljóst að ný ríkisstjórn verður að taka við völdum til að hreinsa andrúmsloftið strax.
Nú verður að fá á hreint hvort þetta sé rétt að það sé verið að afskrifa skuldir bankamanna vegna hlutabréfakaupa upp á milljarða.
Venjulegt fólk fær ekki einu sinni að frysta greiðslur af verðtryggðu lánunum sínum.
Spillingin er svo mikil hérna að maður gæti ælt. Ef við Íslendingar látum þetta viðgangast þá erum við ekkert nema duglausir aumingjar.