by grettir » Thu 09. Oct 2008 09:31
Þetta snýst ekki endilega um það hvort Davíð getur eða getur ekki afstýrt þjóðargjaldþroti.
Sú staðreynd að seðlabankinn hefur ekki verið undir verðbólgumarkmiðum sínum undanfarin ár, í góðæri, styrkir mig ekki í þeirri trú að hann geti eitthvað frekar bjargað verðbólgu og gengisfalli í kreppu.
Þarna á að vera að störfum fagfólk. Ekki mynduð þið láta Davíð taka úr ykkur botnlangann?
Seðlabankinn hefði getað stýrt vexti bankanna með aukinni bindiskyldu (eða sleppa því að lækka hana), en bindiskylda þvingar bankana til að eiga pening inni á reikning í seðlabankanum.
Það er í sjálfu sér alveg í lagi að vera með risavaxið bankakerfi, en seðlabankanum ber þá skylda til að standa undir því þegar kreppir að hjá bönkunum, honum ber að lána þeim pening í skammtíma lausafjárvandræðum eins og þeir stefndu í á þessu ári. Honum ber að styrkja gjaldeyrissjóðinn til að vernda gengi krónunnar.
Ekkert af þessu hefur verið gert, þrátt fyrir að Davíð segist hafa séð þetta vandamál snemma hausts 2007.
Ef hann sér vandamálið og gerir ekkert í því fyrr en allt er komið í þrot þá eru það stórkostleg embættisglöp og eru að kosta sparifjáreigendur og húsnæðiseigendur stórkostlegar upphæðir í formi verðbóta á húsnæðislán, verðrýrnunar á sparifé og aukna greiðslubyrði á erlendum lántökum.
Getur Davíð reddað því hvernig komið er? Vonandi.
Getur einhver annar en Davíð reddað því hvernig komið er? Vonandi.
Hefði fagfólk séð vandamálið fyrr og gripið til aðgerða og komið í veg fyrir algert hrun? Engin spurning.
Það er enginn vafi að öll lönd í heiminum eru í vandræðum eins og staðan er í dag, en í venjulegum löndum þar sem eru starfandi seðlabankar með fagfólki innanborðs er verðbólga og gengishrun ekki eins stór hluti vandamálsins eins og hér. Hlutir sem koma beint við kauninnn á almenningi sem er að reyna að borga af sínum húsum og gefa sínum börnum að borða.
Þegar ríkið gerði tilboð í 75% hlut Glitnis segir Davíð að stutt sé í að hinir bankarnir fari sömu leið. Samstundis lokast á lánamöguleika Landsbankans og að einhverju leyti Kaupþings.
Í þessum kastljósþætti gerir hann Breta alveg brjálaða með óábyrgu tali um tryggingar á sparireikningum þeirra í Landsbankanum og blaðrar því að Seðlabankinn sé að lána Kaupþingi, sem veldur því að Kaupþing er sett í greiðslustöðvun erlendis og ríkið tekur bankann yfir í nótt.
Menn eiga auðvitað ekki að tala svona. Það er eins og hann átti sig ekki á því að heimurinn er að hlusta núna. Og heimurinn leggst ekki á hnén og bugtar sig þegar Davíð talar. Heimurinn tekur peninginn út úr bönkunum hérna og flýr.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn