Schulii wrote:
Verð að segja að mér finnst mjög smáborgaralegt af mönnum að vera að kítast hérna útí Geir fyrir að hafa látið þessi ummæli falla um Helga Hálfvita.
Það er eflaust ekki hægt að ímynda sér álagið sem hefur hvílt á allri ríkisstjórninni og sérstaklega þeim Geir og Björgvini. Þeir eru búnir að eiga langa og stranga vinnudaga og stundum á næturnar að vinna að úrlausn mála sem eru af stærri toga en nokkur stjórnmálamaður hefur þurft að sinna hér áður. Þeir eru búnir að standa í viðtölum við íslenska og erlenda fréttamenn, sífellt að vanda mál sitt og gæta sín í hvívetna að segja ekkert "rangt". Þurft að svara mjög erfiðum spurningum frá erlendum fréttamönnum vitandi það að það er fín lína á milli þess að þjóðin haldi ró sinni eða rjúki að hamstra mat og tæma allar innistæður sínar og fleira jafnvel verra. Þeir hafa staðið eins og klettar í gegnum allt þetta álag. Björgvin í fyrsta ráðherrastól sínum sem hann hefur sinnt í rúmt ár. Síðan kemur þetta helvítis fífl hann Helgi og byrjar að reyna að æsifréttast og míga utaní þá eins og versti slúðurdálkahöfundur úr bresku pressunni. Að reyna að finna eitthvað fölnað laufblað í frumskógi þess sem hefur verið sagt og gert mjög vel að mínu mati undanfarið. Er þá skrítið að menn verði soldið pirraður að samlandar þeirra og það meira að segja úr fjölmiðlaheiminum skuli láta svona eins og drullusokkar og gera lítið úr og jafnvel skaða þá vinnu sem þessir menn eru búnir að leggja á sig.
Ég er að reyna að skrifa þetta af mestu rósemi en það bókstaflega sýður á mér...
Held að menn ættu að skoða aðeins hvaða spurningu Helgi var að bera undir fíflið hann Geir. Hún á fullkomnlega rétt á sér og ef þessi kauða djöfull, Geir H. Haarde, getur ekki svarað einhverju smátitti eins og Helgja Seljan, þá á þessi maður EKKERT í pólítík að gera, sérstaklega ekki forsetisráðherrastól.
Þessir menn gera mistök ofan á mistök, og skíta síðan upp á bak, alveg ofan í sig, gubba því svo og éta það. Þessir menn eru ekki störfum sínum hæfir.