bíllinn fer ekki í gang

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby Danni » Fri 31. Oct 2008 13:29

Sambandsleysi í bensíndælunni kannski? Ég lenti í því með 320 E36 sem ég átti einusinni. Hann drap stundum á sér og neitaði í gang, svo rauk hann í gang aðeins seinna.

Klóraði mér mikið í hausnum, var búinn að fara í gegnum alveg helling og skipta um bensíndæluna, svo fór hann aldrei í gang eftir það svo ég reif allt í sundur aftur til þess að athuga hvort ég hafi gert eitthvað vitlaust við ísetninguna (sem á varla að vera hægt hehe) og þegar ég var að taka nýju dæluna úr sambandi fór annar vírinn í tengið í sundur.

Fór í B&L og keypti nýtt tengi og víra og lóðaði þetta saman, þétti vel að þessu og bíllinn varð til friðs... alveg þangað til næsta vandamál kom upp en það er allt önnur saga :lol:
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby ValliFudd » Fri 31. Oct 2008 14:58

á e36 323 mínum fór hann að fara bara stundum í gang og lét mjög furðulega. Ég var handviss um að það væri bensíndælan.

Þá var ein cellan í rafgeyminum farin og hann var bara 10v. Það gerði það að verkum að bensíndælan tók bara stundum við sér. Stundum fór hún í gang þegar ég svissaði á og stundum gerðist ekkert.. Og þegar hún tók við sér var eins og ekkert væri að. Mjög spes

Skipti um geymi og málið dautt :) Gætir prófað að mæla spennuna á geyminum. Bara hugmynd..
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Misdo » Fri 31. Oct 2008 16:24

ValliFudd wrote:á e36 323 mínum fór hann að fara bara stundum í gang og lét mjög furðulega. Ég var handviss um að það væri bensíndælan.

Þá var ein cellan í rafgeyminum farin og hann var bara 10v. Það gerði það að verkum að bensíndælan tók bara stundum við sér. Stundum fór hún í gang þegar ég svissaði á og stundum gerðist ekkert.. Og þegar hún tók við sér var eins og ekkert væri að. Mjög spes

Skipti um geymi og málið dautt :) Gætir prófað að mæla spennuna á geyminum. Bara hugmynd..


já gæti verið það altenatorinn fór´i bílnum mínum um daginn eða fyrir einni og hálfri viku það gæti hafa skemmt geyminn einhvað
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone
User avatar
Misdo
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1586
Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 44 guests