bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 21. Jun 2025 12:08

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 73, 74, 75, 76, 77, 78, 79 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Fri 31. Oct 2008 23:06 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Quote:
Hinir ábyrgu og hinir útvöldu

Ábyrgir menn

Ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu situr fund með fjármálaráðherra Bretlands.

Fundarefnið: Staða Landsbanka Íslands.

Sami ráðuneytisstjóri á hlutabréf í bankanum sem metin eru á annað hundrað milljónir króna.

Eftir fundinn selur hann bréfin.

Stuttu síðar fer bankinn á hausinn.

Hjón á sjötugsaldri tapa ævisparnaði sínum. Þau höfðu stefnt að þægilegu ævikvöldi. Í þeirra augum var hinn 103 ára Landsbanki Íslands traustari en gull. Þær upplýsingar sem þau bjuggu yfir gáfu þeim ekki tilefni til annars.

Ráðuneytisstjórinn situr sem fastast í starfi sínu og ráðherra sér ekki einu sinni tilefni til að tjá sig um málið.

Þeir ráða sjálfir sínum örlögum.
Útvaldir menn

Íslenskir bankar fara í útrás og selja íslenskum almenningi þátttökurétt í gleðinni í formi hlutabréfa.

Þeim sem ekki eiga sparifé til kaupanna er boðið lán.

Íslensku bankamennirnir fá góð laun og sérstök verðlaun fyrir vel unnin störf. Verðlaunin eru hlutabréf í bankanum. Bankinn lánar þeim líka fyrir bréfunum.

Bankinn er þjóðnýttur, íslenskur almenningur tapar hlutabréfunum sínum og sumir skulda enn bankanum fyrir kaupunum.

Bankamennirnir sleppa betur, þeir stofnuðu félög sem áttu bréfin og tóku lánin. Þau félög eiga ekkert lengur og verða gjaldþrota. Bankamennirnir starfa enn fyrir bankann og fá enn margföld mánaðarlaun meðalsmannsins.

Þeir eru hinir útvöldu starfsmenn íslenska ríkisins.


Tekið af http://gunnaraxel.blog.is/blog/gunnaraxel/entry/694525/.

Bara það að það sé grunur um að ráðuneytisstjórinn hafi selt bréf sín í Landsbankanum á grundvelli upplýsinga sem aðrir höfðu ekki aðgang að er nóg ástæða til þess að hann segi af sér. Og ef síðan sannast að hann hafi stundað ólögleg innherjaviðskipti á þessi maður einfaldlega að fara í steininn.
Í öðrum siðuðum löndum væri ekki sjens að þessi maður væri ennþá í starfi sínu. Það eru gerðar mun strangari kröfur annars staðar til ráðherra og starfsmanna ríkisins en hér á Íslandi. Bara sem dæmi þá þurfti ráðherra á norðurlöndunum (Svíþjóð eða Danmörk) að segja af sér því hann notaði greiðslukort ríkisins til að kaupa Toblerone handa sjálfum sér.
Hér á landi einfaldlega segja ráðamenn ekki af sér, þeir komast bókstaflega upp með allt.

_________________
BMW E34 525iA '95


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 31. Oct 2008 23:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
íslendingar , bestir í heimi.

Núna bestir í því að tapa.

http://m5.is/?gluggi=frett&id=63737

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 01. Nov 2008 00:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Posts: 6493
Location: Hrafnista
Úff það er rosalegt að lesa um allar uppsagnirnar hjá ykkur,Og ég sem var að fá launahækkun :o

_________________
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 01. Nov 2008 00:40 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Mon 10. Jul 2006 00:22
Posts: 26
bananarnir hans Íbba eru brillant
það getur hver sem er mótmælt hvar sem er án mikils kostnaðar
bara eina opinbera byggingu í hvaða sveitarfélagi sem er
alþingi-ráðuneyti-sýslumann-lögreglustöð-ráðhús-sveitarstjórnarskriftofu

einn banana(eða annan ávöxt þegar bananar eru uppseldir eða bannaðir) á tröppurnar á hverjum degi og skilaboðin sjást

þetta gefur svo móralskan stuðning til þeirra sem sitja heima og gera ekkert, bíða eftir að aðrir geri eitthvað

þú velur tímann og staðinn fyrir 50 kr bananann


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 12:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Image

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 15:10 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
http://visir.is/article/20081101/FRETTIR01/26519277&SearchID=73334853807818

Quote:
Skattar hækkuðu langmest á Íslandi

Íslendingar eru sú þjóð sem mátt hefur þola langmestar skattahækkanir af öllum þjóðum innan Efnahags- og framfarastofnuninnar, OECD, á síðasta áratug. Er nú svo komið að Ísland er komið á topp tíu listann yfir þau ríki sem þyngsta skattbyrði leggja á þegna sína.

Stjórnmálamenn á Alþingi eru nú farnir að tala um að skattahækkanir séu óhjákvæmilegar. Tölur sem OECD birti fyrir hálfum mánuði sýna hins vegar að landsmenn hafa allt frá árinu 1995 mátt þola verulega þyngingu skattbyrði, úr rétt liðlega þrjátíu prósentum af vergri landsframleiðslu og vel yfir fjörutíu prósent. Bráðabirgðatölur fyrir síðasta ár sýna að skatthlutfallið var þá komið í 41,4 prósent.

Efnahags- og framfarastofnunin birti einnig töflu sem sýnir hvernig skattbyrði breyttist í iðnríkjunum á einum áratug. Athygli vekur að eitt land, Ísland, sker sig algerlega úr, sem það ríki sem þyngdi skattbyrði á þegna sýna langmest af öllum iðnríkjum heims á nýjasta viðmiðunartímabili, 1995 til 2006. Ísland var eina landið með yfir tíu prósentustiga aukningu skatta. Tyrkland og Kórea komu næst með um sjö prósentastiga aukningu, en Spánn var í fjórða sæti með fjögurra prósentustiga aukningu. Meðaltal OECD var 1,2 prósentustiga aukning skatta og var skattahækkunin á Íslandi því meira en áttfalt meiri en meðaltalið.

Ísland klifraði á þessum áratug hratt upp listann yfir ríki með þyngstu skattbyrðina en þar tróna nú Danmörk og Svíþjóð á toppnum. Ísland er komið á topp tíu listann og er nú í níunda sæti yfir þau ríki sem leggja á þyngstu skattana.


Það er ekki nóg með að Sjálfstæðisflokkurinn beri ábyrgð á mestu efnahagsþrengingum lýðveldisins heldur hefur skattbyrði stóraukist í valdatíð þeirra.
Glæsileg frammistaða það.

Kannski ekki skrítið að erlendur hagfræðingur láti hafa þetta eftir sér:
Quote:
Robert Z. Aliber, professor emeritus við háskólann í Chicago, segir í grein í Morgunblaðinu í dag, að ríkisstjórn Íslands og seðlabanki séu engu hæfari sem stjórnendur nútíma hagkerfis en þau væru sem stjarnvísindamenn.

„Þau skildu ekki að uppsveifla íslenska hagkerfisins árin 2005 og 2006 byggðist á skuldasöfnun – lán voru tekin til þess að standa í skilum með önnur lán – og nú vita þau ekki hvernig unnt sé að ná jafnvægi aftur eftir að pappírsauðurinn er horfinn. Það er ólíklegt að nýir leiðtogar sem væru valdir af handahófi í símaskrá gætu valdið jafnmiklum efnahagslegum glundroða og núverandi stjórnvöld," segir Aliber.

Hann segir einnig, að ríkisstjórnin og seðlabankinn virðist ekki skilja af hverju Bandaríkin og önnur lönd hiki við að lána þeim peninga. Svarið sé einfalt þótt það hljómi ekki vel. Það beri enginn traust til núverandi ríkisstjórnar og seðlabanka; það treysti þeim enginn til þess að grípa til þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar séu til þess að unnt verði að endurgreiða slík lán.

Aliber segir að Seðlabanki Íslands ætti við þær aðstæður sem nú eru komnar upp að grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til þess að markaður með gjaldeyri verði virkur á nýjan leik. Íslendingar verði, eins og aðrar þjóðir, að læra að lifa ekki um efni fram.

Þá segir hann að dómstólar verði að skera úr um hvort ríkisstjórn Íslands sé ábyrg fyrir skuldum íslensku bankanna í breskum pundum vegna innlánsreikninga þeirra og dótturfélaga þeirra á Bretlandi.

Aliber hélt í maí sl. fyrirlestur í Háskóla Íslands, sem vakti talsverða athygli. Þar hélt hann því fram, að litlar líkur væru á því að íslensku bankarnir kæmust hjá því að verða fyrir áhlaupi. Jafnvel mætti ætla að hljóðlátt bankaáhlaup væri þegar hafið.


Glöggt er gests augað...

_________________
BMW E34 525iA '95


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 15:34 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Thu 05. Jan 2006 22:25
Posts: 1382
///MR HUNG wrote:
Úff það er rosalegt að lesa um allar uppsagnirnar hjá ykkur,Og ég sem var að fá launahækkun :o
Veitir þér nokkuð af henni?....nei ég bara spyr :lol:

_________________
Hilmar B Þráinsson S 822-8171


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 18:11 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 25. May 2005 22:09
Posts: 89
Hefði nokkur hérna neitt svakalega á móti því þó Valhöll myndi alveg óvart verða alelda og menn með flokkskírteini færu að finnast uppí hinum og þessum ljósastaurum?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 18:27 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Phoenix wrote:
Hefði nokkur hérna neitt svakalega á móti því þó Valhöll myndi alveg óvart verða alelda og menn með flokkskírteini færu að finnast uppí hinum og þessum ljósastaurum?


Þú ert nú meiri helvítis viðbjóðurinn!

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 18:36 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 25. May 2005 22:09
Posts: 89
Þetta var nú einföld já eða nei spurning en þú um það.

Og er minn þankagangur viðbjóðslegri enn innræti þeirra sem halda nú dauðahaldi í völdin og keppast við að sópa ósómanum undir teppið?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 18:55 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Phoenix wrote:
Þetta var nú einföld já eða nei spurning en þú um það.

Og er minn þankagangur viðbjóðslegri enn innræti þeirra sem halda nú dauðahaldi í völdin og keppast við að sópa ósómanum undir teppið?


Menn skulu nú bara anda rólega. Þetta snýst um peninga. Ég er skráður í flokkinn, óskar þú þess að að sjá mig hangandi úr ljósastaur?

Ég mun láta minn gamla flokk gjalda fyrir mistökin með atkvæði mínu í næstu kosningum og það verður mitt andóf. Mér finnst hinsvegar afar kjánalegt að lesa svona innslög. Gerir þú þér ekki grein fyrir því að við erum í þessum vandræðum vegna þess að þjóðarbúið skuldar of mikið? Veistu hverjir stofnuðu til þessara skulda? Það var ekki ríkisstjórnin. Það er hægt að kenna þeim um að hafa ekki hemil á þjóðinni en það var einmitt það sem hún var kosin til - að gefa þjóðinni lausari taum.

Þeir sem stofnuðu til þeirra skulda sem við súpum núna seiðið af, þeir bera höfuð ábyrgðina. Afhverju mótmælir engin þeim?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 19:01 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Phoenix wrote:
Þetta var nú einföld já eða nei spurning en þú um það.

Og er minn þankagangur viðbjóðslegri enn innræti þeirra sem halda nú dauðahaldi í völdin og keppast við að sópa ósómanum undir teppið?


Já og eigum við ekki bara að byggja nokkra gasklefa líka og fara með fallexi niður á torg.

:roll:

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 19:06 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 22. Feb 2003 15:22
Posts: 980
Location: Reykjavík
Góð hugmynd....fást nokkur störf fyrir vikið.

_________________
Sæmundur Eric.
Lancia Delta HF Integrale Evo I - Saab 900aero - Mazda 323 GLX.

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 19:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
jæja ........ :shock: :shock: :shock: :shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 02. Nov 2008 19:22 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Maður skilur vel að fólk sé reitt og það getur vel verið að þetta endi með ósköpum. En kommon, fólk verður að líta sér nær. Mjög margir hafa verið í vinnu hjá akkúrat þeim sem stofnuðu til skuldanna - bara fyndið að ætla að kenna eingöngu ríkisstjórninni og Davíð um þetta.

Sökudólgarnir eru að mínu mati fyrst og fremst þeir sem stofnuðu til þeirra erlendu skulda sem þjóðarbúið getur núna ekki borgað af (útrásin og margir þeirra sem lifðu um efni fram)!

Svo ríkisstjórn, seðlabanki og FME fyrir að leyfa þessu að viðgangast og fyrir nánast algjöra meðvirkni.

Mikið af fólkinu í landinu fyrir að kóa með þessu öllu saman.

Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin (sem er búin að halda hlífiskyldi yfir útrásinni á meðan hún var gagnrýnd og rannsökuð af ríkinu) og ÓRG. Og ég er örugglega að gleyma einhverjum.

Svo vil ég nú bara minna á að það er alþjóðlega kreppa í gangi og það er ekkert útséð með það að fleiri þjóðir lendi ekki í viðlíka vandræðum og við. Það tekur yfirleitt lengri tíma í stærri hagkerfum.

Rússland, Ungverjaland, Úkraína og fleiri lönd munu þurfa aðstoð.

Þegar fólk hættir í afneitun á sinni ábyrgð á ástandinu og byrjar loksins að heimta að þeir sem stofnuðu til skuldanna axli sína ábyrgð þá fyrst eigum við sem sjálfstæð þjóð einhverja von. Eins og nú er mótmælt er þetta bara sami grauturinn í annarri skál og það mun ekki breyta neinu að koma eingöngu ríkisstjórninni frá.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 73, 74, 75, 76, 77, 78, 79 ... 246  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 48 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group