bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 20. Jun 2025 22:26

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 64, 65, 66, 67, 68, 69, 70 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Oct 2008 14:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
Eitt með þetta með hæft fólk í pólitík... það gildar bara allt aðrar reglur þar. Fólk ætti að vera úr öllum stigum þjóðfélagsins en ekki atvinnu pólitíkusar - sá sem stýrir landinu ætti auðvitað ekki að vera sneiddur allri skynsemi en hann getur alveg eins verið leigubílstjóri eins og hagfræðingur eða lögfræðingur, svo lengi sem hann hefur fylgið á bakvið sig og væntanlega formaður flokks. Semsagt allskonar fólk er hæft til að leiða landið - það er lýðræði.

Það er einmitt þessi atvinnuvæðing í pólitík sem er uppspretta mikilla vandræða nútíma þjóðfélaga. Þar með er nefnilega fólk komið í vinnu og sveiflast eftir vindi til að halda sér í vinnunni.
Pólitíkusar eiga hinsvegar alltaf að reyna að móta landið eftir eigin skoðunum (sem hafa þá væntanlega fengið brautargengi) og svo eiga þeir að standa og falla með sínum skoðunum og gjörðum - ekki skipta um og taka upp nýtt sett rétt fyrir kosningar.

Ég verð nú samt að segja að mér finnst að fjámálaráðherra og viðskiptaráðherra ættu að hafa einhverja viðskipta eða hagfræðimenntun en ekki vera dýralæknir og einstaklingur sem hefur farið á hausinn.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Oct 2008 15:26 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
jonthor wrote:

Það er ekki það að ég skilji ekki sjónarmiðið. En á þingi ætti eingöngu að sitja það fólk sem hefur stefnumótandi sýn og þá ætti engu að skipta hvaða menntun það hefur - það yrði svo að standa og falla með sínum skoðunum. Það væri til dæmis líklegra að á þeim forsendum myndi maður kjósa fjármálaráðherra sem væri ekki dýralæknir ekki satt?

Ég held að vandamálið sé miklu frekar hvernig mönnum er raðað í embætti eins og ráðherra embætti. Í kosningum ættu menn að gefa kost á sér í sérstök embætti og jafnvel hafa starfað t.d. í stjórnarandstöðu sem skuggaráðherrar þess embættis sem þeir vilja komast í. Í dag er þetta algjörlega háð goggunarröð og valdabaráttu.

Persónulega er ég mjög á móti atvinnumennsku í pólitík og embætti. Held einmitt að það sé málið að menn komist mun auðveldar undan ábyrgð þegar álit er sótt til nefnda með sérþekkingu á málefnum og svo framvegis.

Það er gaman að nefna það t.d. að hér í DK var fyrir kannski 20 árum allskonar fólk á þingi, bændur, verkamenn, iðnaðarmenn, rithöfundar og svo framvegis. Í dag er næstum eingöngu um að ræða hagfræðinga, lögfræðinga og álíka fólk sem allt er þar til þess að skapa sér sjálfu framtíð og frama - þetta er vinnan þeirra fyrst og fremst, en ekki þjónusta við fólkið í landinu sem er það sem embætti er í raun og veru, eða ætti í það minnsta að vera það!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Oct 2008 15:35 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Posts: 1117
Location: Hafnarfjörður
Ég er búinn að missa allt álit á viðskiptaráðherra, allt sem hann segir er lýðskrum.

Lofar öllu fögru sem fyrirséð er að íslenska ríkið getur aldrei staðið við og er nú farinn að gagnrýna laun bankastjóra KB banka :roll:

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Oct 2008 16:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Posts: 2232
Location: ókunnug.
Ísland er nú svo ''lítill'' pakki að það ætti ekki að vera að kjósa ráðamenn,
heldur bara ráða menn í djobbin eftir menntun og hæfileikum og reka þetta bara eins og fyrirtæki.
Og um leið og fyrirtækið Ísland h.f. myndi sýna ''slæma afkomu'' yrði skipt um stjórnendur og verkstjóra.
Þyrfti nú samt kannski að kjósa forseta og forsætisráðherra reyndar.

_________________
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Oct 2008 17:52 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
HAMAR wrote:
Ísland er nú svo ''lítill'' pakki að það ætti ekki að vera að kjósa ráðamenn,
heldur bara ráða menn í djobbin eftir menntun og hæfileikum og reka þetta bara eins og fyrirtæki.
Og um leið og fyrirtækið Ísland h.f. myndi sýna ''slæma afkomu'' yrði skipt um stjórnendur og verkstjóra.
Þyrfti nú samt kannski að kjósa forseta og forsætisráðherra reyndar.

Já og fá menn einhverstaðar frá stað í heiminum sem ísland þekkist ekki einusinni til að sjá um ráðningar.. Losa þannig aðeins um mafíuna hanns Dabba kóngs.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Oct 2008 18:14 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
HAMAR wrote:
Ísland er nú svo ''lítill'' pakki að það ætti ekki að vera að kjósa ráðamenn,
heldur bara ráða menn í djobbin eftir menntun og hæfileikum og reka þetta bara eins og fyrirtæki.
Og um leið og fyrirtækið Ísland h.f. myndi sýna ''slæma afkomu'' yrði skipt um stjórnendur og verkstjóra.
Þyrfti nú samt kannski að kjósa forseta og forsætisráðherra reyndar.

En þá býrð þú nú ekki í lýðræðisríki.

Þetta er alveg hægt í dag, ef slíkir menn ná kosningu :wink:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Oct 2008 19:58 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
HAMAR wrote:
Ísland er nú svo ''lítill'' pakki að það ætti ekki að vera að kjósa ráðamenn,
heldur bara ráða menn í djobbin eftir menntun og hæfileikum og reka þetta bara eins og fyrirtæki.
Og um leið og fyrirtækið Ísland h.f. myndi sýna ''slæma afkomu'' yrði skipt um stjórnendur og verkstjóra.
Þyrfti nú samt kannski að kjósa forseta og forsætisráðherra reyndar.

Hehe, nákvæmlega.
Einkavæða Alþingi og breyta þessum ráðuneytum í deildir. Þannig yrði til fjármálastjóri, en ekki fjármálaráðherra og svo framvegis.

Við, "hluthafarnir" myndum þá ráða hverjir sætu í stjórn fyrirtækisins.

_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Oct 2008 23:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Nú er ástandið orðið það slæmt að best væri að skipa þjóðstjórn með aðilum atvinnulífsins og fjármalageirans og fleiri stigum þjóðfélagsins. Það er nefnilega augljóst að kjörnir fulltrúar eru bara að sökkva okkur dýpra í skítinn.

Svo er ég á þeirri skoðun að ráðherrar eigi ekki að koma úr röðum þingmanna, þarna skarast tvö verkefni hjá sama einstakling auk þess sem betra væri að ráðherra væri einhver sem fenginn er til starfans vegna hæfileika og reynslu og svo framfylgir hann bara stefnu stjórnvalda. Alveg eins og forstjóri fyrirtækis fer eftir því sem stjórn þess ákveður.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Oct 2008 23:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
jonthor wrote:
bebecar wrote:
Eitt með þetta með hæft fólk í pólitík... það gildar bara allt aðrar reglur þar. Fólk ætti að vera úr öllum stigum þjóðfélagsins en ekki atvinnu pólitíkusar - sá sem stýrir landinu ætti auðvitað ekki að vera sneiddur allri skynsemi en hann getur alveg eins verið leigubílstjóri eins og hagfræðingur eða lögfræðingur, svo lengi sem hann hefur fylgið á bakvið sig og væntanlega formaður flokks. Semsagt allskonar fólk er hæft til að leiða landið - það er lýðræði.

Það er einmitt þessi atvinnuvæðing í pólitík sem er uppspretta mikilla vandræða nútíma þjóðfélaga. Þar með er nefnilega fólk komið í vinnu og sveiflast eftir vindi til að halda sér í vinnunni.
Pólitíkusar eiga hinsvegar alltaf að reyna að móta landið eftir eigin skoðunum (sem hafa þá væntanlega fengið brautargengi) og svo eiga þeir að standa og falla með sínum skoðunum og gjörðum - ekki skipta um og taka upp nýtt sett rétt fyrir kosningar.

Ég verð nú samt að segja að mér finnst að fjámálaráðherra og viðskiptaráðherra ættu að hafa einhverja viðskipta eða hagfræðimenntun en ekki vera dýralæknir og einstaklingur sem hefur farið á hausinn.

Það er ekki það að ég skilji ekki sjónarmiðið. En á þingi ætti eingöngu að sitja það fólk sem hefur stefnumótandi sýn og þá ætti engu að skipta hvaða menntun það hefur - það yrði svo að standa og falla með sínum skoðunum. Það væri til dæmis líklegra að á þeim forsendum myndi maður kjósa fjármálaráðherra sem væri ekki dýralæknir ekki satt?

Ég held að vandamálið sé miklu frekar hvernig mönnum er raðað í embætti eins og ráðherra embætti. Í kosningum ættu menn að gefa kost á sér í sérstök embætti og jafnvel hafa starfað t.d. í stjórnarandstöðu sem skuggaráðherrar þess embættis sem þeir vilja komast í. Í dag er þetta algjörlega háð goggunarröð og valdabaráttu.

Persónulega er ég mjög á móti atvinnumennsku í pólitík og embætti. Held einmitt að það sé málið að menn komist mun auðveldar undan ábyrgð þegar álit er sótt til nefnda með sérþekkingu á málefnum og svo framvegis.

Það er gaman að nefna það t.d. að hér í DK var fyrir kannski 20 árum allskonar fólk á þingi, bændur, verkamenn, iðnaðarmenn, rithöfundar og svo framvegis. Í dag er næstum eingöngu um að ræða hagfræðinga, lögfræðinga og álíka fólk sem allt er þar til þess að skapa sér sjálfu framtíð og frama - þetta er vinnan þeirra fyrst og fremst, en ekki þjónusta við fólkið í landinu sem er það sem embætti er í raun og veru, eða ætti í það minnsta að vera það!

Það breytir því ekki að ef við höfum kerfið þannig að engar kröfur eru gerðar um menntur til einstakara embætta getum við fengið dýralækni í embætti sem krefst þekkingu á viðskiptum og/eða hagfræði.

Ég er engan vegin sammála því kosningarnar eigi bara að snúast um fólkið persónulega, við eigum líka að gera kröfur til menntunar og þekkingu í ákveðin embætti sem skipta jafn miklu máli og hagstjórn þjóðarinnar.

Getur verið að Danmörk sé að sósíalvæða þig enn meira en áður bebe :D

Reyndar er Kapítalisminn dauður, hvað ætli taki við :?:

"It has been said that democracy is the worst form of government except all the others that have been tried"

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 24. Oct 2008 07:12 

Neih djö það gengur eiginlega ekki upp - hér enda allir útlendingar sem hægri menn :lol:

Við sjáum sama vandamálið en sitt hvora lausnina. Kerfið er til staðar, það hefur bara ekki verið neinn áhugi á pólitík í langan tíma því allt hefur verið í góðu. Það gæti orðið breyting þar á núna.

Mér finnst hinsvegar hæpið að fólk yrði að hafa ákveðna menntun t.d. til þess að geta orðið fjármálaráðherra, landbúnaðarráðherra o.s.frv. Til þess að það gæti orðið yrði að slíta ráðherradóminn frá þingmennskunni.

Eins og ég segi ætti einfaldlega að kjósa beint til starfans, í stað þess að skipa í embætti í samningum á milli flokka, það yrði í það minnsta þá bara valið á milli samstarfsflokka á milli 2-3 manna sem allir höfðu verið kosnir í ákveðið embætti og manni þætti nú líklegt að fólk myndi þá kjósa hagfræði doktor sem fjármálaráðherra fremur en dýralækni.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 24. Oct 2008 07:23 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
grettir wrote:
HAMAR wrote:
Ísland er nú svo ''lítill'' pakki að það ætti ekki að vera að kjósa ráðamenn,
heldur bara ráða menn í djobbin eftir menntun og hæfileikum og reka þetta bara eins og fyrirtæki.
Og um leið og fyrirtækið Ísland h.f. myndi sýna ''slæma afkomu'' yrði skipt um stjórnendur og verkstjóra.
Þyrfti nú samt kannski að kjósa forseta og forsætisráðherra reyndar.

Hehe, nákvæmlega.
Einkavæða Alþingi og breyta þessum ráðuneytum í deildir. Þannig yrði til fjármálastjóri, en ekki fjármálaráðherra og svo framvegis.

Við, "hluthafarnir" myndum þá ráða hverjir sætu í stjórn fyrirtækisins.

Ekki virkaði það nú sérlega vel í stærstu fyrirtækjum landsins að láta hluthafa ráða.... yfirleitt bara einn hluthafi sem lét eitthvað heyra í sér - hinir sauðirnir sátu bara með og treystu á eitthvað yfirnáttúrulegt.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 24. Oct 2008 07:58 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Hvernig getur kapítalisminn verið dauður þegar að það var sósíalismi sem að startaði þessu að miklum hluta til að byrja með?

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 24. Oct 2008 11:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ágætis fréttir fyrir námsmenn hjá lín,

í dag sá ég fyrirfram greiðslu frá lín, helmingurinn af skjólagjöldunum lagður inn tilbaka, get ekki sagt ykkur hvað það er mikill léttir. það var farið að þétta allsvakalega að okkur hérna.

ég var að reyna kaupa dót frá Rieger fyrir fyrirtæki á íslandi, fékk ekki einu sinni að kaupa evrur til þess um daginn :) , bara stíft á þessu gjaldeyris veseni :)

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 24. Oct 2008 11:49 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
gstuning wrote:
Ágætis fréttir fyrir námsmenn hjá lín,

í dag sá ég fyrirfram greiðslu frá lín, helmingurinn af skjólagjöldunum lagður inn tilbaka, get ekki sagt ykkur hvað það er mikill léttir. það var farið að þétta allsvakalega að okkur hérna.

ég var að reyna kaupa dót frá Rieger fyrir fyrirtæki á íslandi, fékk ekki einu sinni að kaupa evrur til þess um daginn :) , bara stíft á þessu gjaldeyris veseni :)

Skil ekki alveg hvað þú meinar? Aukafjárveiting frá LÍN fyrir helming af gjöldum eða endurgreiddi skólinn helming?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 24. Oct 2008 12:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
betra væri að segja, lánið sem ég á að fá í jan eftir einkannir fyrir fyrri önn hefur verið fyrifram greitt að hluta.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 64, 65, 66, 67, 68, 69, 70 ... 246  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group