Sambandsleysi í bensíndælunni kannski? Ég lenti í því með 320 E36 sem ég átti einusinni. Hann drap stundum á sér og neitaði í gang, svo rauk hann í gang aðeins seinna.
Klóraði mér mikið í hausnum, var búinn að fara í gegnum alveg helling og skipta um bensíndæluna, svo fór hann aldrei í gang eftir það svo ég reif allt í sundur aftur til þess að athuga hvort ég hafi gert eitthvað vitlaust við ísetninguna (sem á varla að vera hægt hehe) og þegar ég var að taka nýju dæluna úr sambandi fór annar vírinn í tengið í sundur.
Fór í B&L og keypti nýtt tengi og víra og lóðaði þetta saman, þétti vel að þessu og bíllinn varð til friðs... alveg þangað til næsta vandamál kom upp en það er allt önnur saga
