Seðlabankinn hefur alltaf verið endastöð fyrir stjórnmálamenn!
Ég persónulega vil fá að sjá Jón Sigurðsson aftur í Seðlabankann þó svo pólitísk stefna hans sé þvert á við mína!. En hann er nú hjá FME þannig það er einhver von.
Davíð Oddson hefur gert margt gott fyrir landið, en hann alls ekki á sínum heimavelli núna. Það þýðir samt ekki að það eigi að henda honum út strax og reyna finna einhvern annan á þessum erfiðu tímum. Hvernig myndi líta í augum erlenda aðila?
Þegar Davíð Oddsson var gestur í Kastljósi þá benti hann bara á félaga sína og sagði að þetta væri þeim að kenna. Seðlabankinn hefði varað við þessu, ríkisstjórnin ekki hlustað o.s.fr. Þetta er það barnalegasta sem ég hef hlustað á. Virðulegur maður hefði bara átt að axla ábyrgð, sérstaklega hann, þar sem hann var nú í aðalhlutverki þegar bankarnir voru einkavæddir. AFHVERJU setti hann ekki harðari lög þegar hann einkavæddi bankana?
Þið getið væntalega séð mitt álit á Dabba, en mér persónulega finnst að hann ætti ekki að segja af sér /vera rekinn núna. Hann þarf að leiða okkur í gegnum þetta!
En ástandið er MJÖG slæmt.
T.d. er Glitnir kominn með CCC í lánshæfiseinkun sem er jafngildir GJALDÞROTI í augum fjárfesta.
///MR HUNG wrote:
En getur einhver sagt mér hvers vegna heyrist ekki múkk í Björgólfunum?
Afhverju á að heyrast eitthvað í þeim? Viltu fá þá í kastljós til þess að kasta sökina á aðra eða? Hvað viltu fá að heyra frá þeim?